Morgunblaðið - 08.07.2016, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 2016
Björn Bjarnason skrifar:
Þingmaður breska Íhaldsflokks-ins, Michael Dobbs, er höfundur
sögunnar House of Cards sem hann
skrifaði um bresk stjórnmál þegar
Margaret Thatcher var ýtt til hliðar
af flokksbræðrum hennar. Sagan er
kveikjan að hinum frægu sjónvarps-
þáttum um Underwood-hjónin í
Washington. Dobbs skrifar grein í
The Daily Telegraph í dag um valda-
baráttuna núna í Íhaldsflokknum.
Þar segir meðal annars:
Fyrir sex mánuðum, jafnvel fyriraðeins sex vikum virtist ekkert
geta hróflað við David Cameron,
vald hans var óskorað, hann sagðist
ætla að draga sig í hlé þegar honum
hentaði, að lokum var það atburða-
rásin og bestu vinir hans sem urðu
honum að falli. Launmorðingjarnir
Boris [Johnson] og Michael [Gove]
hafa eins og forverar þeirra Brutus
og Cassius [morðingjar Ceasars] og
[Michael] Heseltine og [Geoffrey]
Howe [morðingjar Thatcher] nú
þegar áttað sig á að ekki er unnt að
fela sig á bakvið blóði drifinn kufl.
Það sem við getum lært af sög-
unni ber undarlega líkt yfirbragð,
eina sem hefur breyst er aðferðin
við að taka mann af lífi. Við lifum á
tíma internetsins. Jesús var svikinn
með kossi. Boris með tölvubréfi.“
Lokaorðin vísa til þess að daginnáður en Michael Gove bauð sig
fram og gróf undan Boris var lekið
tölvubréfi frá eiginkonu hans þar
sem hún bað mann sinn að ganga úr
skugga um að Boris ætlaði að standa
við loforðin sem hann gaf fyrir þjóð-
aratkvæðagreiðsluna.“
Sönn spilaborg
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 7.7., kl. 18.00
Reykjavík 17 léttskýjað
Bolungarvík 12 léttskýjað
Akureyri 10 heiðskírt
Nuuk 5 léttskýjað
Þórshöfn 14 rigning
Ósló 18 skýjað
Kaupmannahöfn 18 skýjað
Stokkhólmur 21 heiðskírt
Helsinki 14 skýjað
Lúxemborg 19 léttskýjað
Brussel 23 léttskýjað
Dublin 20 léttskýjað
Glasgow 18 skýjað
London 21 heiðskírt
París 27 heiðskírt
Amsterdam 22 léttskýjað
Hamborg 20 skýjað
Berlín 24 heiðskírt
Vín 24 heiðskírt
Moskva 16 rigning
Algarve 21 heiðskírt
Madríd 31 heiðskírt
Barcelona 28 léttskýjað
Mallorca 31 heiðskírt
Róm 29 heiðskírt
Aþena 30 léttskýjað
Winnipeg 18 skýjað
Montreal 20 alskýjað
New York 31 skýjað
Chicago 25 skýjað
Orlando 32 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
8. júlí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:24 23:43
ÍSAFJÖRÐUR 2:37 24:40
SIGLUFJÖRÐUR 2:17 24:26
DJÚPIVOGUR 2:42 23:23
Neyðarlínan er með nokkur möstur
uppi á Bolafjalli, ofan Bolungarvík-
ur, og þar voru starfsmenn að sinna
viðhaldi í vikunni.
Veðurblíðan var slík að starfs-
mennirnar gátu verið léttklæddir.
Höfðu þeir á orði að það væri afar
óvenjulegt að geta farið upp í staur á
stuttermabol. Yfirleitt er svo vinda-
samt á fjallinu, sem er yfir 630 metra
hátt, að varla er stætt.
Á Bolafjalli var ein af fjórum rat-
sjárstöðvum sem Ratsjárstofnun rak
fyrir hönd Varnarliðsins. Ratsjár-
stöðin á Bolafjalli hóf rekstur 18.
janúar 1992 en hefur nú verið lokað.
Brattur akvegur liggur upp á fjallið,
sem hefur verið opinn bílum yfir
sumarmánuðina.
Ofan á fjallinu er rennislétt
hrjóstrug háslétta og er þar útsýni
til allra átta.
Viðhaldið á Bola-
fjalli í blíðuveðri
Ljósmynd/Áskell Þórisson
Bolafjall Starfsmenn Neyðarlínunnar að störfum á Bolafjalli.
Einar K. Guð-
finnsson, forseti
Alþingis, hefur að
höfðu samráði við
forsætisnefnd og
stjórnskipunar-
og eftirlitsnefnd
þingsins skipað
Kjartan Bjarna
Björgvinsson
héraðsdómara til
að stýra rann-
sókn á þátttöku þýska bankans
Hauck & Aufhäuser Privatbankiers
KGaA í kaupum á 45,8% eignarhlut
ríkisins í Búnaðarbanka Íslands hf.
o.fl. árið 2003.
Er skipunin til samræmis við
ályktun Alþingis frá 2. júní sl. Rann-
sókninni er ætlað að ljúka eigi síðar
en 31. desember nk. Samkvæmt
ályktuninni mun stjórnskipunar- og
eftirlitsnefnd einnig fara yfir fyrir-
liggjandi gögn og upplýsingar um
umfjöllun og ályktanir eftirlitsaðila
um söluna á Fjárfestingarbanka at-
vinnulífsins, Landsbanka Íslands og
Búnaðarbanka Íslands. Á grundvelli
niðurstöðu rannsóknarinnar og að
lokinni yfirferð sinni mun stjórn-
skipunar- og eftirlitsnefnd leggja
mat á hvort hún geri tillögu um frek-
ari rannsókn á sölunni.
Kjartan Bjarni
Björgvinsson
Kjartan
stýrir
rannsókn
Íshella 10 • 221 Hafnarfjörður • Sími 569 2100Mynd: Björgunarmiðstöð Hjálparsveitar skáta Kópavogi.
Þeir semgerakröfur
veljaHéðinshurðir
Fáðu tilboð í hurðina
Fylltu út helstu upplýsingar
á hedinn.is og við sendum
þér tilboð um hæl.