Morgunblaðið - 08.07.2016, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 2016
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Rannsóknir vísindamanna á framrás
kvikugangsins frá Bárðarbungu sem
endaði með eldgosinu í Holuhrauni
hafa vakið mikla athygli á sumarsýn-
ingu The Royal Society (royal-
society.org) í London.
The Royal Society er vísinda-
akademía þar sem margir fremstu
vísindamenn heims eiga sæti. Þykir
það mikill heiður að vera valinn til
þátttöku í sýningum The Royal So-
ciety og er hörð samkeppni um að fá
þar inni. Sýningin hófst 4. júlí og
stendur fram á sunnudag.
Þorbjörg Ágústsdóttir, doktors-
nemi í jarðeðlisfræði við Cambridge-
háskóla og skylmingameistari, er í
rannsóknarhópnum University of
Cambridge Volcano Seismology
Group (eldfjalla-jarðskjálfta-
fræðihópi Cambridge-háskóla) sem
er með einn af 22 básum á sýning-
unni. Bob White prófessor leiðir
hópinn sem er í forystu í rann-
sóknum á jarðskjálftafræði eldfjalla
og hefur unnið viðamiklar rann-
sóknir á íslenskum eldfjöllum. Hóp-
urinn rekur m.a. stórt net jarð-
skjálftamæla á nyrðra gosbeltinu og
umhverfis Vatnajökul og á honum í
samstarfi við Jarðvísindastofnun
Háskóla Íslands, Veðurstofu Íslands
og Vatnajökulsþjóðgarð.
„Sýningin hefur fengið ótrúlega
góð viðbrögð,“ sagði Þorbjörg. Hún
sagði að búist væri við 12-15 þúsund
gestum á sýninguna. Aðgangur er
ókeypis. Á meðal gesta eru stórir
hópar skólanema, áhugafólk um vís-
indi, félagar í vísindaakademíunni og
aðrir vísindamenn, stjórnmálamenn,
ráðherrar og kóngafólk.
Eldfjallahópurinn útbjó m.a.
gagnvirkt líkan sem sýnir hvernig
kvika ferðast neðanjarðar þar til
hún brýst upp á yfirborðið.
Einnig er tól (http://holuhraun-
lavaflowextent.co.uk/main-
page.html) þar sem hægt er að
leggja Holuhraun hið nýja yfir hina
ýmsu staði á jörðinni til að gefa hug-
mynd um stærð þess.
Auk þess geta gestir sýningar-
innar sjálfir valdið jarðskjálfta og
prentað hann út auk þess að reyna
færni sína í nákvæmri staðsetningu
jarðskjálfta. Þorbjörg sagði að al-
menningur í Bretlandi hefði ekki
sömu innsýn í jarðfræði og íbúar
eldfjallaeyjarinnar Íslands.
Holuhraunsgosið á
virtri vísindasýningu
Vekur athygli á sumarsýningu The Royal Society
Ljósmynd/Jenny Woods
Doktorsnemi og skylmingameistari Ferill Þorbjargar Ágústsdóttur hefur
verið notaður í Bretlandi til að hvetja stúlkur til náms í raunvísindum.
Vertu upplýstur!
blattafram.is
FELST
AÐGERÐALEYSI ÞITT
Í AÐ SAMÞYKKJA
KYNFERÐISOFBELDI?
GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND utilif. is
Á
R
N
A
S
Y
N
IR
Kíkið á verðin eftir
tollalækkun
Æfingapeysa, hálfrennd
6.990 kr.
íþróttafatnaður
stærðir 36-46
Bæjarlind 6, sími 554 7030 | Við erum á facebook
ÚTSALA
40-50% afsláttur
GERRYWEBER – TAIFUN – BETTY BARCLAY
STÓRÚTSALA HAFIN
30–40% AFSL.
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Hálendisvegir víðs vegar um landið
hafa verið opnaðir hver á fætur
öðrum og þykir það heldur snemmt
ef horft er til fyrri ára. Þetta kemur
fram á vef Vegagerðarinnar.
Einn þessara vega er Jökulháls-
vegur austan við Snæfellsjökul. Þar
var töluverður snjór og þurfti að
hafa fyrir því að komast í gegnum
snjóskaflana, sem er ekki óalgengt.
Guðjón H. Björnsson frá þjónustu-
stöðinni í Ólafsvík var á staðnum og
festi aðgerðirnar á filmu.
Ljósmynd/Guðjón H. Björnsson
Snjóþungi Mikill snjór var á Jökulhálsvegi
við Snæfellsjökul þegar hann var opnaður.
Jökulhálsvegur nú
opinn fyrir umferð
mbl.is
alltaf - allstaðar
Tékknesk flugsveit er væntanleg til
landsins til að sinna loftrýmisgæslu.
Samkvæmt svari utanríkisráðu-
neytisins til Morgunblaðsins hefur
loftrýmisgæslu hér við land verið
sinnt af alls níu þjóðum frá 2008;
Bandaríkjunum, Bretlandi, Kanada,
Noregi, Þýskalandi, Frakklandi,
Portúgal, Tékklandi og Ítalíu, og
hefur viðvera sveitanna hér á landi
verið u.þ.b. 3-4 mánuðir á ári á þessu
átta ára tímabili. Tékkneska flug-
sveitin telur 60-70 liðsmenn og kem-
ur með fimm Saab 39 Gripen-orr-
ustuþotur. Gripen-þotan er
framleidd í Svíþjóð og er afar sam-
bærileg bandarísku F-16 orrustu-
þotunni en þó eilítið léttari og ódýr-
ari í rekstri. Vélin er búin einni
vélfallbyssu og átta vængfestingum
fyrir sprengjur og eldflaugar.
Æfingaflug og fyrirflug
Samkvæmt upplýsingum frá
Utanríkisráðuneytinu hefur flug-
sveitin tvíþætt hlutverk; annars veg-
ar æfingaflug og eftirlit og hins veg-
ar fyrirflug þegar ókunnar flugvélar
fljúga upp að Íslandi án þess að
senda frá sér ratsjármerki. Tilgang-
ur fyrirflugs er að auðkenna þessar
ókunnu flugvélar, staðsetja þær og
fljúga með þeim þannig að flugum-
ferðarstjórn á svæðinu sjái hvar
flugvélarnar eru á hverjum tíma.
Þannig má koma í veg fyrir hugsan-
leg slys sem orðið geta af flugi
ókunnra flugvéla sem fljúga án rat-
sjármerkis í svipuðum flughæðum
og almennt farþegaflug umhverfis
Ísland.
Vopnuð gæsla
Samkvæmt kröfu Atlantshafs-
bandalagsins eru vélar bandalagsins
sem stunda loftrýmisgæslu og fara í
fyrirflug í veg fyrir ókunnar flugvél-
ar vopnaðar til sjálfsvarnar. Ef um
æfingaflug er að ræða eru þær að
öllu jöfnu ekki vopnaðar og rétt að
taka það fram að flest flug véla
bandalagsins hér við land Ísland eru
æfingaflug. Tékkneskar sveitir hafa
í tvígang komið til loftrýmisgæslu á
Íslandi og höfðu þá vopn til sjálfs-
varnar. elvar@mbl.is
Morgunblaðið/ÞÖK
Viðbúnir Flugsveitir Atlantshafsbandalagsins dvelja að meðaltali 3-4 mán-
uði á ári hér á landi við æfingar, eftirlit og fyrirflug við ókunnugar vélar.
Tékknesk flug-
sveit væntanleg
Kemur með fimm Saab Gripen-þotur