Morgunblaðið - 08.07.2016, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 2016
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Foreldrahópur gigtveikra barna blés í gær til ár-
legrar sumarhátíðar á Barnaspítala Hringsins
við góðar undirtektir. Hátíðin er fyrir öll börn
sem eru á spítalanum, fjölskyldur þeirra og
starfsfólk. Skoppa og Skrítla hleyptu hátíðinni
af stað og léttu lund allra viðstaddra en á meðan
grillaði Hamborgarafabrikkan bragðgóða ham-
borgara fyrir mannskapinn. Börnin fengu svo að
lokum ís til að kæla sig niður í sólinni.
Gerðu sér glaðan dag á Barnaspítalanum
Morgunblaðið/Þórður
Foreldrahópur gigtveikra barna stóð að sumarhátíð á Barnaspítala Hringsins
Elvar Ingimundarson
elvar@mbl.is
„Mér finnst þetta sorglegt, svona er
ekki hægt að líða,“ segir Guðmundur
Kristjánsson útgerðarmaður um
niðurstöðu aðalfundar Vinnslu-
stöðvarinnar hf. sem haldinn var á
miðvikudaginn.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins spruttu upp miklar deilur á
fundinum þegar kjósa átti stjórnar-
menn í aðalstjórn og varastjórn. Var
atkvæðaseðlum dreift til fundar-
manna og hafði hver maður atkvæði í
samræmi við eign sína í félaginu.
Deilur hófust eftir talningu
Þegar talningu var lokið kom í ljós
að tvær konur og tveir karlar voru
komin í aðalstjórn en tveir menn voru
jafnir um fimmta sætið. Einnig kom í
ljós að einn atkvæðaseðill hafði ekki
skilað sér í kjörkassa. Hófust þá deil-
ur um það hvort kasta ætti hlutkesti
um það hver yrði fimmti maður í
stjórn eða hvort hluthafafundur ætti
að ákveða það. Var fundarstjóri þá
kallaður til að kveða upp úr um það en
ákvað hann þess í stað að ógilda kosn-
inguna þegar ljóst varð að einn at-
kvæðaseðill hafði ekki skilað sér til
talningar.
Ákvað að ógilda kosninguna
„Það sem kom upp var að afhentir
atkvæðaseðlar og greidd atkvæði
stemmdu ekki. Það kom síðan í ljós að
einn hluthafi sem hafði greitt atkvæði
hafði ekki skilað því í kjörkassa. Ég
úrskurðaði því að endurtaka þyrfti at-
kvæðagreiðsluna og útbúnir voru nýir
kjörseðlar. Ástæðan fyrir því að ég
úrskurðaði í þessa veru er að það er
mjög mikilvægt að úrslit kosninga
endurspegli vilja hluthafanna og við
talningu kom í ljós að einn hluthafi
hafði greitt atkvæði en ekki sett það í
kassann,“ segir Arnar Sigurmunds-
son fundarstjóri.
Ósáttir við ákvörðun
fundarstjóra
Guðmundur Kristjánsson, einn eig-
enda Stillu ehf. sem á um fjórðungs-
hlut í Vinnslustöðinni hf., er ekki sátt-
ur við þá ákvörðun fundarstjóra að
ógilda kosninguna, en ógildingin olli
því að hann datt úr stjórninni.
„Þarna var brotið á grundvallar-
reglu lýðræðisins, þú getur ekki ógilt
kosningu af því að þér líkar ekki
niðurstaðan,“ segir Guðmundur.
Hann segir virðast sem einhverjir
hluthafar hafi ekki kosið í kosningu til
stjórnar. Þá hafi verið gengið á þá og
þeir spurðir hvort þeir hefðu ekki
greitt atkvæði. Talningu hafi þá verið
lokið og ekki ástæða til ógildingar.
Hart deilt um niðurstöðu kosninga
Deilur komu upp á aðalfundi Vinnslustöðvarinnar hf. í Vestmannaeyjum Ósætti um ógildingu
stjórnarkosninga Sumir hluthafar afar óánægðir Fundarstjóri segir fundinn hafa verið rólegan
Ljósm/Skúli Már Gunnarsson
Átök Deilur urðu á aðalfundi Vinnslustöðvarinanr hf. í Vestmannaeyjum.
Samkeppniseftirlitið hefur lagt
480 milljóna króna stjórnvaldssekt
á Mjólkursamsöluna vegna alvar-
legra brota á samkeppnislögum. Í
ákvörðun eftirlitsins kemur fram
að MS hafi misnotað markaðs-
ráðandi stöðu sína með því að selja
keppinautum grundvallarhráefni
til framleiðslu á mjólkurvörum á
óeðlilega háu verði.
Á sama tíma fékk MS sjálft og
tengdir aðilar þetta hráefni á mun
lægra verði og að auki undir
kostnaðarverði.
Mjólkurbúið kærði MS til Sam-
keppniseftirlitsins árið 2013 eftir
að það varð þess áskynja að keppi-
nautur þess, Mjólka, greiddi um-
talsvert lægra verð fyrir hrámjólk.
Samkeppniseftirlitið hafði áður
úrskurðað í málinu en áfrýjunar-
nefnd samkeppnismála sendi það
til baka til eftirlitsins til úrskurðar
þar sem MS hafði lagt ný gögn
fyrir nefndina. Í úrskurði sínum
segir Samkeppniseftirlitið að skýr-
ingar hafi verið bæði á reiki og
rangar.
„Munum leita réttar okkar“
„Við teljum sem fyrr að þessi
úrskurður byggi á röngum skiln-
ingi samkeppnislaga og búvöru-
laga og fái ekki staðist. En nú fá
æðri stjórnvöld að úrskurða um
það þegar þessu verður áfrýjað til
áfrýjunarnefndar,“ sagði Ari Ed-
wald, forstjóri MS, í samtali við
mbl.is í gær. „Við munum ekki una
þessum úrskurði.“
Ólafur M. Magnússon, fram-
kvæmdastjóri mjólkurbúsins Kú,
segist sleginn yfir því hversu þræl-
skipulögð markaðsmisnotkun
Mjólkursamsölunnar hefur verið.
„Það er alveg ljóst að við mun-
um leita réttar okkar. Þeir hafa
valdið okkur mjög miklum skaða,“
segir Ólafur.
MS hafi misnotað stöðu sína
Morgunblaðið/Kristinn
Stjórnvaldssekt Mjólkursamsalan
misnotaði markaðsráðandi stöðu.
Samkeppniseftir-
litið sektar MS um
480 milljónir
Ökumaður bifhjóls sem lenti í
árekstri við vörubifreið með festi-
vagn í gærmorgun lést í gær. Þetta
kom fram í tilkynningu frá lög-
reglustjóranum á Suðurnesjum.
Tilkynnt var um umferðarslys á
mótum Reykjanesbrautar og
Hafnarvegar í Reykjanesbæ til lög-
reglu klukkan 7.09 í gærmorgun.
Ökumaðurinn bifhjólsins, karl-
maður á fertugsaldri, var úrskurð-
aður látinn á vettvangi. Ekki er unnt
að birta nafn hans að svo stöddu.
Ekki urðu slys á ökumanni og far-
þega í vörubifreiðinni.
Lögreglan á Suðurnesjum vinnur
að rannsókn á tildrögum slyssins
með aðstoð tæknideildar lögregl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu.
Ökumaður
bifhjóls lést
í árekstri
Ekki urðu slys á
ökumanni vörubílsins
Slys Áreksturinn átti sér stað í gær.
Söluaðilar:
10-11, Hagkaup, Iceland verslanir, Kostur, Kvosin, Melabúðin, Nettó,
Samkaup, Pure Food Hall flugstöðinni Keflavík, Sunnubúðin.
Graflaxinn okkar hlaut 1. verðlaun!
Grafinn með
einstakri
kryddblöndu
hefur þú smakkað hann?
2 0 1 6