Morgunblaðið - 08.07.2016, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 2016
SVIÐSLJÓS
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Aðalsteinn Arnarson skurðlæknir
hyggst koma sér upp teymi við Klín-
íkina í Ármúla sem verður sérhæft í
offituaðgerðum. Mun það sinna
sömu þjónustu og Landspítali og
Reykjalundur gera nú í samstarfi,
en hann mun einnig bjóða upp á spá-
nýja aðferð í lækningum við offitu
sem FDA, matvæla- og lyfjaeftirlit
Bandaríkjanna, vottaði fyrir
skemmstu. Hin nýja aðferð hefur
einnig hlotið CE-vottun í Evrópu.
Felur hún í sér minna læknis-
fræðilegt inngrip og er einföld í upp-
setningu. Sjúklingnum er fengið í
hendur verkfæri sem hann getur
tengt með slöngu inn í maga sinn og
losað þaðan hluta innihaldsins.
Aðalsteinn er nýfluttur til Íslands
frá Svíþjóð, þar sem hann lagði
stund á kviðarholsskurðlækningar.
Að sögn hans hafa offituaðgerðir
önnur og meiri áhrif en margir gera
sér grein fyrir, en þær geta t.a.m.
læknað þá sem eru haldnir sykur-
sýki tvö.
Einnig hefðbundnar aðgerðir
Á Klíníkinni mun Aðalsteinn einn-
ig bjóða upp á hefðbundnar offituað-
gerðir á borð við hjáveituaðgerðir og
magaermisaðgerðir. Að mati Aðal-
steins er sú fyrri ákjósanlegust fyrir
offitusjúklinga.
„Um 99% allra offituaðgerða eru
þessar tvær gerðir. Hjáveituaðgerð-
in er enn sem er „gull-standard“ að-
gerðin í offituaðgerðum í heiminum.
Þá er veitt framhjá maganum þann-
ig að maganum er skipt niður í mjög
lítinn hluta, á við golfkúlu að stærð,
og síðan restina, sem er veitt
framhjá,“ segir hann.
Magaermisaðgerðin er tiltölulega
nýtilkomin, einungis um fimm ára
gömul.
„Þar er ekki veitt framhjá neinu
og ekki gerð breyting á meltingunni
sem slíkri. Hins vegar er stærstur
hluti magans fjarlægður. Það er búið
til þröngt magarör, ekki nema eins
og garðslanga að stærð. Það sem
fylgir er að þú verður fyrr saddur,“
segir Aðalsteinn, en magaermis-
aðgerðin er vinsæl meðal sjúklinga
og er á heimsvísu sú aðgerð sem
flestir kjósa.
Spurður hvers vegna fólk kjósi
frekar magaermisaðgerð segir Að-
alsteinn að færri ókostir fylgi henni
en hjáveituaðgerð. Einn af göllunum
við hjáveituaðgerðina sé að henni
fylgi nokkrir fylgikvillar og vanda-
mál sem þurfi að leysa á móti ávinn-
ingnum af aðgerðinni. T.a.m. verði
upptaka matarins minni og því þurfi
sjúklingar að taka fjölvítamín út æv-
ina til að verða ekki fyrir vítamín-
skorti.
Lækning við sykursýki tvö
Að sögn Aðalsteins fela í offitu-
aðgerðir ekki aðeins í sér útlits-
breytingar. Það hafi til dæmis sýnt
sig að þær nýtist sykursýkisjúkling-
um mjög vel. „Stóri kosturinn við
hjáveituaðgerðina er að hún hefur
gríðarlega mikil áhrif á sykursýki.
Um tveir þriðju hlutar sjúklinga sem
fara í hjáveituaðgerð og eru með
sykursýki tvö læknast. Sú lækning
kemur einni til tveimur vikum eftir
aðgerðina,“ segir hann, en lækningin
er fólgin í þeim hormónabreytingum
í líkamanum sem fylgja aðgerð-
unum.
„Með aðgerðinni er í raun horm-
ónakerfi líkamans breytt. Styrkur
hormónanna í blóðinu breytist og
hefur áhrif á tilfinningu gagnvart
mat. Þetta verður til dæmis til þess
viðkomandi losnar við sykursýkina
löngu áður en hann missir þyngd,“
segir Aðalsteinn.
„Umræðan hjá sykursýki-
samtökum m.a. í Bretlandi og
Bandaríkjunum í dag, af því að
áhuginn til meðhöndlunar sykursýki
er mikill, er um að hægt verði að
bjóða upp á þessar aðgerðir í meiri
mæli sem meðferð við sykursýki. Þá
yrði þetta ekki lengur offituaðgerð,
heldur sykursýkisaðgerð,“ segir
hann.
Í staðinn fyrir að aðeins sjúkling-
ar með líkamsþyngdarstuðul yfir 35
kæmust í aðgerð gætu þá þeir sem
hefðu stuðulinn 27 og hafa syk-
ursýki sem erfitt er að meðhöndla
komist í aðgerð.
Aðalsteinn á von á því að svipuð
umræða eigi sér stað á Íslandi og í
nágrannalöndunum í framtíðinni.
Auk þess að aðgerðirnar hafi góð
áhrif á sykursýkisjúklinga segir Að-
alsteinn að vinna megi bug á ýmsum
hefðbundnum fylgikvillum offitu
með offituaðgerðum, t.d. hjarta- og
æðasjúkdómum auk kæfisvefns.
Þörf á aukinni þjónustu
Mikill þjóðhagslegur ávinningur
skapast af því að færri séu í yfir-
þyngd, að sögn Aðalsteins. „Rann-
sóknir sýna að eftir tvö ár eru þessar
aðgerðir búnar að borga sig upp
þjóðhagslega. Sá kostnaður sem fer í
aðgerðina er endurgreiddur í formi
færri sjúkdóma, minni fráveru frá
vinnu o.s.frv.,“ segir hann og bætir
við að of fáar offituaðgerðir séu
framkvæmdar á Íslandi miðað við
þörf; um 50 til 100 aðgerðir séu
framkvæmdar á Landspítalanum á
ári hverju en samanborið við sjúkra-
hús í Svíþjóð þyrftu þær að vera
milli 300 og 400 á ári.
Til að byrja með er Aðalsteinn
ekki með samning hjá Sjúkratrygg-
ingunum. Sjúklingar borga því sjálf-
ir fyrir þjónustuna.
„Við erum í samræðum við
Sjúkratryggingar og vonumst til að
þær komi inn í þetta, í það minnsta á
einhvern hátt og að hluta til,“ segir
hann.
Nýr valkostur í offitulækningum
Opnar sérhæfða skurðstofu í offituaðgerðum Innleiðir nýja tegund meðferðar með minna inn-
gripi Telur of fáar aðgerðir framkvæmdar á Landspítala Aðgerðirnar lækna sykursýki
Morgunblaðið/RAX
Offita Aðalsteinn er nýfluttur til landsins frá Svíþjóð. Hann ætlar að innleiða nýja meðferð við offitu ásamt því að
bjóða upp á hefðbundnar aðgerðir. Að sögn hans skila offituaðgerðir sér til þjóðfélagsins innan tveggja ára.
Klíníkin er einkarekin, sérhæfð
lækninga- og heilsumiðstöð.
Starfar hún eftir starfs- og
rekstrarleyfi frá Landlæknis-
embættinu og Heilbrigðiseftir-
litinu. Reksturinn er með sama
hætti og annarra sjálfstæðra
læknastofa þar sem sérfræði-
læknar starfa samkvæmt samn-
ingi við Sjúkratryggingar Ís-
lands.
Starfar þar fjöldi sérfræð-
inga, þar á meðal brjóstaskurð-
læknir, bæklunarlæknir, æða-
skurðlæknir og lýtalæknar.
Í maí sl. sagði Morgunblaðið
frá því að heimsþekktur hjarta-
skurðlæknir, dr. Pedro Brugada,
myndi opna skurðstofu á Klíník-
inni síðar á þessu ári.
Fjöldi sér-
fræðinga
KLÍNÍKIN Í ÁRMÚLA
Hin nýja tækni sem Aðalsteinn
hyggst bjóða upp á heitir Aspire-
Assist og felur í sér mun minna
inngrip en hinar aðgerðirnar, og
krefst raunar ekki aðgerðar.
Sjúklingurinn er slævður og
meðferðin er framkvæmd með
magaspeglun þar sem slöngu er
komið fyrir í þeim tilgangi að
tæma magann af kaloríum.
„Sjúklingurinn fær verkfæri. Til
þess að þetta virki þarf sjúkling-
urinn að sitja í hálftíma og tyggja
matinn þannig að hann verði
maukaður. Um 20 mínútum eftir
að hann er búinn að borða fer
hann inn á klósett og tæmir þar út
hluta magainnihaldsins,“ segir
Aðalsteinn, en á þennan hátt tapar
sjúklingurinn um 20-30% af hita-
einingunum. Er þetta framkvæmt
þrisvar á dag og eftir eitt ár hefur
sjúklingurinn misst um það bil 20-
25% af líkamsþyngd sinni.
Aðalsteinn segir auðvelt að
koma búnaðinum fyrir. Fjölmargir
sjúklingar þori síður í aðgerðir
sem eru inngripsmeiri og mögu-
lega sé kominn til kastanna val-
kostur fyrir þann hóp. Vilji sjúk-
lingurinn hætta meðferð, sé það
einnig einföld aðgerð. Hinum að-
gerðunum verði síður snúið við og
magaermisaðgerð í raun ekki.
Hann tekur þó fram að hinni nýju
aðferð sé ekki ætlað að vera tíma-
bundin eða hún framkvæmd eftir
hentisemi, offita sé í eðli sínu
krónískur sjúkdómur sem varan-
lega lausn þurfi við.
Meðferð með minna inngripi
GLÆNÝ MEÐFERÐ VIÐ OFFITU KYNNT TIL LEIKS
Ljósmynd/Aspire Bariatries
Nýtt Með minna inngripi má koma fyrir slöngu sem hefur þann tilgang að leiða út
magainnihaldið. Sjúklingurinn getur misst 20-25% líkamsþyngdar sinnar innan árs.
www.gilbert.is
FRÁBÆRA SKEMMTUN
STRÁKAR
TAKK FYRIR