Morgunblaðið - 29.06.2016, Blaðsíða 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 2016
Katrín Ösp Magnúsdóttir, kennari í Grunnskóla Grindavíkur, erþrjátíu ára gömul í dag. Hún er einnig í meistaranámi íkennslufræði. „Ég er að kenna 2. bekk, en ég byrjaði að
kenna 1. bekk síðasta vetur og fannst kennslan eiga mjög vel við mig.
Ég kalla mig Suðurnesjamey, fædd og uppalin í Keflavík, við flutt-
um síðan í Voga á Vatnsleysuströnd, en maðurinn minn er úr Grinda-
vík og fjölskylda hans býr þar og við ákváðum að flytja hingað.“
Hvað um áhugamál? „Það er ýmislegt sem maður gerir, ég er í
garðræktinni núna og les mér til dundurs og fer út með krakkana.
Svo hef ég verið að æfa fitnessbox í svolítinn tíma. Munurinn á fitness-
boxi og venjulegu boxi er sá að það er meira farið í styrktaræfingar
og tæknina, en það er lítið farið í hringinn, í bardagann sjálfan.“ Katr-
ín er ekki ókunnug bardagaíþróttum því hún æfði lengi júdó og þjálf-
aði síðan. Varð m.a. í þriðja sæti á Norðurlandamóti árið 2004 og varð
í öðru sæti á Opna sænska meistaramótinu og varð Íslandsmeistari í
flokki 21 árs og yngri „Ég er í pásu frá júdóinu enda er nóg að gera í
kennslunni og að vera með fjölskyldunni.“ Faðir Katrínar, Magnús
Hersir Hauksson, var margfaldur Íslandsmeistari í júdói, en hann er
núna yfirhúsvörður í Laugardalshöll, og móðir hennar, Anna
Álfheiður Hlöðversdóttir, vinnur hjá Isavia við vopnaleit.
Eiginmaður Katrínar er Einar Jón Sveinsson, vélstjóri hjá hvala-
skoðunarfyrirtækinu Eldingu og margfaldur Íslandsmeistari í júdói.
Hann á fyrir soninn Gabríel Ísar, f. 2001, en saman eiga þau Magnús
Alexander, f. 2008, Ara, f. 2010, Arnar, f. 2012 og Hauk Hersi, f. 2014.
„Þetta verður voða látlaust afmæli. Líklega verður grillað með
fjölskyldunni.
Á góðum sumardegi Ari, Katrín Ösp, Magnús Alexander, Arnar,
Einar Jón og með húfuna er Haukur Hersir.
Fjögurra barna
móðir í fitnessboxi
Katrín Ösp Magnúsdóttir er þrítug í dag
B
rynjar fæddist á Heiði í
Biskupstungum 29.6.
1966, ólst þar upp við
öll almenn og hefð-
bundin sveitastörf þess
tíma og hefur átt þar heima alla tíð.
Hann lauk grunnskólaprófi frá
Grunnskólanum í Reykholti.
Brynjar var í fiskvinnslu og til
sjós frá Þorlákshöfn í nokkrar ver-
tíðir. Hann hóf sjálfur búskap á
Heiði 1989 og hefur verið bóndi þar
síðan: „Það kom nú eiginlega aldrei
neitt annað til álita af minni hálfu en
að verða bóndi. Maður er alinn upp
við bústörfin, ég hef alltaf haft yndi
af skepnum og búskap, er yngstur
systkinanna og þegar ég komst á
unglingsárin voru systkini mín að
fara að heiman. Ég tók því við bú-
skapnum og hef aldrei séð eftir því.
Við erum með blandaðan búskap,
Brynjar Sigurgeir Sigurðsson, bóndi á Heiði – 50 ára
Heiðarfjölskyldan Frá vinstri: Ólöf Anna, Sigurgeir, Marta Sonja, Brynjar, Sigrún Ásta, Gísli Þór og Auður Hanna.
Söngglaður bóndi í
Biskupstungunum
Rekstur Brynjar á leið yfir gömlu Tungufljótsbrúna sem var byggð 1929.
Sigríður Hulda Ketils-
dóttir, Akranesi, er 80
ára í dag, 29. júní. Hún
ætlar að eyða deginum
með fjölskyldunni.
Árnað heilla
80 ára
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
AUKIN ÞJÓNUSTA
VIÐ EIGENDUR SKODA
• Bílson er sérhæft og vottað þjónustuverkstæði sem
uppfyllir allar ströngustu kröfur Skoda.
• Fullkomin forgreiningarstöð þar sem greina má flest
allt um ástand bílsins og gæði.
• Bílson hefur gæðavottun Bílgreinasambandsins með gæðaúttekt frá BSI á Íslandi auk
starfsleyfis til endurskoðunar frá Samgöngustofu.
Við leitumst við að vera samstíga því besta í Evrópu.
Komið, sjáið og sannfærist.
Kletthálsi 9 • Sími 568 1090
- V E R K S T Æ Ð I Ð -
Kletthálsi 9 • 110 Reykjavík • Sími 568 1090 • bilson@bilson.is • bilson.is