Morgunblaðið - 08.07.2016, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 2016
Ekki formlegt útboð
„Því finnst okkur eðlilegt að há-
skólarnir á Íslandi sitji bara allir við
sama borð, hvað þetta varðar. Það er
skýringin á því að svona er staðið að
þessari auglýsingu. Ekki er um
formlegt útboð að ræða, heldur er
óskað eftir þátttökutilkynningum
frá þeim háskólum sem hafa áhuga,“
sagði menntamálaráðherrra.
Það kemur svo í hlut mennta-
málaráðherra að velja úr tilkynn-
ingum og semja við viðkomandi há-
skóla.
Aðspurður hvort hann teldi ekki
að háskólarnir hefðu skamman frest
til þess að undirbúa lögreglunám á
háskólastigi, þar sem skila þyrfti inn
þátttökutilkynningum eigi síðar en
22. júlí nk., sagði Illugi: „Jú, þetta er
skammur frestur, en hann ræðst af
því að lögin tóku gildi í júní og málið
kom fyrst inn á borð til okkar fyrir
rúmum fimm vikum eða svo.“
Telur alla háskóla landsins
eiga að sitja við sama borð
Að mati ráðherra geta allir háskólar óskað eftir því að bjóða upp á lögreglunám
Morgunblaðið/Eggert
Háskólanám Hér eftir verður nám lögreglumanna á háskólastigi. Enn liggur ekki fyrir í hvaða háskóla eða háskól-
um hér á landi verður boðið upp á lögreglunámið. Allir háskólar á Íslandi geta sent inn þátttökutilkynningu.
BAKSVIÐ
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Ríkiskaup, fyrir hönd mennta- og
menningarmálaráðuneytis, hafa aug-
lýst eftir hæfum aðilum til þátttöku í
auglýstu ferli um lögreglunám á há-
skólastigi. Ekki er um formlegt út-
boð að ræða.
Fram kemur á
heimasíðu Ríkis-
kaupa að bjóð-
endur skulu hafa
að lágmarki 10
ára reynslu við
rekstur háskóla
og viðurkenningu
mennta- og menn-
ingarmálaráð-
herra til kennslu á
sálfræði og lög-
fræði. Mögulegt sé að fleiri en einn
aðili bjóði saman í verkið. Skila-
frestur þátttökutilkynninga er til 22.
júlí nk.
Illugi Gunnarsson, mennta- og
menningarmálaráðherra, sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær að
vissulega væri óvenjulegt að svona
væri staðið að málum, þegar um nám
á háskólastigi væri að ræða.
Skólarnir ákveða námsframboð
„Að öllu jöfnu er menntamála-
ráðuneytið ekki að hlutast til um það
við háskóla hvort og hvaða nám þeir
bjóða upp á, það eru háskólarnir
sjálfir sem ákveða hvaða náms-
framboð þeir eru með,“ sagði Illugi.
Það var Ólöf Nordal innanríkis-
ráðherra sem lagði fram frumvarp í
vor um það að lögreglunám yrði fært
á háskólastig og varð frumvarpið að
lögum hinn 1. júní sl.
Illugi sagði að í framhaldi þess
hefði málið komið inn á borð mennta-
málaráðuneytisins. Þar hefði þetta
fyrirkomulag verið talið ágætt, í ljósi
þess að þarna væri framkvæmda-
valdið að hlutast til um það að há-
skólarnir byðu upp á ákveðið nám.
Illugi
Gunnarsson
Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands,
sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að mjög
líklegt væri að HÍ myndi senda inn þátttöku-
tilkynningu vegna fyrirhugaðs lögreglunáms á há-
skólastigi.
„Það er mjög líklegt að við sendum inn slíka
tilkynningu til Ríkiskaupa. Við sendum inn til inn-
anríkisráðuneytisins í desember í fyrra bréf um
það hvernig okkur í Háskóla Íslands litist á þetta
mál, en höfum reyndar heyrt mjög lítið þar til
þessi tilkynning frá Ríkiskaupum kom,“ sagði Jón
Atli.
Háskólarektor segir að það gæfist ekki góður tími til þess að
vinna svona þátttökutilkynningu, þar sem farið væri fram á ítar-
leg gögn um hvernig viðkomandi háskólar vildu að náminu yrði
háttað. Samt sem áður gerði hann ráð fyrir því að þátttöku-
tilkynning yrði send inn fyrir hönd HÍ.
Háskólinn tekur líklega þátt
REKTOR HÁSKÓLA ÍSLANDS
Jón Atli
Benediktsson
Alvarlegt slys varð við löndun úr togara á Skagaströnd um hádegisbilið í
gær. Þyrla Landhelgisgæslunnar var send til móts við sjúkrabíl og var
maðurinn sem slasaðist fluttur á Landspítalann.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins bar slysið þannig til að maðurinn
var ásamt öðrum við löndun úr togaranum. Verið var að hífa stæðu af
vörubrettum upp um lúgu þegar þau losnuðu eða ultu með þeim afleið-
ingum að vörubretti hrundu niður og skullu á manninum.
Maðurinn, sem er um fertugt, er ekki á gjörgæslu en Landspítalinn gat
ekki gefið frekari upplýsingar um líðan hans að svo stöddu.
Slys varð við löndun á Skagaströnd
Víða um land geta vegfarendur séð
bleikar heyrúllur prýða tún bænda,
en þær eru hluti söfnunarátaks
Krabbameinsfélagsins til að end-
urnýja tæki til brjóstamyndatöku, í
samstarfi við fyrirtækið Plastco og
fjölda söluaðila.
420 krónur af hverri seldri plast-
rúllu renna til félagsins en hver
rúlla dugar á 26 heyrúllur ef vafið
er sexfalt. Þó að bleiku plastrúll-
urnar séu eilítið dýrari í sölu en
aðrar, þá er metraverð þeirra tals-
vert lægra en hinna samkvæmt út-
reikningum Morgunblaðsins.
Kolbrún Silja Ásgeirsdóttir,
kynningar- og fjáröflunarstjóri fé-
lagsins, segir að meira en 600 þús-
und krónur hafi þegar safnast.
„Fólk virðist taka eftir þessu og
við höfum séð margar myndir á
samfélagsmiðlum síðan bændur
fóru að heyja,“ segir Kolbrún.
Krabbameinsfélagið heldur sam-
keppni um skemmtilegustu og
frumlegustu myndirnar af rúll-
unum í sumar. Til að taka þátt þarf
aðeins að láta myllumerkið #bleik-
rulla fylgja myndinni á Instagram.
sh@mbl.is
Bleikir akrar og slegin tún
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Rúllur Þessir hnoðrar voru afrakstur sláttarins í Mýrdalnum. Hafin er samkeppni um bestu myndirnar af rúllunum.
Volvo Penta á Íslandi | Brimborg • Bíldshöfða 6 • Sími 515 7070 • volvopenta.is
ÞÚ ERT Í ÖRUGGUM HÖNDUM
hjá volvo penta á íslandi
Öflug Volvo Penta þjónusta
Hjá Volvo Penta á Íslandi | Brimborg starfar framúrskarandi
teymi sem samanstendur af öflugum fagmönnum
Brimborgar og samstarfsaðilum um land allt.
Komdu í dag og ræddu við ráðgjafa.
HAFÐU SAMBAND Í DAG
• Sími: 515 7070
• Netfang: volvopenta@brimborg.is
• Ný heimasíða: volvopenta.is
Kauptu bestu varahlutina
Volvo Penta á Íslandi | Brimborg er með gott úrval varahluta
á lager og á mjög hagstæðu verði. Varahlutasérfræðingar
okkar veita þér fyrirtaksþjónustu og ráðgjöf við kaup.
Sjávarleður hf. er gjaldþrota, en
tilkynning þess efnis birtist í
Lögbirtingablaðinu fyrr í vikunni.
Sjávarleður og dótturfyrirtæki
þess, Loðskinn, framleiddu m.a.
leður úr fiskroði og loðgærur.
Framleiðslan fór fram í sútunar-
verksmiðjunni á Sauðárkróki, en
öllum þeim 20 starfsmönnum sem
störfuðu við framleiðsluna hefur
verið sagt upp.
Ástæður raktar til hruns
á sölu á mokkaskinnum
Kröfuhafar hafa farið fram á að
áfram haldist lágmarksfram-
leiðsla í fyrirtækinu um sinn svo
að hægt verði að standa við þær
skuldbindingar sem þegar eru
gerðar.
Að sögn Gunnsteins Björns-
sonar, fyrrverandi framkvæmda-
stjóra félagsins, má rekja ástæð-
ur gjaldþrotsins til hruns á sölu á
mokkaskinnum. „Þetta gjör-
samlega hrynur, nánast hverfur,
og þar af leiðandi líka verðmætið
í þeim birgðum sem að því snúa
og kippir grundvelli undan rest-
inni,“ segir Gunnsteinn, en félagið
seldi mikið af skinnum til Rúss-
lands.
„Þar er auðvitað viðskiptabann
að vissu leyti. Að auki fannst
Tyrkjum góð hugmynd að skjóta
niður rússneska orrustuflugvél
sem lokaði öllu á milli þeirra og
þá hafa Tyrkir komið inn á mark-
aðinn í Evrópu með lægra verð
og þá verður offramboð,“ segir
Gunnsteinn.
Vilja endurreisa þá hluta
félagsins sem gengu vel
Hann segir að unnið verði að
því að endurreisa þá hluta félags-
ins sem vel gengu. „Roðið hefur
gengið og við höfum líka framleitt
skrautgærur sem hafa gengið vel,
en bara ekki nógu vel til að vega
á móti þessu hruni. Það varð 95%
samdráttur í sölu.“ agf@mbl.is
Sjávar-
leður í
gjaldþrot
20 starfsmönnum
hefur verið sagt upp