Morgunblaðið - 08.07.2016, Blaðsíða 13
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 2016
Morgunblaðið/Eggert
Undibúningur Guðfinnur Sveinsson og Kristín Sveinsdóttir halda sína aðra tónleika í Hannesarholti á laugardag.
Þau munu syngja sín uppáhaldslög og -aríur, ásamt því að frumflytja dúett eftir sænska tónskáldið Petter Ekman.
ennþá mjög langt í land með að eiga
séns í hana, en mér fannst mjög
gaman að fá tækifæri til að syngja
með henni. Svo er líka gaman að
syngja sjálfur, mér fannst ég passa
vel inn í þetta. Ég fékk líka mjög
góða leiðsögn. Þegar ég byrjaði í
kórnum sat ég við hliðina á Andra
Birni Róbertssyni og Oddi Arnþóri
Jónssyni. Ef ég var eitthvað óviss
um hvaða tón ég átti að syngja þá
var ég með þessar tvær vonar-
stjörnur við hlið mér, þeir komu
mér vel af stað,“ segir Guðfinnur.
Þess má geta að bæði Andri Björn
og Oddur eru nú á mála hjá stórum
óperuhúsum í Evrópu.
Ólýsanleg ást á tónlistinni
Kristín og Guðfinnur eru afar
þakklát því tónlistarstarfi sem þau
kynntust í Langholtskirkju. „Að
vinna með Jóni Stefánssyni, sem var
svo ótrúlega metnaðarfullur og vann
starfið sitt 150%, gefur manni svo
mikið. Það er ómetanlegt að hafa
fengið að læra öll þessi stóru kór-
verk og messur frá unga aldri og
kynnast allri þessari klassísku tón-
list og læra að elska hana. Að
syngja í kór er alveg einstakt sam-
félag og vinátta en það er líka gam-
an að skapa fallega tónlist saman,“
segir Kristín. Greinilegt er að kóra-
starfið hefur mótað líf hennar nán-
ast alla tíð. „Fyrir mér var aldrei
spurning um að hætta. Um leið og
ég byrjaði að syngja í kirkjunni varð
hún mitt annað heimili. Þarna eign-
aðist ég mínar bestu vinkonur. Þeg-
ar ég var orðin tvítug og það var
komið að því að ákveða hvað ég ætl-
aði að gera við líf mitt þá var aldrei
möguleiki fyrir mig að hætta. Ástina
á tónlistinni er ekki hægt að taka
frá manni.“
„Það sem Jóni tókst alltaf að
gera í kórunum var að hafa metn-
aðinn alveg 100% en á sama tíma að
taka hlutunum ekki of alvarlega.
Hann var alltaf glaður og jákvæður
og þannig verður hann líklega að
stærri fyrirmyndum fyrir alla þá
sem fengu að kynnast honum. Ólöf
og Jónsi eiga ekki getin börn en þau
eiga tugi og hundruð barna úr kóra-
samfélaginu í Langholtskirkju,“
segir Guðfinnur. „Þó að maður byrj-
aði ungur að syngja hafði maður
alltaf á tilfinningunni að maður hefði
getu til að gera góða tónlist. Jónsi
bar svo mikla virðingu fyrir krökk-
um sem tónlistarmönnum og hafði
trú á okkur,“ segir Kristín. Jón lést
í apríl síðastliðnum eftir stutt veik-
indi. Söknuður en þakklæti um góð-
an mann skín í gegn hjá systk-
inunum.
Raulið fór í taugarnar
á stóra bróður
En hefur systkinasambandið
alltaf verið svona náið og dásam-
legt?
„Við vorum ekki vinir fyrst.
Guðfinnur byrjaði mjög snemma að
stela snuddunni minni og fjögurra
vikna gafst ég upp og hætti að nota
snuð,“ segir Kristín og hlær. „Ég
myndi lýsa því þannig að við vorum
oft óvinir. Þegar við bjuggum í
Glaðheimum, þegar ég var 5-15 ára,
vorum við oft að rífast í stofunni
heima og ég endaði rifrildið oftast á
að henda Kristínu í sófann sem end-
aði í gráti,“ segir Guðfinnur. Þau
hafi þó þroskast, en klassískar
systkinaerjur hafa sett svip á sam-
band þeirra. „Þegar ég var ungling-
ur og Kristín var að syngja mikið í
kórunum var hún alltaf að raula,
eins og ég geri sjálfur í dag. En
þarna var ég á einhverju gelgju-
skeiði og var mjög pirraður á þessu.
Sem betur fer slípaðist gelgjan af
mér áður en Kristín einbeitti sér al-
farið að söngnum,“ segir Guðfinnur.
„Við höfum þroskast saman frekar
en sitt í hvora áttina, sem betur
fer,“ segir Kristín.
Á stóra sviðinu í Scala
Óhætt er að fullyrða að líf
Kristínar snúi nánast alfarið um
söng þessa stundina. Eftir að hún
lauk burtfararprófi frá Söngskól-
anum vorið 2014 flutti hún til Vínar
þar sem hún er í framhaldsnámi í
klassískum söng. „Á lokatónleikum
bekkjarins vorið 2015 var útsendari
frá Scala óperuhúsinu á meðal
gesta. Hann var að leita að söngv-
urum fyrir uppsetningu á Töfra-
flautunni í Scala fyrir haustið 2016.
Þetta hófst með einum tölvupósti
sem breyttist svo í áheyrnarprufu í
Vín og svo annarri áheyrnarprufu í
Mílanó og þetta vatt upp á sig, en
var mjög óraunverulegt til að byrja
með. Mér leið eins og ég væri í bíó-
mynd og þorði ekki alveg að trúa
þessu í fyrstu,“ segir Kristín.
Allt ferlið var hins vegar raun-
verulegt og fékk Kristín hlutverk
annarrar dömu í Töfraflautunni.
Hún er þar með fyrsta íslenska kon-
an til að fá hlutverk í óperuhúsinu í
Scala. „En til þess að syngja hlut-
verkið vildu þau fá mig á reynslu
hjá Óperuakademíunni í Scala í eitt
ár. Það er búið að vera ótrúlega
spennandi og góð reynsla og ævin-
týri líkast. Ég er búin að fá að læra
ítölsku sem er æðislegt og búin að
kynnast fullt af gömlum kempum úr
Scala-óperunni þar sem flestir pró-
fessorarnir eru fyrrverandi óperu-
stjörnur, til dæmis gamlar næt-
urdrottningar og Rigoletto-ar.“ „Og
svo ertu að syngja með núverandi
kempum,“ skýtur Guðfinnur inn í.
„Já, okkur í akademíunni er oft boð-
ið að syngja lítil hlutverk í óperu-
uppfærslum þar sem við komum
kannski inn á sviðið í 2-5 mínútur,
syngjum og förum aftur út. Ég fékk
til dæmis að syngja sendisvein í
Rigoletto í janúar með Leo Nuzzi
sem er núverandi kempa. Þetta er
ótrúlega dýrmæt reynsla að fá að
syngja á svona stóru sviði án þess
að pressan sé of mikil.“
Kristín er nú stödd heima í
stuttu fríi áður en lokaæfingar á
Töfraflautunni fara á fullt um miðj-
an mánðinn. „Þetta er stærsta hlut-
verkið sem ég hef sungið hingað til.
Þetta er búið að vera langt og
skemmtilegt ferli og gaman að
vinna með leikstjóranum, Peter
Stein. Þessi uppfærsla er hans hug-
arfóstur og um nýja uppsetningu er
að ræða. Hann vildi vinna með ung-
um söngvurum, meðal annars til að
fá ferska huga inn sem eru tilbúnir
til að prófa nýja hluti. Svo er hann
að taka upprunalegu nóturnar frá
Mozart og fer eftir öllum litlum at-
hugasemdum frá honum, til dæmis
varðandi sviðsetningu.“
Guðfinn langar að einbeita sér
að söngnum og stefnir á frekara
söngnám í Danmörku í haust. Hann
hefur verið gítar- og hljómborðs-
leikari hljómsveitarinnar For a Mi-
nor Reflection frá því hann tók þátt
í að stofna sveitina árið 2005.
„Hljómsveitin er komin í pásu og ég
er búin að leggja drauminn um að
verða einleikari á píanó á hilluna, en
planið er að gefa söngnum meiri
séns. Ég er búinn að læra hjá Ólöfu
Kolbrúnu og kláraði framhaldspróf í
vor, kannski á of miklu spani, Ólöf
hefði líklega viljað að ég gerði þetta
aðeins hægar. Draumurinn er auð-
vitað að elta Kristínu og fá að vera
með henni á stóra sviðinu einn dag-
inn.“
Frumflutningur
í Hannesarholti
Systkinin munu stíga á svið í
Hannesarholti á laugardaginn
klukkan 16 þar sem þau ætla að
flytja sín uppáhaldsverk. Einnig
munu þau frumflytja nýtt tónverk.
„Við erum mjög spennt að hafa
fengið Petter Ekman, ungt sænskt
tónkáld, til að semja lag við ljóð
Jakobínu Sigurðardóttur, Fimm
börn, fyrir okkur,“ segir Kristín,
sem kynntist Petter í Mílanó, þar
sem hann nam tónsmíðar við Kons-
ervatóríum G. Verdi. Áður hefur
hann lært í Gautaborg og undir leið-
sögn Atla Ingólfssonar við Listahá-
skóla Íslands. Nú starfar hann hjá
stórri tónlistarútgáfu í Mílanó.
„Þetta er að verða að hefð, að
frumflytja ný verk eftir ung tón-
skáld við ljóð íslenskra kvenna.
Halldór Smárason samdi verk fyrir
okkur í fyrra við ljóð Steinunnar
Finnbogadóttur,“ segir Kristín. „Við
erum með tíu ára plan í gangi,“ seg-
ir Guðfinnur og Kristín tekur undir.
„Eftir tíu ár langar okkur að gefa út
nótnabók með tíu nýjum dúettum
eftir ung tónskáld.“
Á laugardaginn langar þau að
skapa huggulega síðdegisstemningu
í Hannesarholti. „Eftir tíu ár verð-
um við svo í Eldborg, vonandi,“ seg-
ir Guðfinnur. Í millitíðinni er alla-
vega ljóst að Kristín mun stíga á
stóra sviðið í Scala og ljúka söng-
námi í Vín. Guðfinnur mun halda
áfram að elta söngdrauminn um
Evrópu. Sama hvað framtíðin ber í
skauti sér verður áhugavert að
fylgjast með þessum söngelsku og
samstiga systkinum.
Kristín hóf nám í Óperuakademí-
unni í Scala síðastliðið haust og
hefur Guðfinnur staðið þétt við
bakið á systur sinni í öllu ferlinu,
en hann tók til dæmis á móti
henni í Mílanó þegar hún flutti
þangað frá Vínarborg. „Hann
kom meira að segja degi á undan
mér og var búinn að skanna
borgina fyrir mig. Ég var svo
stressuð, þetta var allt svo nýtt
fyrir mér og svo átti ég að byrja
strax á að leika í einhverri barna-
sýningu, og það var svo yndis-
legt að hafa Guðfinn sem var bú-
inn að finna gistingu og öll bestu
kaffihúsin. Við áttum alveg
yndislega viku saman,“ segir
Kristín.
Hún fer með hlutverk annarrar
dömu í Töfraflautunni sem verð-
ur frumsýnd 2. september á
stóra sviðinu í Scala og er öll
fjölskyldan og ótal vinir búnir að
tryggja sér miða. „Ég er orðin
fræg í Scala vegna þess að ég
bað um 54 miða á frumsýning-
una, en það hefur líklega enginn
beðið um jafnmarga miða,“ segir
Kristín og hlær. Þar á meðal eru
rúmlega 20 kórsystur hennar í
dömukórnum Graduale
Nobili sem geta ef-
laust ekki beðið
eftir að sjá
söngsystur
sína á
sviðinu.
Orðin fræg
í La Scala
HÖFÐINGLEGAR MÓTTÖKUR
Á góðri
stund í
Mílanó.
„Við höfum þrosk-
ast saman frekar en
sitt í hvora áttina,
sem betur fer.“
Í fullum skrúða Dömurnar þrjár eftir sýningu á Töfraflautunni fyrir börn á
Scala í nóvember. Frumsýning á Töfraflautunni í fullri lengd verður í haust.
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
M.BENZ C 220d AVANTGARDE
nýskr. 09/2015, ekinn 8 Þ.km, 170 hö diesel, sjálfskiptur (7 gíra). Íslenskt leiðsögukerfi, led ljós framan og aftan ofl. Bíllinn er eins og nýr!
Tilboðsverð 7.390.000 kr. Raðnr. 255217Mjög vel útbúinn, stórglæsilegur bíll!
Þú finnur bílinn á bilo.is Auglýstir bílar eru á staðnum Skráðu bílinn á bilo.is