Morgunblaðið - 08.07.2016, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 2016
Erla María Markúsdóttir
erla@mbl.is
G
uðfinnur og Kristín, sem
eru 26 og 24 ára, hófu
bæði einsöngsnám í
Söngskólanum í
Reykjavík eftir að hafa
smitast af söngbakteríunni í kórum
Langholtskirkju hjá Jóni Stefáns-
syni, Kristín þó töluvert á undan
Guðfinni. „Okkur er búið að dreyma
um þetta í mörg ár, að gera eitthvað
saman,“ segir Kristín. „Ég man ekki
hvernig akkúrat þessi hugmynd, að
halda systkinatónleika, kom upp.
Við ætluðum að gera hljómsveit
saman, Kristín hefur sungið frá því
hún var fjögurra ára, en ég bara síð-
an ég var 19 ára, þannig að það að
halda söngtónleika saman er nýver-
ið orðinn möguleiki,“ segir Guð-
finnur. „Ég held að þetta hafi ekki
komið upp fyrr en ég flutti til Vínar
og Guðfinnur hélt áfram að læra
hérna heima. Mig langaði að syngja
þegar ég kæmi heim og okkur
fannst upplagt að halda sameigin-
lega tónleika,“ segir Kristín. Hún
lauk burtfararprófi frá Söngskól-
anum í Reykjavík undir leiðsögn
Hörpu Harðardóttur fyrir tveimur
árum og hóf framhaldsnám í söng
við Tónlistarháskólann í Vínarborg
haustið 2014. Guðfinnur lauk fram-
haldsprófi við skólann undir leið-
sögn Ólafar Kolbrúnar Harðar-
dóttur síðastliðið vor.
„Mér finnst áhugavert að hugsa
til þess að ég hélt alltaf frá því að ég
var krakki að ég gæti ekki sungið.
Það var þannig að ég söng ekki einu
sinni fyrir sjálfan mig, í bílnum til
dæmis eða í sturtu, ég hélt bara að
ég gæti það ekki,“ segir Guðfinnur,
sem opnaði ekki fyrir raddböndin,
sönglega séð, fyrr en hann var 19
ára. „Kristín plataði mig í prufu fyr-
ir Kór Langholtskirkju hjá Jóni
Stefánssyni, organista. Það er í
fyrsta skipti sem ég söng fyrir ein-
hvern, fyrir utan Kristínu daginn á
undan,“ segir Guðfinnur. Lag Atla
Heimis Sveinssonar, Kvæðið um
fuglana, varð fyrir valinu í prufunni.
„Ég held að ég hafi sungið sama lag
í inntökuprófinu mínu fyrir Gradu-
alekór Langholtskirkju,“ segir
Kristín, sem hefur sungið með öllum
kórum kirkjunnar frá fimm ára
aldri, sem eru sjö talsins, ef kamm-
erkórinn er talinn með, sem hefur
starfað með hléum.
Guðfinnur komst inn í kórinn
og sungu systkinin saman í Kór
Langholtskirkju í að minnsta kosti
eitt ár. „Ég söng hjá Jóni í kórnum í
tvö eða þrjú ár, ég flutti svo til Hol-
lands. Á þessum tíma var ég að læra
á píanó, en ákvað að hvíla mig á því
og fara að læra söng.“ Þegar Guð-
finnur kom aftur til Íslands hóf
hann nám hjá Ólöfu Kolbrúnu, eig-
inkonu Jóns. Hann segir að það hafi
verið sérstök tilfinning að syngja
sjálfur eftir að hafa fylgst með syst-
ur sinni í öll þessi ár.
„Ég hef verið aðdáandi Krist-
ínar sem söngkonu í mörg ár. Ég á
Söngelsk systkini
með stóra drauma
Systkinin og söngnemana Guðfinn og Kristínu Sveinsbörn hefur lengi dreymt um
að vinna saman að einhvers konar tónlist. Fyrst um sinn var draumurinn að
stofna hljómsveit en þegar Guðfinnur uppgötvaði um tvítugsaldurinn að hann
gæti sungið eins og litla systir sín, ákváðu þau að halda tónleika. Á laugardag
munu þau endurtaka leikinn. Þetta eru fyrstu tónleikar Kristínar á Íslandi síðan
hún gekk til liðs við óperuakademíu La Scala í Mílanó, en hún mun fara með
hlutverk í Töfraflautunni sem verður frumsýnd á stóra sviðinu í La Scala í haust.
Söngelsk fjölskylda Tónlist hefur einkennt líf systkinanna frá unga aldri.
Þau byrjuðu þó ekki að vinna saman í tónlist fyrr en fyrir nokkrum árum.
Opið tækni- og tilraunaverkstæði fyr-
ir krakka og fjölskyldur þeirra verður
haldið í Borgarbókasafninu í Grófinni
kl. 14-16 á morgun, laugardaginn 9.
júlí. Leiðbeinendur Kóder aðstoða
krakkana við forritun sem byggist á
einföldu forritunarmáli og hentar vel
yngstu kynslóðunum.
Ekki er um hefðbundið námskeið
að ræða heldur munu krakkarnir og
foreldrar þeirra fá tækifæri til að
hitta jafnaldra sína, kynnast spenn-
andi tækni og forritum, prófa sig
áfram og kynnast nánar því sem sam-
tökin bjóða upp á. Þau námskeið sem
Kóder hefur staðið fyrir eru flest fyrir
börn á aldrinum 6-14 ára en vitaskuld
eru allir tæknigrúskarar velkomnir.
Kóder-samtökin hafa staðið fyrir
fjölbreyttum námskeiðum fyrir börn
og unglinga í ýmiskonar forritun með
það að leiðarljósi að öll börn eigi að
geta aflað sér tæknikunnáttu og
tæknilæsis. Borgarbókasafnið deilir
þeirri hugsjón að tæknilæsi sé ákaf-
lega mikilvægur þáttur í menntun
barna og mun leitast við að styðja
það á komandi misserum.
Tækni- og tilraunaverkstæði fyrir krakka og fjölskyldur þeirra
Forritun byggð á einföldu forrit-
unarmáli fyrir tæknigrúskara
Kóder Leiðbeinendur aðstoða gesti við að prófa sig áfram með og læra um
Raspberry Pi- og Minecraft-forritun, Scratch, sem hentar yngstu börnunum.
Það var allt betra í gamladaga. Þeir ungu báruvirðingu fyrir þeim eldri,börn voru þægari, bíó-
myndirnar voru skemmtilegri og
maturinn bragðaðist miklu betur.
Eða svo er sagt. Í hugum margra
er fortíðin böðuð ljóma og þar er
ég engin undantekning.
Ég hugsa reglulega um þá ang-
urværu og góðu tíma á tíunda ára-
tug síðustu aldar þegar fátt annað
komst að hjá vinahópnum en hjóla-
bretti, stökkbreyttar unglinga-
skjaldbökur sem börðust gegn
glæpum og auðvitað slagsmálaleik-
urinn Mortal Kombat í leikjatölv-
unni Super Nintendo. Einn af okk-
ur vinunum átti frænda sem náði
einhvern veginn að tengja heimilis-
tölvu sína með snúru í símalínuna
og gat þannig komist að því hvern-
ig ætti að framkvæma öll enda-
brögðin í tölvuleiknum. Við skrif-
uðum brögðin samviskusamlega
niður í nokkrum eintökum,
enda um gríðarlega mikil-
vægar upplýsingar að ræða.
Síðar rann upp fyrir mér að
umræddur frændi hafði verið
snemma á ferðinni með
internet-tengingu. Á
þeim tíma þurfti að
taka símann úr sam-
bandi á meðan vafrað
var á netinu og ær-
andi ískur heyrðist
þegar græjan tengd-
ist við alheiminn. Það
þótti lítill fórnarkostn-
aður gegn því að fá há-
leynilegar upplýsingar
um Mortal Kombat.
Bara það að skrifa
þennan pistil og rifja upp þessar
minningar yljar mér um hjartað.
En það er einmitt málið, það eru
góðu minningarnar sem gaman er
að hugsa um og það jafngildir því
ekki að vilja ferðast aftur til fyrri
tíma. Þetta þekki ég af eigin raun.
Fyrir skömmu kom ég auga á
gömlu Super Nintendo-leikjatölv-
una í bílskúr foreldra minna. Allar
tilfinningar ársins 1997 helltust yf-
ir mig á augabragði og ég tengdi
tölvuna strax við gamalt sjón-
varp, spenntur að endurlifa
gamla tíma. Ljóminn skolaðist
þó fljótt af fortíðinni þegar
leikurinn var kominn í gang.
Grafíkin var léleg, fjarstýr-
ingin lét illa að stjórn og
frammistaða mín í leikn-
um hafði augljóslega
farið dalandi með ár-
unum. Þessi erfiða lífs-
reynsla kenndi mér að
það er betra að lifa í
núinu og njóta þess
sem er, í stað þess að
reyna að endurlifa það
sem var.
»Fyrir skömmu kom égauga á gömlu Super
Nintendo-leikjatölvuna í
bílskúr foreldra minna. All-
ar tilfinningar ársins 1997
helltust yfir mig á auga-
bragði.
Heimur Árna Grétars
Árni Grétar Finnsson
afg@mbl.is
Bókamarkaður verður opnaður í dag, föstudaginn 8. júlí, í
Leikhúsinu við Sigtún á Selfossi. Fullt hús bóka og mörg
hundruð titlar eru í boði.
Allar bækur, nýjar og notaðar, kosta aðeins 500 krónur
stykkið; bókmenntaverk, ævisögur, þjóðsögur, fræðirit og
bækur um aðskiljanlegustu málefni. Í notuðu bókunum er
yfirleitt ekki nema eitt eintak af hverjum titli og þá gildir hið
fornkveðna að fyrstir koma, fyrstir fá. Fjölmörg bókaforlög, bæði stór og smá,
leggja markaðinum lið með afsláttarsendingum af lagerum og því ættu allir að
finna eitthvað við sitt hæfi.
Bókamarkaðurinn verður fyrst um sinn opinn frá kl. 12-18 frá föstudegi til
sunnudags.
Bókamarkaður á Selfossi
Mörg hundruð titlar í boði
Snap-on er leiðandi fyrirtæki í framleiðslu á öflugum og traustum verkfærum
fyrir öll svið iðnaðar. Snap-on er vörumerki fyrir þá sem gera miklar kröfur
um gæði, endingu og áreiðanleika. Kynntu þér Snap-on vörurnar hjá Vélum
og verkfærum, úrvalið er ótrúlegt.