Morgunblaðið - 29.06.2016, Síða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 2016
Tekist hefur að
gera við annan
flugritann úr far-
þegaþotu
EgyptAir, sem
hrapaði í Mið-
jarðarhaf í síð-
asta mánuði, en
hann var nýverið
sendur til Frakk-
lands til við-
gerðar. Flugrit-
arnir fundust um mánuði eftir að
vélin hrapaði og löskuðust minn-
isflögur þeirra mjög við langa dvöl
í söltum sjónum.
„Franskir sérfræðingar hafa
gert við annan flugritann og munu
viðgerðir á hinum hefjast á morgun
[í dag],“ hefur fréttaveita AFP eftir
sérfræðingi á sviði flugslysarann-
sókna í Frakklandi.
Samkvæmt upplýsingum frá rad-
arkerfum tók farþegavélin krappa
beygju, um 90 gráður, og sendu
flugmenn hennar engin neyðarboð
áður en vélin skall í hafið.
MIÐJARÐARHAF
Gátu gert við annan
flugrita EgyptAir
Í geymslu Óljóst
er hvað gerðist.
„Egyptaland er
að verða að
brottfararlandi,“
segir Fabrice
Leggeri, yfir-
maður Landa-
mærastofnunar
Evrópu, Frontex,
í samtali við
fréttaveitu AFP
og vísar í máli
sínu til þess
mikla fjölda flóttafólks sem valið
hefur Egyptaland sem síðasta
áfangastað sinn áður en farið er til
meginlands Evrópu.
Það sem af er þessu ári hafa yfir
1.000 flóttamannabátar siglt til
Ítalíu frá Egyptalandi. „Þessi leið,
sem er mjög hættuleg, er að verða
afar vinsæl. Ferðin tekur oft yfir 10
daga og á henni eru fá skip sem
bjargað geta flóttamönnum úr haf-
inu ef bátur þeirra ferst,“ segir
Leggeri. Minnst 10.000 manns hafa
drukknað á Miðjarðarhafi frá 2014.
EGYPTALAND
Ný leið flóttafólks
veldur áhyggjum
Óhult Flóttafólk
flutt í land á Ítalíu.
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Íraski herinn vann stórsigur á Ríki
íslams síðastliðinn sunnudag þegar
borgin Fallujah var frelsuð úr klóm
vígasamtakanna. Hafði Fallujah þá
verið á valdi Ríkis íslams frá árinu
2014, en fall hennar var gríðarlegt
áfall fyrir írösk stjórnvöld enda
borgin notuð sem bækistöð fyrir
skæruárásir vígamanna á höfuð-
borgina Bagdad.
Tugþúsundir íbúa hafa yfirgefið
borgina undanfarna mánuði og er nú
óvíst hversu stór hluti mun snúa
þangað aftur. Umm Issam er 42 ára
gömul og fyrrverandi íbúi í Fallujah.
Hún segist aldrei vilja flytja þangað
aftur.
Fallujah þolað margt yfir árin
„Sonur minn bað mig um að drepa
sig vegna þess hve svangur hann
var. Hann þoldi þetta bara ekki leng-
ur. Hann sagði þetta og hann er bara
fimm ára,“ sagði Issam við frétta-
mann AFP, en þau ræddu saman í
flóttamannabúðum skammt utan við
borgina.
Fyrir fáeinum mánuðum, þegar
borgin var enn á valdi Ríkis íslams,
var Issam flutt á sjúkrahús þar sem
hún missti fóstur. „Ég var svo
hrædd, það var algert stjórnleysi.
Ég missti þar fóstur. Ég missti tví-
burana mína af því að ég var flutt á
sjúkrahús vegna þess að ég fékk
hvergi mat,“ sagði hún við frétta-
mann AFP og hélt áfram:
„Ég vil ekki fara þangað aftur.
Borgin hefur gengið í gegnum svo
margt – Bandaríkjamenn, al Kaída,
Ríki íslams og hungursneyð. Og ég
veit ekki hvað tekur við næst en það
hvílir bölvun yfir borginni. Ég ætla
ekki að fara þangað aftur.“
Í sömu flóttamannabúðum má
einnig finna Kefieh Saleh og fjöl-
skyldu hennar. Þau virðast einnig
hafa gert upp hug sinn og ætla að lík-
indum ekki að snúa heim aftur.
„Hverfið okkar er ekki öruggt og ég
hef ekki trú á því að það skáni nokk-
uð,“ sagði hún í samtali við AFP.
„Bölvun hvílir yfir borginni“
Vopnuðum átökum í Fallujah lauk með sigri íraskra hersveita Tugþúsundir
hafa flúið borgina Ég vil ekki fara þangað aftur, sagði fyrrverandi íbúi þar
AFP
Stríðsátök Stór hluti Fallujah í Írak er rústir einar eftir langvarandi vopnuð átök og er óvíst með framtíð hennar.
Varnarmálaráðuneyti Rússlands
sakar bandaríska tundurspillinn
USS Gravely um að hafa siglt of
nærri rússnesku freigátunni Yar-
oslav Mudry fyrr í þessum mánuði,
en skipin voru þá á Miðjarðarhafi.
„Hinn 17. júní í austurhluta Mið-
jarðarhafs fór bandaríski tundur-
spillirinn USS Gravely hættulega
nálægt rússnesku herskipi, um 60
til 70 metra frá vinstri hlið, og
sigldi í veg fyrir það,“ segir í til-
kynningu frá ráðuneytinu. Segir
varnarmálaráðuneytið rússneska
skipið hafa verið á alþjóðlegu haf-
svæði þegar atvikið átti sér stað.
Þá halda Rússar því fram að með
aðgerð sinni hafi bandaríska her-
skipið brotið alþjóðalög er það
sigldi í veg fyrir hið rússneska.
Liðnir eru um tveir mánuðir frá
því að rússneskar orrustuþotur
ögruðu bandarísku herskipi með
því að fljúga mjög nálægt því.
Tundurspillir sigldi í
veg fyrir herskip
AFP
Sjóherinn Tundurspillirinn USS William P. Lawrence, sem hér sést, er
sömu gerðar og það skip sem á að hafa siglt of nálægt rússnesku herskipi.
Leiðtogar Evrópuþingsins munu í
dag funda með Nicola Sturgeon, for-
sætisráðherra skosku heimastjórnar-
innar, til að ræða þá stöðu sem komin
er upp eftir að Bretar samþykktu í
þjóðaratkvæðagreiðslu að segja skilið
við Evrópusambandið.
Fréttaveita AFP hefur eftir Stur-
geon að hún sé reiðubúin til að stíga
„öll nauðsynleg skref“ til að tryggja
að Skotland verði áfram hluti af Evr-
ópusambandinu. En meirihluti Skota,
eða um 62%, greiddi með áframhald-
andi aðild Bretlands að sambandinu á
meðan um 52% Breta kusu hins vegar
að segja skilið við Evrópusambandið.
Rödd Skotlands mun heyrast
Mun hún meðal annars funda með
Martin Schulz, forseta Evrópuþings-
ins, en jafnframt mun Sturgeon ræða
stöðu Skotlands við Jean Claude-
Juncker, forseta framkvæmdastjórn-
ar Evrópusambandsins. „Það er á
mína ábyrgð að tryggja að rödd Skot-
lands heyrist í Evrópu og ég ætla að
sjá til þess að svo verði,“ sagði hún við
AFP.
AFP
Brexit Hin skoska Nicola Sturgeon segir landa sína ekki vera á útleið.
Skotar vilja ekki
ganga út úr ESB
Fundað verður um stöðu Skota í dag