Morgunblaðið - 08.07.2016, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 2016
Flugvél sem átti að taka á loft frá
Keflavíkurflugvelli um níuleytið í
gærmorgun varð að fresta flugtaki
vegna ástands mála í flugturni.
Skv. upplýsingum frá Isavia var lík-
legt talið að ekki hafi tekist að fá
afleysingafólk fyrir flugumferðar-
stjóra í flugturninum. Fram kom á
mbl.is í gær að skv. heimildum
hefði flugstjórinn tilkynnt farþeg-
um að flugturninn væri nánast
mannlaus og því þyrfti vélin að bíða
úti á flugbraut í einhvern tíma.
Þjónusta á flugvellinum var tak-
mörkuð á ákveðnum tímum í gær
við sjúkra- og neyðarflug til að þeir
flugumferðarstjórar sem voru á
vakt gætu tekið nauðsynlega hvíld
og matarhlé. Þá voru takmarkanir
á sjónflugi milli kl. 7 og 17 í gær og
því lá kennslu- og einkaflug á vell-
inum niðri. Samkvæmt Isavia átti
þetta ástand þó aðeins að hafa áhrif
á eina og eina vél og ætti milli-
landa- og áætlunarflug því að geta
verið í eðlilegu horfi.
Flugturn-
inn „nánast
mannlaus“
Afleysingu vantaði
við flugumsjón
Morgunblaðið/ÞÖK
Flug Áætlunarflug var í eðlilegu
horfi þrátt fyrir takmarkanir á þjón-
ustu á ákveðnum tímum.
Von er á hvassri
norðanátt um
helgina, 5-13 m/s.
Best verður veðr-
ið suðvestantil en
verst norðantil og
á Vestfjörðum.
Von er á rigningu
við norðurströnd-
ina á miðnætti í
kvöld. Hiti 5 til 16
stig, hlýjast syðst.
Á laugardaginn er von á norðaustan-
átt með 10-13 m/s. Rigning á Vest-
fjörðum og suðaustantil hiti 6 til 13
stig, svalast á Vestfjörðum. Á sunnu-
daginn heldur norðanáttin áfram með
votviðri víða um land. Hiti 8 til 13
stig. Norðlægar áttir verða svo
ríkjandi fram yfir miðja næstu viku.
Von á norðan-
átt og vætu
um helgina
Rok Það er von á
rigningu og roki.
Ný Bosch þvottavél
- með öllum þeim eiginleikum semmenn
þurfa á að halda í dagsins önn.
Ný 9 kg þvottavél með íslensku stjórnborði.
1400 sn./mín. Orkuflokkur A+++. Kolalaus, hljóðlátur og
sparneytinn mótor með 10 ára ábyrgð. Dropalaga tromla
(„VarioDrum”) sem fer einstaklega vel með þvottinn.
15 mín. hraðþvottakerfi. Skyrtukerfi. Tromluhreinsun.
Við hönnun vélarinnar hefur verið leitast við að gera
hana mjög stöðuga og hljóðláta („antiVibration Design”).
Kynningarverð:
89.900 kr.
Þvottavél,
WAT 284B9SN
Við leggjum áherslu á hágæða vörur
og fyrsta flokks þjónustu á góðu verði.
9
kg
A
Hrókurinn býður til uppskeruhátíð-
ar á morgun, laugardag, frá kl. 14-
16 í Pakkhúsi félagsins, Geirsgötu
11 við Reykjavíkurhöfn. Þar verður
hægt að tefla, hlýða á tónlist,
snæða vöfflur, fara á bókamarkað,
sjá myndasýningu frá Grænlandi og
kynna sér starf félagsins.
Hrókurinn hefur haft aðstöðu í
vöruskemmu Brims sl. tvö ár og
þar hefur verið miðstöð fatasöfn-
unar í þágu barna og ungmenna á
Grænlandi. Fjölmargir hafa lagt
söfnuninni lið og hefur mikið af
góðum fatnaði farið til fjölmargra
þorpa og bæja á Grænland og kom-
ið í góðar þarfir, segir í tilkynningu.
Meðal atriða má nefna að Linda
Guðmundsdóttir frá Finn-
bogastöðum í Trékyllisvík mun
leika á harmónikku, Valdimar Tóm-
asson mun stýra bókamarkaðnum
og skákmeistarar tefla við gesti og
gangandi.
Hróksliðar hafa á síðustu 12
mánuðum farið sex sinnum til
Grænlands að útbreiða skák og vin-
áttu, og fjölmargar ferðir eru á
teikniborðinu. Hér heima hefur
Hrókurinn síðan árið 2003 heimsótt
Barnaspítala Hringsins flesta
fimmtudaga, auk þess að halda uppi
líflegu skákstarfi í þágu fólks með
geðraskanir, aldraðra og barna. Þá
efndi Hrókurinn í vor til afar vel
heppnaðs MótX-einvígis milli stór-
meistaranna Nigels Short og
Hjörvars Steins Grétarssonar. Síð-
ast en ekki síst stóð Hrókurinn
fyrir afar vel heppnuðu skákmara-
þoni í maí í þágu sýrlenskra flótta-
barna og söfnuðust þrjár milljónir
króna, sem runnu óskiptar til Fa-
timusjóðs og UNICEF.
Verkefni Hróksins næstu miss-
eri verða kynnt á uppskeruhátíð-
inni. Má þar nefna skákmót í öllum
landsfjórðungum, áframhaldandi
skáklíf í Hringnum, Vin og víðar
og þátttöku í ýmsu góðgerðar-
starfi.
Ljósmynd/Hrókurinn
Skák Hrafn Jökulsson, forseti Hróksins, ásamt hressum og efnilegum skák-
mönnum eftir skákmaraþon félagsins sem haldið var síðastliðið vor.
Hrókurinn með uppskeruhátíð
Hafa á síðustu 12 mánuðum farið 6 sinnum til Grænlands