Morgunblaðið - 08.07.2016, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 2016
„Mér líst vel á það og er að vona að
eitthvað af þessu náist í gegn og við
náum einhvers konar samkomulagi
og lendingu á þinginu,“ segir Ró-
bert Marshall, þingmaður Bjartrar
framtíðar og fulltrúi hennar í
stjórnarskrárnefndinni, spurður
hvort honum hugnist að leggja
frumvörpin þrjú til breytinga á
stjórnarskrá fram á komandi sum-
arþingi.
Ekki sé ástæða til að hafa áhyggj-
ur af knöppum tíma sem fengist til
afgreiðslu málsins. „Það á alveg að
vera hægt að gera það en það er bú-
ið að vinna þetta gríðarlega mikið og
mjög mikið af efni liggur til grund-
vallar því sem búið er að gera,“ bæt-
ir hann við þó svo að tillögurnar séu
ekki öllum að skapi. „Þannig er það
þegar verið að er að gera stjórn-
arskrá – menn verða að vera til-
búnir að slá af ítrustu kröfum sínum
og gera sér grein fyrir því að þetta
þarf að vera samkomulagsatriði.“
Langt yfir sársaukamörk
„Það var ekki samstaða í nefnd-
inni og sjálf hef ég sagt áður að
þessi málamiðlun sem hefur komið
út úr þessari
nefnd hefur farið
langt yfir mín
sársaukamörk,“
segir Valgerður
Bjarnadóttir,
þingmaður Sam-
fylkingarinnar og
fulltrúi hennar í
stjórnarskrár-
nefndinni, um
frumvörpin þrjú
til stjórnskip-
unarlaga. „Þessi nefnd hefur skilað
niðurstöðum og síðan tekur pólitíkin
við.“
Helgi Hrafn Gunnarsson, þing-
maður Pírata, vildi ekki tjá sig sér-
staklega um frumvörp stjórnar-
skrárnefndar en sagði að þessi mál
yrðu rædd þegar þing kæmi saman.
Verða að vera tilbúin að slá
af ítrustu kröfum sínum
Róbert
Marshall
Helgi Hrafn
Gunnarsson
Valgerður
Bjarnadóttir
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Stjórnarskrárnefnd hefur afhent
forsætisráðherra frumvörp til
stjórnarskipunarlaga að nýjum
ákvæðum í stjórnarskrá um þrjú til-
tekin efni. Þau fjalla um þjóðareign
á náttúruauðlindum, umhverfis- og
náttúruvernd og þjóðaratkvæða-
greiðslur að kröfu hluta kjósenda.
Sigurður Ingi Jó-
hannsson, for-
sætisráðherra,
segir ánægjulegt
að nefndin sé bú-
in að skila þess-
um tillögum af
sér, en að þeim
hafi verið unnið
býsna lengi.
„Ég held að
það sé nauðsyn-
legt að kanna
hvort ekki sé skynsamlegt að reyna
að leggja þetta fyrir þingið núna í
sumar því að vilji menn koma þess-
um ákvæðum inn í stjórnarskrá þá
er tækifæri núna og langt í að næsta
tækifæri opnast“ segir Sigurður
Ingi. Hann vísar þar til þess að
breytingarnar þyrfti að samþykkja
á yfirstandandi þingi og síðan að
nýju á þingi eftir kosningar.
Hann segir að tillögur nefndar-
innar séu niðurstaða málamiðlana á
milli ólíkra hópa til að ná sem víð-
tækastri samstöðu, þó að vissulega
fylgi sérbókanir niðurstöðunni.
Spurður um það atriði að 15% kosn-
ingarbærra manna geti knúið fram
þjóðaratkvæðagreiðslu um lög frá
Alþingi segir hann að skiptar skoð-
anir séu um hver þröskuldurinn eigi
að vera. Þetta sé niðurstaða mála-
miðlana á milli allra flokka á þingi til
að ná sem víðtækastri sátt. „Ég held
að það væri tillögunnar virði að láta
á það reyna hvort við gætum náð að
ljúka þessu á síðsumarsþinginu,“
segir forsætisráðherra.
Hann segir áhugavert, og margir
hafi talað fyrir því, að það sé nauð-
synlegt að koma auðlindaákvæði inn
í stjórnarskrána sem og ákvæði um
þjóðaratkvæðagreiðslur og það ger-
ist með þessum tillögum. Sama eigi
við um þriðja þáttinn, sem fjalli um
náttúruna.
Hann segir ánægjulegt að þetta
verklag skuli hafa verið notað og
þessi niðurstaða liggi fyrir. Vinnu-
brögðin séu í samræmi við það sem
til að mynda nágrannar á Norður-
löndunum, t.d. Norðmenn, hafi við-
haft. Þeir hafi tekið afmarkaða
þætti fyrir í hvert sinn og endur-
skoðað stjórnarskrána með þeim
hætti.
Leiði aldrei til
varanlegs eignarréttar
Á heimasíðu forsætisráðuneytis-
ins er greint frá tillögum stjórnar-
skrárnefndar og meginefni frum-
varpanna.
Í frumvarpi um þjóðareign á nátt-
úruauðlindum er sett fram almennt
ákvæði um að auðlindir náttúru Ís-
lands tilheyri íslensku þjóðinni og
jafnframt kveðið á um meginfor-
sendur auðlindanýtingar. Mælt er
fyrir um þjóðareign á náttúruauð-
lindum og landsréttindum sem ekki
eru háð einkaeignarrétti.
Loks er sett skilyrði fyrir veitingu
heimilda til nýtingar auðlinda í eigu
ríkisins og í þjóðareign og kveðið á
um skyldu ríkisins til þess að taka að
jafnaði eðlilegt gjald fyrir og gæta
jafnræðis og gagnsæis. Tekið er
fram að slíkar heimildir leiði aldrei
til varanlegs eignarréttar eða óaft-
urkallanlegs forræðis yfir náttúru-
auðlindum eða landsréttindum í
þjóðareign.
Ábyrgð á vernd
náttúru og umhverfis
Í frumvarpi um umhverfis- og
náttúruvernd er mælt fyrir um að
ábyrgð á vernd náttúru og umhverfis
hvíli sameiginlega á öllum og að
verndin skuli grundvallast á varúð-
ar- og langtímasjónarmiðum með
sjálfbæra þróun að leiðarljósi. Einn-
ig segir að stuðlað skuli að því að fjöl-
breytni náttúrunnar sé viðhaldið og
vöxtur lífríkis og viðgangur tryggð-
ur.
Í frumvarpi um þjóðaratkvæða-
greiðslur að kröfu hluta kjósenda er
lagt til að 15% kosningarbærra
manna geti knúið fram þjóðarat-
kvæðagreiðslu um lög frá Alþingi.
Undanskilin eru þó fjárlög, fjárauka-
lög, lög um skattamálefni og lög sem
sett eru til að framfylgja þjóðrétt-
arskuldbindingum. Enn fremur er
mælt fyrir um að sama hlutfall kosn-
ingarbærra manna geti skotið álykt-
unum Alþingis um heimild til full-
gildingar á þjóðréttarsamningum til
þjóðaratkvæðis.
Til að hnekkja lögum eða ályktun í
þjóðaratkvæðagreiðslu þurfi meiri-
hluti að greiða atkvæði gegn tillögu,
sem jafnframt sé að minnsta kosti
25% kosningarbærra manna.
Frumvörpin þrjú eru í meginatrið-
um samhljóða þeim drögum sem
kynnt voru opinberlega 19. febrúar
síðastliðinn. Nefndarmenn voru ekki
á einu máli um það að hve miklu leyti
athugasemdir sem fram komu við
samráð kölluðu á breytingar á frum-
varpsdrögunum og einungis voru
gerðar þær breytingar sem allir
nefndarmenn gátu fallist á, segir á
vef forsætisráðuneytisins.
Páll Þórhallsson, skrifstofustjóri í
forsætisráðuneyti, er formaður
stjórnarskrárnefndar. Aðrir fulltrú-
ar í nefndinni voru tilnefndir af þeim
stjórnmálaflokkum sem sæti eiga á
Alþingi, fjórir af ríkisstjórnarflokk-
um og fjórir af stjórnarandstöðu.
Niðurstaða málamiðlana
Stjórnarskrárnefnd hefur afhent þrjár tillögur um breytingar á stjórnarskrá
Til skoðunar hjá forsætisráðherra að leggja frumvörpin fyrir þingið síðsumars
Morgunblaðið/Ómar
Breytingar Stjórnarskrárnefnd hefur skilað af sér frumvörpum til forsætisráðherra sem kveða á um breytingar á
stjórnarskránni. Sigurður Ingi vill athuga hvort skynsamlegt sé að leggja frumvörpin fyrir þingið í sumar.
Sigurður Ingi
Jóhannsson
„Það er gert ráð
fyrir mjög stuttu
sumarþingi og ég
á bágt með að sjá
að það sé raun-
hæft að afgreiða
efnismiklar
stjórnarskrár-
breytingar á
þeim tíma,“ segir
Birgir Ármanns-
son, þingmaður Sjálfstæðisflokks-
ins og fulltrúi hans í stjórn-
arskrárnefnd, um frumvörpin þrjú
til stjórnskipunarlaga sem stjórnar-
skrárnefnd hefur nú afhent for-
sætisráðherra, en til greina kemur
af hálfu forsætisráðherra að leggja
þau fram á sumarþingi sem hefst
um miðjan ágúst.
„Það hefur alltaf verið gert ráð
fyrir því að forystumenn allra
flokka á þingi ættu með sér samráð
um framhaldið – mér er ekki kunn-
ugt um að það hafi átt sér stað
enn,“ bætir hann við.
Telur hann einnig breytt stjórn-
málaástand setja störf nefndar-
innar í annað samhengi, en bæði
hafi starfstími nefndarinnar styst
og stjórnmálaflokkarnir séu nú all-
ir komnir í undirbúning fyrir al-
þingiskosningar, sem flýtt var um
sex mánuði. „Það er viðbúið að
flokkarnir muni hver fyrir sig
skerpa á áherslum sínum í stjórn-
arskrármálunum og það er álitamál
hvort það ferli verði til þess að
auka líkurnar á samkomulagi af
þessu tagi.“ laufey@mbl.is
Breytingar óraun-
hæfar á sumarþingi
Birgir Ármannsson
„Við erum að
ræða hér um
gríðarlega mikil-
vægt mál sem við
þurfum að vera
mjög raunhæf
með og það á
ekki að vera að
slá neinar pólit-
ískar keilur í
kringum það að
mínu viti heldur einmitt gefa okkur
góðan tíma “ segir Katrín Jakobs-
dóttir, formaður Vinstrihreyfingar-
innar – græns framboðs og fulltrúi
flokksins í stjórnarskrárnefndinni,
um möguleika þess að frumvörpin
þrjú sem nefndin hefur nú skilað
forsætisráðherra verði lögð fram til
afgreiðslu á komandi sumarþingi.
Telur hún raunhæfara að gera málið
að forgangsmáli eftir næstu kosn-
ingar.
Betra hefði verið ef niðurstaðan
hefði fengist fyrr í ferlinu og önnur
staða væri uppi ef kosningar væru á
hefðbundnum tíma.
„Það er mjög skammur tími og við
verðum að átta okkur á því að í
svona máli verður málfrelsið ekki
tekið af þingmönnum.“ laufey@mbl.is
Málfrelsið ekki tekið
af þingmönnum
Katrín Jakobsdóttir
Á vef forsætisráðuneytisins
má finna bókanir nefnd-
armanna stjórnarskrárnefndar
þar sem þeir fara yfir ýmis at-
riði sem ekki hlutu hljóm-
grunn í vinnu nefndarinnar.
Fulltrúar stjórnarandstöð-
unnar töldu að setja þyrfti
þriðju stoð Árósarsáttmálans
í ákvæðið um umhverfisvernd
og skilgreina hvert eðlilegt
gjald í auðlindaákvæðinu
væri.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins töldu synjunarþröskuld við
þjóðaratkvæðagreiðslur vera
of lágan ásamt hlutfalli kosn-
ingabærra manna sem færu
fram á slíka atkvæðagreiðslu.
Bóka ólíkar
skoðanir
STJÓRNARSKRÁRNEFND
BARNAGÆSLA
VERÐ1.250,-fyrir barniðSystkynaafsláttur25%
Barnapö
fyrir k
krakk
*3 ára og el
Börn geta dvalið í allt a
ssun
áta
a*
dri.
ð 2 klst. í sen
www.smarativoli.is / Sími 534 1900 / Smáralind
SKEMMTUN FYRIR ALLA!