Morgunblaðið - 29.06.2016, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 29.06.2016, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 2016 www.smyrilline.is Stangarhyl 1 · 110 Reykjavík Sími: 570-8600 · info@smyril-line.is Fjarðargötu 8 · 710 Seyðisfjörður Sími: 472-1111 · austfar@smyril-line.is Taktu bílinn með til Færeyja og Danmerkur 2016 Færeyjar 2 fullorðnir með fólksbíl Netverð á mann frá 34.500 Danmörk 2 fullorðnir með fólksbíl Netverð á mann frá 74.500 Bókaðu núna! Bókaðu snemma til aðtryggja þér pláss.Þegar orðið fullt ísumar ferðir í sumar. Vertu upplýstur! blattafram.is VANDINN LIGGUR OFT HJÁ OKKUR SJÁLFUM. SAMÞYKKIR ÞÚ KYNFERÐISOFBELDI? Fulltrúar aðild- arfélaga Banda- lags háskóla- manna og samninga- nefndar Sam- bands íslenskra sveitarfélaga hittust á fundi í gær til að ræða niðurstöðu kjara- könnunar BHM fyrir árið 2015. Þórunn Sveinbjarn- ardóttir, formaður BHM, ásamt fulltrúum BHM ítrekuðu mikilvægi þess að bandalagið fengi aðgang að launaupplýsingum sveitarfélag- anna. Aðeins þannig sé hægt að fá raunhæfa mynd af stöðunni hjá sveitarfélögunum. Vilja útrýma kyn- bundnum launamun Þórunn Sveinbjarn- ardóttir Elvar Ingimundarson elvar@mbl.is „Við teljum þetta gífurlegt fram- faraskref og erum afar stolt af þessu,“ segir Ágúst Sigurðsson, sveitarstjóri Rangárþings ytra. Sveitarfélagið hefur stofnað fyr- irtækið Rangárljós til að annast lagningu ljósleiðara í dreifbýli sveit- arfélagsins. Verkefnið er stórt í snið- um og á sér langan aðdraganda. „Við munum leggja ljósleiðara í allt dreif- býli sveitarfélagsins í einum áfanga og klárum það árið 2017. Við höfum notað öll tækifæri sem hafa gefist til að leggja í dráttarrör með öðrum framkvæmdum. Við vorum svo heppin að það voru miklar fram- kvæmdir hér síðasta sumar við raf- magnslínu í jörð svo hægt var að leggja í dráttarrör fyrir ljósleiðara samhliða þeirri framkvæmd. Eins eru tengimiðjur tilbúnar á Hellu og Laugarlandi,“ segir Ágúst. Sveitarfélagið mun eiga grunn- netið og selja fjarskiptafyrirtækjum aðgang að því. Ágúst segir mikla eft- irspurn hafa verið frá þjónustuað- ilum sem vilja selja þjónustu sína í gegnum grunnnetið. Íbúum og fyr- irtækjum verður því í sjálfsvald sett frá hvaða fjarskiptafyrirtæki þeir kaupa netþjónustu sína. Enginn vildi leggja í dreifbýlið Gagnaveitan lagði á sínum tíma ljósleiðara í þéttbýlinu á Hellu og Hvolsvelli en engin fjarskiptafélög sýndu því áhuga að koma að upp- byggingu ljósleiðarakerfis í dreifbýli sveitarfélagsins þegar eftir því var leitað. Sveitarfélagið hefur því stofn- að Rangárljós sem verður B-hluta- fyrirtæki í eigu sveitarfélagsins en slíkar stofnanir hafa það hlutverk að selja þjónustu og hafa aðskilinn fjár- hag frá sveitarfélögum þrátt fyrir að vera alfarið í eigu þeirra. Nokkur kostnaður mun fylgja lagningu ljósleiðarans. „Við fengum í þetta 118 milljóna styrk úr Ísland ljóstengt-verkefninu. Svo leggur sveitarfélagið heilmikið til og þeir sem tengjast kerfinu greiða 250.000 króna tengigjald sem er sambæri- legt við að taka inn vatn eða raf- magn. Tengigjaldinu er stillt eins mikið í hóf og kostur er,“ segir Ágúst. Tengigjaldið er niðurgreitt af sveitarfélagi og ríki og þessi kjör því aðeins í boði fyrir íbúa og fyrirtæki í dreifbýli sveitarfélagsins. Útboð væntanlegt Verið er að leggja lokahönd á und- irbúning framkvæmda. „Núna erum við að klára þátttökulista til að sjá hvernig lokahönnun lítur út. Síðan verður farið í útboð á jarðvegshluta verkefnisins sem við ætlumst til að klárist á þessu ári,“ segir Ágúst en hægt verður að tengja fyrstu húsin við ljósleiðarann um leið og jarð- vinnu við lagningu er lokið. Rangárþing ytra stofnar nýtt félag um ljósleiðara  Rangárljós mun annast lagningu grunnnets  Mikil eftirspurn eftir tengingu Morgunblaðið/Benjamín Grafinn Ljósleiðarar eru yfirleitt lagðir í jörð, oft samhliða rafmagnslínum. Í hverjum streng eru tugir eða hundr- uðir ljósleiðara, vafðir í streng og varðir með þykku plasti og þeir eru því áþekkir öðrum jarðstrengjum í útliti. Már Guðmunds- son seðla- bankastjóri sótti ársfund Alþjóða- greiðslubankans í Basel í Sviss á sunnudag. Á fundinum gerði Jaime Caruana, aðalfram- kvæmdastjóri Alþjóðagreiðslubankans, grein fyr- ir meginskilaboðum ársskýrslu bankans. Samkvæmt skýrslunni stendur aðlögun heimsbúskaparins í framhaldi af fjármálakreppunni og efnahagssamdrættinum sem fylgdi í kjölfarið enn yfir. Hag- vöxtur hefur að undanförnu verið ójafn en er þó yfir sögulegu með- altali ef leiðrétt er fyrir fólks- fjöldaþróun. Hagvöxtur yfir sögu- legu meðaltali Már Guðmundsson Ljósleiðarar eru í raun grannir þræðir á gildleika við mannshár sem gerðir eru úr gleri eða plasti. Þeir eru mun afkastameiri en eldri tegundir símalína og því hef- ur notkun þeirra í för með sér mun hraðari nettengingu. Ljósleiðaratenging er nú fyrir hendi í meirihluta þétt- býlis á landinu. Lagning ljósleiðara í dreifbýli er þó kostnaðarsamari og ekki eins arðbær vegna fárra not- enda á löngum línum. Því hafa einkarekinn félög ekki sýnt því áhuga að leggja ljósleiðara á landsbyggðinni. Rangárþing ytra er ekki fyrsta sveitarfélagið sem fer þá leið að leggja ljósleiðara sjálft enda mikil eftirspurn eftir betri net- tengingu. „Það er framtíðin að hafa góðar nettengingar, það er kallað eft- ir betri tengingum og það kemur ekkert í staðinn fyrir ljósleiðara í þeim efnum. Öræfingar riðu á vaðið og lögðu ljósleiðara til sín. Nágrannar okk- ar í Ásahreppi eru svo nýbúnir að klára ljósleiðaralagningu,“ segir Ágúst. Af hverju að leggja ljósleiðara? MÖRG SVEITARFÉLÖG ANNAST LAGNINGU LJÓSLEIÐARA SJÁLF Ágúst Sigurðsson Heimsmeistaramót skáksveita, 50 ára og eldri fer nú fram í Dresden í Þýskalandi og hafa Íslendingar verið sigursælir á mótinu. Íslensku sveit- ina skipa Jóhann Hjartarson, Helgi Ólafsson, Margeir Pétursson, Jón L. Árnason og Friðrik Ólafsson. Sveit þeirra heitir Gullaldarlið Íslands og keppir í ungliðaflokknum 50 ára og eldri en eldri flokkurinn er fyrir 65 ára og eldri. En hvað kom til að ís- lenska sveitin fór út? „Þetta lið tefldi saman á Evrópumóti landsliða í Laugardalshöllinni í fyrra og skemmti sér svo vel að það ákvað að setja þetta mót á dagskrá. Þeir eru á lista yfir þrjár til fimm sterkustu sveitirnar á mótinu og eina sveitin sem hefur á að skipa núverandi landsmeistara en Jóhann Hjartar- son vann Íslandsmótið um daginn,“ segir Gunnar Björnsson, forseti Skáksambands Íslands. Gullaldarsveitn enn ósigruð Hann segir íslenska liðinu hafa gengið afar vel það sem af er mótinu en þeir hafa unnið fyrstu þrjár við- ureignir sínar og eru því í toppbar- áttu. „Margeir Pétursson sýndi snilldartakta í skemmtilegri viður- eign við þýskan andstæðing sinn í gær og bar sigur af hólmi. Aðrir í sveitinni gerðu jafntefli og íslenska liðið vann því viðureignina með tveimur og hálfum vinningi gegn ein- um og hálfum. Í fjórðu umferð sem fram fer í dag mætir íslenska sveitin þýsku sveitinni Emanul-Lasker Ge- sellschaft sem hefur gamla sovéska landsliðsmanninn Artur Yusupov á fyrsta borði en hann var eitt sinn meðal bestu skákmanna í heimin- um,“ segir Gunnar. Það er því ljóst að það er æsispennandi viðureign framundan í dag. elvar@mbl.is Áfram sigursæl- ir á stórmótinu  Gullaldarliðið keppir fyrir Ísland Morgunblaðið/Golli Skák Jóhann Hjartarson tekst á við meistarann Artur Yusupov í dag.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.