Morgunblaðið - 08.07.2016, Side 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 2016
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Sýrlenskir hermenn hafa sótt mjög
að sveitum uppreisnarmanna og
vígamönnum Ríkis íslams að undan-
förnu og er nú hart barist við helstu
birgðaleið Aleppo, stærstu borgar
Sýrlands. Eiga bardagar þessir sér
stað þrátt fyrir gildandi vopnahlé í
landinu vegna hátíðarhalda í
tengslum við Eid al-Fitr, en hátíð sú
markar lok hins heilaga mánaðar
Ramadan.
Fréttaveita AFP greinir frá því að
minnst fjórir hafi fallið í röðum upp-
reisnarhópsins Jaish al-Islam, sem
þýða mætti sem her íslams, er þeir
reyndu að stöðva sókn hersins að
Castello-vegi. Er vegur sá sagður
mikilvæg birgðaleið fyrir uppreisn-
armenn við og í borginni Aleppo.
Þrír féllu í skotárás uppreisnar-
manna í héraðinu Sayf al-Dawla í
Aleppo þegar ráðist var á liðsmenn
stjórnarhersins í Sýrlandi, að sögn
mannréttindasamtakanna Syrian
Observatory for Human Rights.
Lagt undir sig mikilvæga hæð
Hersveitir Bashars al-Assad Sýr-
landsforseta hafa undanfarin tvö ár
reynt að ná valdi á veginum Castello.
Hafa þær aldrei verið jafnnærri því
markmiði og nú, að sögn áður-
nefndra mannréttindasamtaka.
Sveitir Assads forseta eru nú bún-
ar að leggja undir sig hæð, um einn
kílómetra frá veginum, þaðan sem
þær geta skotið með fallbyssum á öll
þau ökutæki sem aka um Castello-
veg. Þá geta sýrlenskir hermenn
einnig leiðbeint þaðan orrustuflug-
sveitum og aðstoðað þannig flug-
menn við framkvæmd loftárása.
Vopnaðar sveitir uppreisnar-
manna hafa gert tilraun til að brjóta
hermennina á bak aftur og ná þannig
umræddri hæð, en án árangurs.
„Takist hersveitum stjórnvalda að
tryggja sér fótfestu þarna og stand-
ast árásir uppreisnarmanna, tekst
þeim að sitja algerlega um andstæð-
inga sína,“ hefur AFP eftir yfir-
manni sömu mannréttindasamtaka.
Reglulegar loftárásir
Talið er að um 200.000 manns búi í
þeim hverfum Aleppo sem enn eru á
valdi uppreisnarmanna. Orrustu-
flugvélar, t.a.m. frá flugher Rúss-
lands, gera reglulega árásir á hverf-
in. Yfir 280.000 manns hafa,
samkvæmt upplýsingum AFP, látið
lífið í Sýrlandi frá því að átökin hóf-
ust þar í mars árið 2011.
Yfirlýst vopnahlé virt
að vettugi í Sýrlandi
Harðir bardagar við Aleppo, stærstu borg landsins
AFP
Eyðilegging Langvarandi átök hafa sett sterkan svip á borgina Aleppo sem
nú er víða rústir einar. Stjórnarherinn berst við uppreisnarmenn um hverfi.
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Þýsk lögregluyfirvöld hafa nú í haldi
tvítugan karlmann frá Alsír sem
grunaður er um tengsl við þekkta
vígamenn úr röðum Ríkis íslams. Er
hann meðal annars sagður hafa átt
samskipti við belgíska íslamistann
Abdelhamid Abaaoud, en hann er
sagður hafa skipulagt hryðjuverkin
sem framin voru í París í Frakklandi
13. nóvember síðastliðinn.
Maðurinn, sem einungis er þekkt-
ur undir nafninu Bilal C, er sagður
hafa látið Abaaoud vita af leiðum til
að smygla herskáum íslamistum til
Vestur-Evrópu, en um er að ræða
sömu leið og flóttamenn nýttu sér til
að komast til Evrópu um Balkan-
skaga. Þeirri leið hefur nú hins vegar
að mestu verið lokað með hertu eft-
irliti á landamærum.
Bilal C er einnig sagður hafa verið
í samskiptum við Ayoub El Khazz-
ani, íslamista frá Marokkó. Sá særði
þrjá þegar hann hóf skothríð með
árásarriffli um borð í farþegalest frá
Brussel til Parísar í ágúst í fyrra.
Khazzani var yfirbugaður af banda-
rískum hermönnum sem voru í fríi
og voru farþegar í lestinni.
Fór til Evrópu með flóttafólki
Fréttaveita AFP greinir frá því að
Bilal C hafi þegar verið í haldi þýsku
lögreglunnar vegna „annars máls“
þegar leyniþjónustan hafði skyndi-
lega samband og benti á áðurnefnd
tengsl hans við Ríki íslams.
Bilal C er sagður hafa ferðast frá
Alsír til Sýrlands árið 2014, gengið
til liðs við Ríki íslams og fengið þar
þjálfun í meðhöndlun vopna.
Hélt hann því næst til Evrópu,
ferðaðist sömu leið og flóttafólk og
miðlaði reynslu sinni til vígamanna
svo þeir gætu ferðast sömu leið.
AFP
Þýskaland Maðurinn er upphaflega frá Alsír og er hann sagður hafa sterk
tengsl við Ríki íslams, en leyniþjónustan lét lögreglu vita af þessu.
Lét vígamenn vita
af leið til Evrópu
Er nú í haldi lögreglu í Þýskalandi
Angela Merkel,
kanslari Þýska-
lands, segir að-
gerðir Rússa í
Úkraínu hafa
dregið mjög úr
því trausti sem
vesturveldin
báru til ráða-
manna í Kreml.
Ummælin lét hún falla við
blaðamenn þegar samskipti Atl-
antshafsbandalagsins (NATO) við
Rússa voru rædd í tengslum við
leiðtogafund bandalagsins sem
hefst í dag. Er fundurinn haldinn í
Varsjá í Póllandi og lýkur honum
á morgun.
Merkel segir fundinn verða
haldinn nú þegar „öryggismál
hafa gjörbreyst í Evrópu“ og
bendir einnig á versnandi ástand í
ríkjum á borð við Sýrland, Írak og
Líbýu.
ÞÝSKALAND
NATO fundar við
gjörbreytt ástand
Tala þeirra sem týndu lífi í spreng-
ingunni sem varð í Karrada-hverfi í
Bagdad var í gær komin í 292.
Árásin átti sér stað á sunnudag og
eru björgunarmenn enn að endur-
heimta jarðneskar leifar fólks úr
húsarústunum, en um er að ræða
mannskæðustu sprengjuárás í Írak
um langt skeið. Yfir 200 særðust.
Adila Hamoud heilbrigðis-
ráðherra segir að unnið sé að því að
bera kennsl á 177 lík, en búið er að
afhenda ættingjum 115 lík til
greftrunar.
KARRADA-HVERFI
Hátt í 300 látnir eft-
ir árásina í Bagdad
Theresa May, innanríkisráðherra
Breta, og Andrea Leadsom, orku-
málaráðherra Breta, munu keppa
um að verða næsti formaður
Íhaldsflokksins og forsætisráð-
herra Bretlands. Varð þetta ljóst
eftir kosningu þingmanna flokks-
ins í báðum þingdeildum milli
frambjóðenda.
May fékk langflest atkvæði, eða
199 talsins. Leadsom hlaut 84 at-
kvæði og Michael Gove, dóms-
málaráðherra Breta sem bauð sig
fram öllum að óvörum eftir að hafa
sagst ætla að styðja Boris John-
son, hlaut 46 atkvæði.
Nú munu almennir flokksfélagar
í Íhaldsflokknum kjósa á milli
þessara tveggja frambjóðenda, þ.e.
May og Leadsom, í póstkosningu,
sem stendur til 8. september. Úr-
slitunum verður svo lýst 9. sept-
ember.
Margaret Thatcher var seinasti
kvenkyns forsætisráðherra Breta
og gegndi hún embættinu frá 1979
til 1990. Var hún einnig á sínum
tíma formaður Íhaldsflokksins.
Theresa
May
Andrea
Leadsom
May og
Leadsom
standa eftir
Michael Gove úti
www.fr.is
FRÍTT VERÐMAT
ENGAR SKULDBINDINGAR
HRINGDU NÚNA
820 8081
sylvia@fr.is
Sylvía G. Walthersdóttir
Löggiltur fasteignasali
Salvör Davíðsdóttir
Nemi til lögg.fasteignasala
Brynjólfur Þorkellsson
Sölufulltrúi
Sjöfn Ólafsdóttir
Skrifstofa