Morgunblaðið - 29.06.2016, Side 29

Morgunblaðið - 29.06.2016, Side 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 2016 Bíla- og vélavörur ...sem þola álagið! Það borgar sig að nota það besta! Viftur HjólalegusettKúlu- og rúllulegur Hemlahlutir Hjöru- og öxulliðir Stýrisendar og spindilkúlurViftu- og tímareimar Kúplingar- og höggdeyfar Dalvegi 10–14 • 201 Kópavogi • Sími: 540 7000 • www.falkinn.is Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Viðræður við ástvin gætu borið góð- an árangur í dag. Líttu í eigin barm og vittu hvort orsaka ágreinings er ekki að leita þar. Með öðrum orðum réttu fram sáttahönd. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú þarfnast meiri hvatningar og stuðnings en ekki meiri gagnrýni. Athugaðu hvort eitthvað sé bogið við þær aðferðir sem þú notar í uppeldinu. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Leyfðu vinum þínum að sýna þér þakklæti fyrir það sem þú hefur fyrir þá. Ekkert varir að eilífu. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú gætir komið auga á tækifæri til þess að vinna þér inn peninga á óvenjulegan hátt. Veittu sjálfri/sjálfum þér tækifæri til að njóta lista og fegurðar. Sæktu sýningar og tónleika, það auðgar andann. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það er ekki gott fyrir heimilislífið að taka vinnuna með sér heim. Þú bíður svara við spurningu sem hefur brunnið á þér lengi. Einhver fer undan í flæmingi. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það opnar þér ýmislegt nýtt hversu auðvelt þú átt með að skilja aðstæður ann- arra. Samskipti innan fjölskyldunnar eiga eftir að batna mikið á næstu mánuðum, það er þinni baráttu að þakka. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú hefur tilhneigingu til að vantreysta þér og ættir að forðast það og fara eftir sannfæringu þinni. Fólk tekur eftir þér. Því verður þú að leika þitt hlutverk af kost- gæfni. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Manneskjan sem ýtir undir létt- lyndi þitt og óbælda hegðun er svo sann- arlega góður vinur. Mundu bara að tala skýrt og skorinort svo enginn þurfi að velkj- ast í vafa um tilgang þinn. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Samskipti kynjanna eru svo sannarlega hárfín list. Ef þú hringir símtölin sem hafa fengið að bíða, og ræðst á bréfa- bunkann á borðinu finnurðu eitthvað óvænt. 22. des. - 19. janúar Steingeit Ábyrgðin sem blasir við þér er kannski ekki margslungin, en þú ert eina manneskjan sem stendur undir henni. Þú veist að þú færð ekki svar við spurningu nema þú spyrjir. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Láttu ekki slúður vinnufélaganna hafa áhrif á þig. Mundu að til þess að sam- bandið gangi verður þú að henta maka þín- um ekki síður en hann þér. Fiskar Íhugaðu vandlega allar beiðnir sem þú færð um aðstoð. Sýndu þolinmæði og láttu aðra ekki slá þig út af laginu. Kristján Eiríksson spurði á Leir ásunnudag hvort menn þekktu höfund þessarar vísu: Hverjir ríða að Hlemmiskeiði ? Hillir undir Jón í Strillu, Hans í Ertu, Högna í Tortu, Helgu ljósu í Andrésfjósum. Hokin ríður Vala í Vola, Vælugerðis-Salka skælir. Jón í Roðgúl reifur og glaður rabbar hátt við Snjólf í Nabba. Ekki veit ég höfund vísunnar né þekki bæjarnöfnin nema fjögur kannski. Nabbi er eyðibýli suð- vestur af Stóru-Sandvík. Og Roð- gúll er á Stokkseyri. Mér er sagt að Guðjón í Roðgúl hafi verið orðinn svo máttfarinn á kjördegi að það varð að bera hann á kjörstað til að kjósa íhaldið. Og fyrir aldarfjórð- ungi eða svo bjó þar Steingrímur Sigurðsson, listmálari og rithöf- undur. Aðeins eitt þessara bæjarnafna er nefnt í Landnámu og Flóamanna- sögu, – Vælugerði í Flóa. Ásgeir Blöndal Magnússon skýrir nafnið svo, að forliðurinn sé vísast í ætt við Váll og Voli, sbr. no. væle kv. „dyngja, viðarhrúga“, og væla s. „safna skógargróðri, trjám og greinum og gera bál úr“. Hlemmiskeið er í Skeiðahreppi, Strilla í Biskupstungnahreppi, Erta í Selvogshreppi, Torta í Biskups- tungnahreppi, Andrésfjós í Skeiða- hreppi og Voli í Hraungerðishreppi. Fía á Sandi sagði á Leirnum í gær, að það væri hárrétt hjá Ólafi að hér væri mikill letigarður og hún lötust garðbúa. – „Ég er enda efn- islaus. Hlusta ekki á fréttir, hef ekki vit á bolta og búin að fá upp í kok af að yrkja um brennivín. Ekki neitt að yrkja finnst aðstaðan er snúin. Frétt ég hef af fréttum minnst og forsetarimman búin.“ Hafsteini Reykjalín liggur mikið á hjarta. – „Koma svo, já koma svo,“ skrifar hann mér og bætir við: Hress og frísk nú hefjum störf, hér mun verða gaman. Gerum það af gildri þörf að gleðjast í Nice saman. Hérna verður hörku fjör, í huga sigur finnum. Sigrum hverja sóknar för, við síðar gullið vinnum. Koma svo, já, koma svo, klárir leikmenn þora. Kátt í höll, klöppum öll, koma svo og skora. ÁFRAM ÍSLAND!“ Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Bæjarnöfn úr Árnessýslu og áfram Ísland Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ÉG GÆTI BJARGAÐ HEIMINUM HVAÐ ERTU AÐ REYNA AÐ SEGJA MÉR, HNOÐRI? MJÁ! MJÁ! MJÁ! MJÁ! MJÁ! MJÁ! HVAÐ SEGIRÐU, HNOÐRI? ÉG VILDI AÐ ÉG SKILDI ÞIG, HNOÐRI HANN SEGIST HATA AÐ VERA KALLAÐUR „HNOÐRI“. ÉG SEGI AÐ VIÐ HORFUMST Í AUGU VIÐ ENDALOKIN Á LJÓÐRÆNAN HÁTT… OK! KANNTU EINHVERJA HAIKU? „ÉG ER EINN AF ÞEIM SEM REYNA ALLTAF AÐ HORFA Á STÓRU MYNDINA – EN ER Á LEIÐINNI BEINT Á DVD“ „HVAÐ SEGIRÐU?“ ... Öxl til að styðjast við Umhverfisvernd er Víkverja hug-leikin. Til að leggja sitt af mörk- um flokkar fjölskyldan heimilissorp og við það hefur umhverfisvitundin aukist og vörur, sem pakkað er inn í miklar umbúðir, eru sniðgengnar. x x x Svona flokkun kemst fljótt upp ívana og manni fer að þykja óþægilegt að henda einhverju sem mætti fara í endurvinnsluna. Nú er óhreint plast þvegið og þurrkað, pappír fer í pappírstunnuna og um- búðir með skilagjaldi í endurvinnslu. Þá hefur allur úrgangur frá bygg- ingaframkvæmdum verið flokkaður, svo sem timbur, járn, olíur og leysi- efni. Að ógleymdri moltugerðinni. x x x Víkverji nýtir sér eina tunnu fráReykjavíkurborg fyrir almennt heimilissorp og aðra fyrir pappír. Þessar tunnur duga tveimur fjöl- skyldum ágætlega. Aukatunna fyrir plast var afþökkuð og þess í stað komið upp þeirri rútínu að safna plastinu saman í innkaupapoka sem fær að fljóta með í bílnum og er hent í grenndargám u.þ.b. vikulega. x x x Nú hefur gömlu gámunum veriðskipt út fyrir nýja gáma með hringlaga opi. Gömlu gámarnir voru með hlera sem hægt var að lyfta. Þeir voru reyndar allt of oft svo fullir að vart var hægt að troða ofan í þá. Í síð- ustu ferð komst Víkverji að því að op- ið á nýju gámunum er svo lítið að hinn vikulegi haldapoki kemst ekki inn um það. Ekki var um neitt annað að ræða en tína ruslið upp úr pokanum og pota því ofan í, einu í einu. Þetta fór óstjórnlega í taugarnar á Víkverja, sem hugsaði með hryllingi til vetr- arins og sá sig í anda híma krók- loppinn fyrir framan plastgáminn og mata hann á plasti. Líklega hefur þetta nýja „viðmót“ á plastgámnum verið nauðvörn hjá borginni því gömlu gámarnir voru oft svo troðnir að ekki var hægt að loka þeim og ruslið fauk út um allt. Það er spurn- ing hvernig fólk bregst við þegar það getur ekki lengur þjappað ofan í gám- inn. Enda ruslapokarnir ekki bara við hliðina á gámunum og fjúka svo burt? Lausnin í huga Víkverja hefði að sleppa þessari endurhönnun og tæma gömlu gámana oftar. víkverji@mbl.is Víkverji Því hvar sem fjársjóður þinn er þar mun og hjarta þitt vera. (Matt. 6:21)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.