Morgunblaðið - 29.06.2016, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 29.06.2016, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 2016 29. júní 2016 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 123.7 124.3 124.0 Sterlingspund 164.91 165.71 165.31 Kanadadalur 95.03 95.59 95.31 Dönsk króna 18.433 18.541 18.487 Norsk króna 14.612 14.698 14.655 Sænsk króna 14.529 14.615 14.572 Svissn. franki 126.47 127.17 126.82 Japanskt jen 1.2083 1.2153 1.2118 SDR 172.52 173.54 173.03 Evra 137.14 137.9 137.52 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 171.5874 Hrávöruverð Gull 1312.0 ($/únsa) Ál 1592.0 ($/tonn) LME Hráolía 48.43 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Vísitala neyslu- verðs miðuð við verðlag í júní 2016 er 436,3 stig og hækkaði um 0,18% frá fyrri mánuði, sam- kvæmt nýrri mæl- ingu Hagstofunnar. Er þetta veru- lega minni hækkun en greiningar- deildir bankanna höfðu spáð, en þær spáðu 0,4%-0,5% hækkun vísitölunnar. Mælist verðbólga síðastliðna 12 mánuði 1,6%, sem er hjöðnun frá fyrri mánuði þegar hún mældist 1,7%. Sá flokkur í mælingu Hagstofunnar sem vó þyngst til hækkunar vísitöl- unnar var flugfargjöld til útlanda. Er það í samræmi við spár greiningaraðila, þó að hækkunin hafi verið minni en þeir al- mennt gerðu ráð fyrir. Einnig hækkaði reiknuð húsaleiga og eldsneyti í kjölfar nokkurrar hækkunar á heimsmarkaðs- verði olíu. Hins vegar hafði lækkun á póst- og símaþjónustu áhrif til lækkunar á vísi- tölunni. Er það einkum að rekja til lækk- unar á farsímaþjónustu, sem lækkaði um 6,9% milli mánaða, og internet- þjónustu, sem lækkaði um 3,5%. Þá lækkaði matur og drykkur, svo sem heitir drykkir, sælgæti og grænmeti, milli mánaða. Mjólk og egg hækkuðu hins vegar. Verðbólgan mun minni en búist hafði verið við Matvara Verðbólg- an mælist nú 1,6%. STUTT BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Umfang íslenska sparisjóðakerfis- ins skrapp gríðarlega saman á liðnu ári þegar þrír stærstu sparisjóð- irnir voru sameinaðir Landsbank- anum og Arion banka í kjölfar þess að í ljós kom að lánasöfn þeirra voru mun verðminni en talið hafði verið. Þetta má lesa úr nýútkominni skýrslu Fjármálaeftirlitsins um árs- reikninga fjármálafyrirtækja. Þannig varð alvarleg staða Spari- sjóðs Vestmannaeyja opinberlega kunn í lok mars í fyrra. Í kjölfarið var hann sameinaður Landsbank- anum. Í júní var ljóst að AFL sparisjóður ætti ekki framtíð fyrir sér í óbreyttri mynd og úr varð að hann var sameinaður Arion banka. Síðar í sama mánuði var Sparisjóð- ur Norðurlands svo sameinaður Landsbankanum. Þannig voru sjö sparisjóðir starf- ræktir í landinu í upphafi árs 2015. Þegar árið var úti stóðu fjórir eftir. Samanlagðar eignir sjóðanna fjög- urra námu 19,8 milljörðum króna um síðustu áramót en eignir sjóð- anna sjö höfðu í árslok 2014 numið 56,4 milljörðum króna. Þannig höfðu eignir sparisjóðakerfisins skroppið saman um 65% milli ára. Með tilfærslu sparisjóðanna þriggja inn í viðskiptabankana dróst útlána- safn sparisjóðakerfisins saman um heil 71%. Þannig voru útlán spari- sjóðanna 36,4 milljarðar í árslok 2014 en stóðu í 10,6 milljörðum um síðustu áramót. Þrátt fyrir það juk- ust útlán allra sjóðanna sem enn starfa milli ára. Mest varð hlutfalls- leg aukning í Sparisjóði Höfðhverf- inga og jukust þau um tæp 18%. Þá jukust útlán Sparisjóðs Suður-Þing- eyinga um tæp 12%. Um 9% aukn- ing varð hjá Sparisjóði Austurlands og tæplega 1,7% aukning hjá Spari- sjóði Strandamanna. Þótt hlutfalls- leg aukning hafi orðið töluverð í til- felli þriggja sjóða af fjórum, nam heildarútlánaaukningin hjá sjóðun- um fjórum aðeins ríflega milljarði króna. Til samanburðar námu heildarútlán viðskiptabankanna þriggja ríflega 2.150 milljörðum um áramót. Innlánasafn sparisjóðakerfisins dróst saman um 63% milli ára. Þannig fóru heildarinnlán kerfisins úr ríflega 48 milljörðum í árslok 2014 í tæpa 17,7 milljarða um síð- ustu áramót. Líkt og í tilfelli útlán- anna jukust innlán allra sparisjóð- anna sem eftir standa. Mest varð aukningin hjá Sparisjóði Stranda- manna og nam hún 15,5%. Ríflega 13% aukning varð á innlánum í Sparisjóði Höfðhverfinga og 10% aukning hjá Sparisjóði Austurlands. Aðeins varð 0,4% aukning innlána hjá Sparisjóði Suður-Þingeyinga. Minni samdráttur eiginfjár Þó að eigið fé á vettvangi spari- sjóðakerfisins hafi dregist verulega saman þegar þrír stærstu sjóðir landsins misstu fótanna, varð sam- drátturinn hlutfallslega minni en þegar litið er til eigna sjóðanna og inn- og útlána. Þannig skrapp eigið fé sjóðanna saman um 39% milli ára. Stóð það í tæpum 1.760 millj- ónum í árslok 2015 samanborið við ríflega 2.870 milljónir ári fyrr. Eignir sparisjóða skruppu saman um 65% milli ára Sjóðir Miklar breytingar hafa orðið á sparisjóðakerfinu á síðustu árum.  Útlán í sparisjóðakerfinu drógust saman um 71% við fall þriggja sjóða í fyrra Hagnaður » Sparisjóðirnir skiluðu sam- anlagt 81 milljón í hagnað á síðasta ári. » Það fól í sér umskipti frá fyrra ári þegar kerfið skilaði ríflega 1.700 milljóna tapi. » Sjóðirnir sem eftir standa skiluðu bæði hagnaði 2014 og 2015. Tapið 2014 átti einkum rætur að rekja til sjóða sem síðan féllu. Jón Þórisson jonth@mbl.is Fjármálaráðuneytið hefur sent kjara- ráði bréf þar sem upplýst er um að Ís- landsbanki og Lyfja séu komin í meirihlutaeigu ríkisins og laun stjórn- enda þeirra lúti þar með ákvæðum laga um kjararáð. Bréfið, sem Morg- unblaðið hefur undir höndum, er ritað síðastliðinn föstudag. Eins og greint var frá í blaðinu á þriðjudaginn í síðustu viku hafði kjar- aráði þá ekki borist erindi um að taka laun bankastjóra Íslandsbanka og forstjóra Lyfju til úrskurðar eins og lög mæla fyrir um þegar hlutafélag er í meirihlutaeigu ríkisins. Í 1. grein laga um kjararáð segir að verkefni þess sé að ákveða laun og starfskjör æðstu embættismanna rík- isins, en einnig forstöðumanna ríkis- stofnana og framkvæmdastjóra hlutafélaga og annars konar félaga, einkaréttareðlis, sem eru að meiri hluta í eigu ríkisins. Þá segir einnig að ráðið skuli ákvarða laun fram- kvæmdastjóra félaga sem eru að meiri hluta í eigu félaga sem undir lagagreinina falla. Miklu munar á kjörum Eins og fram kom í frétt Morgun- blaðsins í síðustu viku voru laun bankastjóra Íslandsbanka að meðal- tali rúmlega 4.240 þúsund á mánuði á síðasta ári. Mánaðarlaun bankastjóra Landsbankans voru hins vegar 1.950 þúsund samkvæmt úrskurði kjarar- áðs. Í 8. grein laga um kjararáð segir að við úrlausn mála skuli ráðið gæta inn- byrðis samræmis í starfskjörum sem það ákveður. Jónas Þór Guðmundsson, formað- ur kjararáðs, staðfesti í samtali við Morgunblaðið að ráðið hefði móttekið bréf fjármálaráðuneytis. Ekki liggur fyrir hvenær ráðið hittist til að ræða erindið. Um það hvort kjararáð muni, samkvæmt ofangreindu ákvæði lag- anna, einnig úrskurða um laun stjórn- enda dótturfélaga Íslandsbanka vildi hann ekki tjá sig að svo komnu máli. Meðal dótturfélaga Íslandsbanka er Borgun hf., en eignarhlutur bank- ans er liðlega 63% í fyrirtækinu. Mán- aðartekjur Hauks Oddssonar, for- stjóra Borgunar, voru um 2.620 þúsund á árinu 2014, samkvæmt tekjublaði Frjálsar verslunar. Lyfja seld síðar á árinu Í bréfinu er jafnframt vakin athygli kjararáðs á að Lindarhvoll ehf. hafi verið stofnað nýlega til að halda utan um eignir sem runnu til ríkissjóðs á grundvelli stöðugleikaframlaga sli- tabúanna og að stjórn Lindarhvols hafi ekki enn ráðið sér framkvæmda- stjóra. Kemur fram að samkvæmt starfs- áætlun Lindarhvols sé gert ráð fyrir að félagið selji hlut sinn í Lyfju síðari hluta þessa árs. Gera má ráð fyrir að félagið fari þá úr ríkiseigu og upp frá því heyri það ekki lengur undir lög um kjararáð. Morgunblaðið/Ómar Íslandsbanki Kjararáði hefur nú borist erindi fjármálaráðuneytis þar sem bent er á að úrskurða þurfi um laun stjórnenda Íslandsbanka og Lyfju. Úrskurði um laun stjórn- enda Íslandsbanka og Lyfju  Kjararáði ber að gæta samræmis í starfskjörum ● Nokkur hækkun varð í Kauphöll Íslands í gær eftir lækkunarhrinu und- angenginna daga, m.a. í framhaldi af niðurstöðu þjóðaratkvæðis í Bretlandi um útgöngu úr Evrópusambandinu. Hækkaði Úrvalsvísitalan um 2,61%. Heildarviðskipti með hlutabréf námu 1.435 milljónum. Af félögum á aðallista hækkaði gengi hlutabréfa í Icelandair Group mest um 3,85% í 21 viðskiptum að fjárhæð 293 milljónir, sem var mesta velta einstaks félags. Þau hlutabréf sem voru næst- veltumest voru bréf Marel þar sem við- skiptin námu 226 milljónum og hækk- uðu þau um 3,25%. Hækkuðu öll hluta- bréf á aðalmarkaði í gær nema bréf Sjóvár og Össurar, sem stóðu í stað, og bréf HB Granda sem lækkuðu lítillega. Hlutabréfaverð hækkar á ný í Kauphöllinni Hlökkum til að heyra frá ykkur! Nolta Okkar megin áherslur eru: ◆ Liðsheildarþjálfun ◆ Leiðtogahæfni ◆ Stefnumótun og umbótastarf Sigurjón Þórðarson Sími: 893 1808 • sigurjon.thordarson@nolta.is Friðfinnur Hermannsson Sími: 860 1045 • fridfinnur.hermannsson@nolta.is Ráðgjöf og þjálfun nolta.is Vinnustofur sem styrkja og hreyfa við fólki Frekari upplýsingar á nolta.is Nolta er á Facebook Leiðtoginn á réttum kúrs Self - Navigation er skemmtileg tveggja daga vinnustofa þar sem leiðtoginn stillir af hvert hann stefnir og kemur skipulagi á sín helstu verkefni. Árni Sverrisson Sími: 898 5891 • arni.sverrisson@nolta.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.