Morgunblaðið - 29.06.2016, Side 5

Morgunblaðið - 29.06.2016, Side 5
5 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 2016 Í NICE Andri Yrkill Valsson yrkill@mbl.is Ungur Spánverji hefur vakið at- hygli fjölmiðlamanna sem fylgja íslenska karlalandsliðinu í knatt- spyrnu eftir á Evrópumótinu í Frakklandi. Hann er jafnan áber- andi merktur mismunandi íslensk- um félagsliðum, sem undirstrikar hversu forfallinn aðdáandi Íslend- inga hann er. Víctor Cervantes heitir hann, er 25 ára gamall og að skrifa bók um íslenska knatt- spyrnu, sem er brennandi áhuga- mál sem kviknaði þegar Eiður Smári Guðjohnsen gekk til liðs við Barcelona árið 2006. „Þegar Eiður Smári kom til Barcelona var ég fimmtán ára gamall. Ég hreifst mikið af honum og hann varð uppáhaldsleikmaður minn í liðinu. Upp frá því fór ég að kynna mér Ísland betur og hér er ég nú,“ sagði Cervantes þegar blaðamaður Morgunblaðsins ræddi við hann fyrir leikinn gegn Eng- landi í Nice á mánudag. Hann var þá klæddur í treyju merkta Fram, eftir að hafa verið áður vandlega merktur ÍBV á leiknum við Aust- urríki. Cervantes skrifar bókina með Axel Torres, þekktum spænskum íþróttafréttamanni. Þeir komu til Íslands síðasta sumar og ferð- uðumst um í þrjár vikur til að átta sig á íslensku knattspyrnumenn- ingunni. „Ég sótti svo um frí frá vinnunni til þess að koma hingað til Frakklands, fylgja Íslandi á EM og skrifa bókina. Markmiðið er að gefa hana út fyrir næstu jól.“ Ljósir lokkar Eiðs vöktu athygli Þegar Eiður Smári kom til Barcelona voru þar fyrir stór- stjörnur eins og Ronaldinho, auk þess sem Lionel Messi var að koma fram á sjónarsviðið. En hvað var það við Eið Smára sem heillaði frekar en aðrar stjörnur liðsins? „Það er góð spurning. Ég veit í rauninni ekki af hverju það var Eiður sem heillaði mig svona mik- ið. Ég held það sé af því að í Barcelona erum við vanir að hafa marga af bestu leikmönnum heims, til dæmis frá Brasilíu og Argentínu. Fyrir mig var mjög óvenjulegt að sjá ljóshærðan gaur frá landi sem ég vissi ekki neitt um. Fyrir mig var þetta allt svo fjarlægt og því eiginlega einskær forvitni sem hvatti mig áfram.“ Og það er ljóst að aðdáun þess spænska á Eiði Smára er gríð- arleg. Hann tók upp símann sinn og sýndi blaðamanni skjámyndina sem blasti við. Þar voru þeir fé- lagar, Víctor og Eiður Smári, skælbrosandi saman á mynd! Cervantes hitti Eið Smára í jan- úar og segir að hann hafi veitt mikla aðstoð við efnisöflun í bók- ina og komið þeim í góð sambönd. Heimir hafði rétt fyrir sér Fyrri hluti bókarinnar verður um upplifunina frá Íslandi en þann síðari er Cervantes að skrifa í Frakklandi. Jafn óðum og ís- lenska landsliðið skrifar sjálft nýja kafla í sögu sína. Cervantes þarf að hugsa sig um í dálitla stund þegar blaðamaður spyr hvort hann hafi búist við því að íslenska liðið kæmist jafn langt og raun ber vitni. „Ég hélt alltaf í vonina. En ég verð að viðurkenna að þegar Ís- land gerði jafntefli við Ungverja- land bjóst ég við að þetta væri bú- ið. Ég hitti Heimi [Hallgrímsson] eftir leikinn og sagði það við hann. „Víctor, þú verður að trúa. Okkur mun takast þetta,“ sagði hann þá við mig. Og hafði heldur betur rétt fyrir sér.“ Eiður kveikti íslenskan neista  Ungur Spánverji fylgir íslenska landsliðinu í knattspyrnu eftir í Frakklandi og skrifar um það bók  Heillaðist af Eiði Smára þegar hann spilaði með Barcelona  Heimir stappaði í hann stálinu Ljósmynd/Andri Yrkill Aðdáandi Victor Cervantes í Fram-búningi sínum, mikill áhangandi íslenska liðsins. Eiður Smári Guðjohnsen var sumarið 2006 keyptur til Barcelona á Spáni frá Chelsea, þar sem hann hafði unnið tvo Englands- meistaratitla. Eiður Smári var í þrjú ár hjá Barcelona og meðal annars hluti af liðinu sem vann þrenn- una eftirsóttu veturinn 2008- 2009 þegar liðið vann spænsku deildina, spænsku bikarkeppn- ina og Meistaradeild Evrópu. Eiður er eini Íslendingurinn sem hefur afrekað það. „Ég hreifst mikið af honum og hann varð minn uppáhalds leikmaður í liðinu. Ég veit í rauninni ekki af hverju það var Eiður sem heillaði mig svona mikið. Það var mjög óvenjulegt að sjá ljóshærðan gaur frá landi sem ég vissi ekki neitt um,“ segir Víctor Cervantes. Í þrjú ár hjá Barcelona EIÐUR SMÁRI GUÐJOHNSEN Eiður Smári Guðjohnsen EM Í FÓTBOLTAKARLA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.