Morgunblaðið - 08.07.2016, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 2016
Árni Grétar Finnsson
agf@mbl.is
Átta bandarískar orrustuflugvélar af
gerðinni Fairchild Republic A-10
Thunderbolt II, yfirleitt kallaðar
Warthog, lentu á Keflavíkurflugvelli
í gær. Vélarnar eru sérstaklega
hannaðar í kringum fallbyssuna í
nefi þeirra, en um er að ræða 30 mm
Avenger-byssu sem vegur um tvö
tonn þegar hún er fullhlaðin með
1.350 skotum. Avenger-byssan getur
skotið 3.900 skotum á mínútu, eða 50
skotum fyrstu sekúnduna á meðan
hún kemst á skrið og 70 skotum þar
á eftir. Skotin eru búin sprengiefni
og auðguðu úrani, en flugvélarnar
voru sérstaklega gerðar til þess að
eiga við skriðdrekaframsókn á víg-
völlum í Kalda stríðinu.
Vélarnar fljúga hingað til lands
nokkrum sinnum á ári á leið sinni
yfir Atlantshafið. Þær hafa verið
notaðar í hernaði í Afganistan og í
Íraksstríðinu og einnig í aðgerðum
Bandaríkjamanna gegn Ríki íslams.
Vélarnar þarfnast viðhalds
Að sögn Sigurðar Björgvins
Magnússonar, aðstoðarvaktstjóra
hjá flugvallardeild Isavia, hefur
lengi staðið til hjá bandaríska flug-
hernum að hætta notkun á vélunum
en hingað til hefur bandaríska þingið
hafnað slíkum óskum. Ástæða þess
að herinn vill leggja vélarnar á hill-
una er fyrst og fremst sú að þær
voru framleiddar á árunum 1972-
1984 og þarfnast því mikils viðhalds.
Mikill sparnaður væri því fólginn í
því að skipta þeim út fyrir nýrri teg-
undir eins og til dæmis Lockheed
Martin F-35 Lightning II, sem fram-
leidd hefur verið frá árinu 2006. Þær
vélar, sem yfirleitt eru nefndar F-35,
geta einnig verið notaðar í áratugi.
Fleiri flugvélar með í för
Með í för var einnig ein flugvél af
gerðinni C-17 Globemaster III, sem
er bandarísk flutningavél og er not-
uð í flutninga á m.a. hermönnum og
hernaðarbúnaði víðs vegar um heim.
Að auki voru tvær KC-135 Strato-
tanker-vélar, en þær eru notaðar til
þess að gefa öðrum flugvélum elds-
neyti á flugi. Þær eru framleiddar í
Bandaríkjunum en eru þó einnig
notaðar af franska, tyrkneska og
singapúrska flughernum.
Ljósmynd/Sigurður Björgvin Magnússon
Þota Ein Warthog-orrustuþota er talin kosta um 18,8 milljónir Bandaríkjadala, en 716 vélar eru til í heiminum.
Warthog í Keflavík
Átta orrustuflugvélar á Keflavíkurflugvelli í gær Byssan
í nefinu vegur tvö tonn Notaðar í hernaði gegn Ríki íslams
Eldsneyti Stratotanker var kynnt til sögunnar árið 1957 af flugfyrirtækinu
Boeing. Alls voru 803 vélar framleiddar á tímabilinu 1957-1965.
Flugvélar Alls lentu átta Warthog-orrustuvélar á Keflavíkurflugvelli í gær,
en þær munu halda ferð sinni áfram yfir Atlantshafið á næstu dögum.
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Eftir rúmlega þriggja vikna keppni
karlalandsliðsins í knattspyrnu á
EM í Frakklandi og töluverðan
undirbúning mánuðina þar á undan
er allt nú að færast í eðlilegt horf í
íslenska sendiráðinu í París.
Þetta segir Berglind Ásgeirs-
dóttir, sendiherra Íslands í Frakk-
landi, í samtali við Morgunblaðið.
„Það má segja að það sé algjört
spennufall. Við erum búin að vera á
tánum ansi lengi og gátum til dæm-
is ekki hleypt öllu starfsfólki á síð-
asta leikinn því að einhverjir þurftu
að sinna neyðarvakt meðan á hon-
um stóð,“ segir Berglind og bætir
við að ánægjulegt sé hversu lítið
hafi reynt á neyðarviðbúnaðinn.
„Það sem mér þykir frábært er
að ekkert stórt eða mjög alvarlegt
hefur átt sér stað á þessum tíma, þó
að auðvitað hafi komið upp nokkur
leiðinleg mál.“
Bjargaðist með mikilli vinnu
Í sendiráðinu starfa sex manns
í fimm og hálfu stöðugildi og nutu
þeir aðstoðar utanríkisráðuneytisins
í kringum leik liðsins við Frakka.
„Sendiráðið er einstaklega vel
mannað og hópurinn virkilega sam-
hentur. Þetta hefur bjargast en
með gríðarlegri vinnu, enginn hefur
átt frí að kvöldi í mjög langan
tíma.“
Einna helst hefur álagið falist í
að aðstoða fólk sem verður fyrir því
óláni að týna vegabréfi sínu eða þá
að því sé stolið.
„Þá gefum við út neyðarvega-
bréf svo að fólk komist aftur til Ís-
lands, og það var töluvert mikið um
það í kringum mótið. Þetta gerist
árið um kring, sérstaklega á sumar-
leyfistíma, en nú var mannfjöldinn
svo margfaldur að álagið getur ekki
talist skrýtið.“
Yfirgáfu ekki liðið sitt
„Nú þegar flestallir eru farnir
og álagið hérna orðið með venju-
legra móti rignir yfir okkur ham-
ingjuóskunum frá Frökkum vegna
frábærs árangurs okkar,“ segir
Berglind og bætir við að ótrúlegt sé
hversu mikla athygli framganga Ís-
lendinga á mótinu hafi vakið.
„Ekki bara fyrir árangur
landsliðsins, heldur fyrir prúð-
mennsku og frábæra frammistöðu
stuðningsmannanna.“
Hún segir mikið hafa verið
fjallað um sterk tengsl liðsins við
stuðningsmenn sína og nefnir sér-
staklega að fólk og fjölmiðlar dáist
að því sem stuðningsmenn Íslands
gerðu að loknum leiknum við
Frakka á sunnudag.
„Þeir sátu áfram og sýndu það
að þótt Frakkar hefðu unnið leikinn
yfirgæfu þeir ekki liðið sitt. Því hef-
ur víða verið fleygt fram að af þessu
geti margir lært.“
Bíður landsliðsins í Rússlandi
Berglind starfar einnig sem
fastafulltrúi Íslands hjá Evrópu-
ráðinu í Strassborg. Á fundi þess í
vikunni komu fjölmargir að máli við
hana og sögðu liðið og stuðnings-
mennina eiga sér enga líka.
Í september hefur Berglind
störf sem sendiherra Íslands í
Rússlandi, með aðsetur í Moskvu,
en þar í landi verður næsta
heimsmeistaramót karlalandsliða í
knattspyrnu haldið árið 2018.
„Það væri stórkostlegt að taka
aftur á móti Íslendingum þar. Þetta
hefur verið ótrúlega gaman og sam-
starfið við KSÍ hefur verið einstak-
lega gott. Við vonum bara að þeim
gangi vel og komist á HM.“
Sendiráð Íslands
hafði í nógu að
snúast yfir EM
Hamingjuóskum rignir frá Frökkum
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Ánægð Berglind á Evróputorginu í
París, við kynningu landa liðanna.
EM í Frakklandi
» Sex manns starfa í sendi-
ráði Íslands í París, í fimm og
hálfu stöðugildi.
» Einna helst þurfti starfs-
fólkið að sinna útgáfu neyðar-
vegabréfa til þeirra sem týnt
höfðu sínu.
» Ísland tók þátt í Evrópu-
mótinu í rúmar þrjár vikur, en
því lýkur með úrslitaleiknum á
sunnudag.
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is
Þýskar innréttingar
EIRVÍK Innréttingar
Eirvík Innréttingar eru sérsmíðaðar í Þýskalandi. Einingarnar koma
samsettar til landsins sem sparar tíma í uppsetningu og tryggirmeiri gæði.
Sérstaða okkar fellst í því að bjóða heildarlausn fyrir eldhúsið.
Við höfum næmt auga fyrir smáatriðumog bjóðumpersónulega þjónustu.
Höfuðáhersla er lögð á lausnir sem falla að þörfumog lífsstíl hvers og eins.
Líttu við hjá okkur og fáðu tilboð í innréttinguna og eldhústækin
og tryggðu þér raunveruleg gæði á réttu verði.
Hönnun og ráðgjöf á staðnum.