Morgunblaðið - 08.07.2016, Page 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 2016
✝ FinnbogiGíslason fædd-
ist á Akureyri 12.
október 1933.
Hann lést á Land-
spítalanum 29. júní
2016.
Foreldrar Finn-
boga voru hjónin
Gísli R. Magnússon
frá Björgum í
Eyjafirði, f. 4.
ágúst 1882, d. 24.
ágúst 1967, og Herdís Finn-
bogadóttir frá Fögrubrekku í
Hrútafirði, f. 15. júlí 1895, d. 30.
september 1960. Systkini Finn-
boga eru Sigríður Gísladóttir, f.
17. júlí 1916, d. 6. júní 2015,
Rósa Gísladóttir, f. 31. mars
1919, d. 23. janúar 1999, Magnús
Gíslason, f. 25. febrúar 1935.
Finnbogi ólst upp í Strandgöt-
unni á Akureyri og gekk í Gagn-
fræðaskóla Akureyrar. Sextán
ára fór hann til sjós og sigldi hjá
Eimskipafélagi Íslands til ársins
1974. 19 ára hóf hann nám við
Stýrimannaskólann og lauk það-
an prófi 1956.
Finnbogi giftist Sólveigu Sig-
urðardóttur 7. júlí 1956. Sólveig
Herdís Finnbogadóttir, f. 7.
október 1964, gift Ólafi Gunnari
Guðlaugssyni, f. 1964, og eiga
þau tvo syni Ara og Ragnar.
Finnbogi útskrifaðist frá
Stýrimannaskólanum í Reykja-
vík með farmannapróf 11. maí
1956. Hann sigldi sína fyrstu
ferð sem stýrimaður á Goðafossi
og sigldi síðan á Gullfossi og
Lagarfossi. Hinn 13. júlí 1969
sigldi hann sína fyrstu ferð sem
skipstjóri á Lagarfossi og síðan
1. stýrimaður og skipstjóri á
Mánafossi þar til hann hætti sjó-
mennsku 1974. Árið 1977 stofn-
aði hann í samstarfi við fleiri
skipafélagið Bifröst og starfaði
þar uns hann hóf störf hjá Haf-
skipi. Árið 1982 fluttustu þau
hjón til Bandaríkjanna og
bjuggu til að byrja með á Long
Island og síðan á Flórída þar til
yfir lauk. Finnbogi var virkur
meðlimur í rótaríklúbbi Sel-
tjarnarness. Hann gekk í klúbb-
inn 1974 og var í honum til
dauðadags. Síðustu ár Finnboga
bjó hann í Ventura Country
Club, Orlando, og naut þess að
spila þar golf með fjölskyldu og
góðum vinum og fram á síðasta
dag.
Útför hans verður gerð frá
Neskirkju í dag, 8. júlí 2016, og
hefst athöfnin klukkan 15.
var f. 31. ágúst 1936
og lést 21. júní 1991.
Sólveig var dóttir
hjónanna Sigurðar
O. Björnssonar, f.
27. janúar 1901, d.
3. janúar 1975, og
Kristínar Bjarna-
dóttur, f. 17. janúar
1909, d. 8. nóv-
ember 1984. Finn-
bogi og Sólveig
eignuðust þrjú
börn. 1) Kristín Finnbogadóttir,
f. 9. janúar 1957, gift Axel Þóri
Friðrikssyni, f. 1956. Börn
þeirra eru a) Finnbogi Haukur,
f. 1983, í sambúð með Karólínu
Ösp Pálsdóttur, b) Orri, f. 1984, í
sambúð með Silju Rut Sigur-
finnsdóttur og eiga þau soninn
Sölva Hrafn, c) Sólveig, f. 1992
og d) Arnar Þór, f. 1994. 2) Sig-
urður Finnbogason, f. 6. apríl
1959, sonur hans með Sigrúnu
K. Ægisdóttur er Þór Sigurðs-
son, f. 1978. Þór er í sambúð
með Hildi Eddu Grétarsdóttur
og eiga þau tvö börn, Kolbrúnu
Gígju og Sigurð Grétar. Þór á
fyrir soninn Þórhall Darra með
Rakel Ósk Þórhallsdóttur. 3)
Elsku besti afi Bimbi, við
söknum þín öll afskaplega mik-
ið og erum mjög þakklát fyrir
tímann sem við fengum með
þér núna undir lokin. Þú varst
eins góður afi og hægt var að
hugsa sér og við vorum montin
af því að þú varst afi okkar.
Hvort sem við hugsum um
Barðaströndina, Boca eða Or-
lando þá var alltaf jafn gott að
koma til þín og vera hjá þér,
með þér. Við elskuðum að koma
út til þín og það sást svo vel
hvað þú varst alltaf glaður að
sjá okkur. Þú spurðir okkur
alltaf hvað var í gangi í okkar
lífi og hafðir einlægan áhuga á
því þegar við sögðum þér frá.
Þú varst stór partur í lífi okkar
allra og það verður erfitt að
geta ekki komið aftur í heim-
sókn til þín á Clear Stream
Drive. Á svona stundu óskar
maður þess að við hefðum haft
meiri tíma saman, en við vitum
að tíminn sem við áttum saman
áður og nú undir lokin er ómet-
anlegur og þú kvaddir þennan
heim umkringdur fjölskyldu
þinni sem elskaði þig svo mikið.
Við vitum að amma tók vel á
móti þér og nú getið þið verið
saman á ný. Takk fyrir að vera
afi okkar, takk fyrir að vera
vinur okkar. Við elskum þig öll,
þín barnabörn,
Finnbogi, Orri, Sólveig
og Arnar Þór.
Enn á ný er skarð fyrir skildi
er einn af okkar ágætu vinum
og félögum í Rótarýklúbbi Sel-
tjarnarness er fallinn frá. Finn-
bogi Gíslason var einn af elstu
félögum klúbbsins og gekk í
raðir hans árið 1974 eða ein-
ungis þremur árum eftir að
klúbburinn var stofnaður. Það
var öflugur og samhentur hóp-
ur manna sem stóð að stofnun
og rekstri Rótarýklúbbs Sel-
tjarnarness á fyrstu starfsárum
hans.
Áhersla var lögð á að láta
gott af sér leiða á Nesinu.
Þannig beitti klúbburinn sér
fyrir endurgerð Albertsbúðar í
Gróttu og fegrun umhverfisins
sem á þessum árum fólst m.a. í
því að tína rusl úr fjörunum á
vorin í og við Gróttu.
Þá lagði klúbburinn áherslu
á gott samstarf við grunnskól-
ann á Seltjarnarnesi og hóf að
veita útskriftarnemendum í 10.
bekk í Valhúsaskóla viðurkenn-
ingu fyrir prúða framkomu og
góðan námsárangur. Finnboga
voru málefni unga fólksins of-
arlega í huga auk þess sem
hann var mikill Rótarýmaður
og beitti sér fyrir framgangi
þeirra mála sem Rótarýhreyf-
ingin setti á oddinn hverju
sinni.
Hin síðari ár hefur Finnbogi
búið í Bandaríkjunum og sendi
okkur reglulega mætingakort
frá klúbbum sem hann heim-
sótti þar í landi. Þá mætti hann
einnig á fundi hjá okkur þegar
tækifæri gafst til og voru það
fagnaðarfundir.
Við vottum fjölskyldu Finn-
boga samúð. Blessuð sé minn-
ing hans.
Guðbrandur Sigurðsson,
forseti Rótarýklúbbs
Seltjarnarness.
Finnbogi Gíslason
✝ Sigurður Ey-mundson fædd-
ist 5. febrúar 1943
á Höfn í Hornafirði.
Hann lést á heimili
sínu að Suðurlands-
braut 60 í Reykja-
vík 27. júní 2016.
Foreldrar hans
voru Eymundur
Sigurðsson, f. 11.
ágúst 1920 í Þinga-
nesi í Hornafirði,
hafnsögumaður á Höfn, d. 16.
október 1986, og Lukka Ingi-
björg Magnúsdóttir, húsfreyja á
Höfn, f. 11. desember 1920 í
Naustahvammi í Norðfirði, d.
22. apríl 2008.
Systkini Sigurðar eru: Anna
Margrét Eymundsdóttir, f. 28.
maí 1944, Agnes Eymunds-
dóttir, f. 12. ágúst 1945, Eygló
Eymundsdóttir, f. 19. desember
1947, Albert Eymundsson, f. 25.
febrúar 1949, Ragnar Hilmar
Eymundsson, f. 4. apríl 1952,
Brynjar Eymundsson, f. 28.
október 1953, Benedikt Þór Ey-
mundsson, f. 10. ágúst 1955,
Halldóra Eymundsdóttir, 27.
október 1957, Óðinn Eymunds-
son, f. 5. október 1959.
Þann 11. ágúst 1962 kvæntist
Sigurður Olgu Ólu Bjarnadóttur
frá Djúpavogi, f. 11. ágúst 1942 í
Reykjavík. Börn Sigurðar og
mannsprófi á níunda áratugn-
um.
Sigurður vann lengst af hjá
Rafmagnsveitum ríkisins (RA-
RIK), fyrst sem rafvirki og
flokksstjóri árið 1967 en síðar
sem rafveitustjóri á Höfn í eitt
ár. Eftir að Sigurður lauk tækni-
fræðinámi í Danmörku í árslok
1973 kom hann til starfa hjá Ra-
rik að nýju og starfaði þá á
framkvæmdadeild. Árið 1978
var Sigurður skipaður um-
dæmisstjóri Rarik á Norðurlandi
vestra, með aðsetur á Blönduósi,
og gegndi því starfi í 12 ár, eða
þar til hann tók við sem umdæm-
isstjóri á Austurlandi árið 1990,
með aðsetur á Egilsstöðum. Árið
2004 varð hann framkvæmda-
stjóri virkjanasviðs Rarik. Allan
sinn starfsaldur tók Sigurður
þátt í fyrirtækjarekstri Olgu
konu sinnar en hún rak verslanir
í Reykjavík og á Blönduósi og
síðar kaffi- og gistihús á Egils-
stöðum. Sigurður tók virkan
þátt í félagsstarfsemi hvar sem
hann bjó. Hann var sjálfstæð-
ismaður og virkur þátttakandi í
starfsemi flokksins. Hann starf-
aði m.a. í ungmennafélagshreyf-
ingunni, JC, Lions, Rotary og
Frímúrareglunni. Hann var
virkur í starfsemi tengdri flugi
og harmónikkuleik, en það voru
hans helstu áhugamál. Sigurður
var oft valin í stjórn þeirra fé-
laga sem hann starfaði í, oft sem
formaður en oftast sem gjald-
keri.
Útför Sigurðar fer fram frá
Hallgrímskirkju í dag, 8. júlí
2016, klukkan 15.
Olgu eru: 1) Ey-
mundur verkfræð-
ingur búsettur í
Mosfellsbæ, f. 22.
mars 1962, kvænt-
ur Ragnheiði
Bragadóttur hér-
aðsdómara. Börn
þeirra eru: a) Bragi
Steinn, f. 1994, b)
Sigurður, f. 1996,
og c) Halla, f. 2001.
2) Hanna Birna
verkfræðingur búsett í Kaup-
mannahöfn, f. 2. desember
1973. Maki Jesper Dalby verk-
fræðingur. Dætur þeirra eru: a)
Sif, f. 2004, b) Liv, f. 2006, og c)
Nanna, f. 2012. 3) Bjarni Gauk-
ur tölvunarfræðingur í Reykja-
vík, f. 18. maí 1975. Maki Elísa-
bet Jónsdóttir listamaður. Börn
þeirra eru: a) Bríet, f. 2003, b)
Þór Óli, f. 2006, og Olga Elísa, f.
2012.
Sigurður ólst upp á Höfn í
Hornafirði. Hann fór í Héraðs-
skólann á Laugum haustið 1959
þar sem hann kynntist Olgu,
eftirlifandi eiginkonu sinni.
Hann tók sveinspróf í rafvirkj-
un 1965 og lauk tækni-
fræðinámi í Árósum í Dan-
mörku 1973. Árið 1990 stundaði
hann nám í raforkuhagfræði við
University of Texas, Arlington.
Sigurður lauk einnig einkaflug-
Komið er að kveðjustund. Sig-
urður tengdafaðir minn hefur
kvatt þetta líf eftir erfið veikindi.
Þótt liðin séu 34 ár er eins og gerst
hafi í gær að ég hitti þau hjón
fyrst, Sigurð og Olgu, við útskrift
frumburðar þeirra og verðandi
eiginmanns míns frá Laugarvatni
vorið 1982. Þangað komu þau hjón
á spánnýrri, fagurbrúnni Saab-bif-
reið, sem angaði að innan af „nýja-
lykt“. Með í för voru yngri börnin,
þau Hanna Birna og Gaukur, þá
sjö og níu ára. Ýmsar ógleyman-
legar athugasemdir hrutu af
vörum ungu systkinanna í aftur-
sæti bifreiðarinnar góðu á leiðinni í
bæinn, sem ekki voru til þess falln-
ar að bæta líðan hinnar feimnu og
ofurviðkvæmu verðandi tengda-
dóttur. En úr því að ég lifði þessi
fyrstu kynni af hlaut eftirleikurinn
að verða auðveldari.
Og það varð hann svo sannar-
lega. Vart er hægt að hugsa sér
heilsteyptari mann en hann
tengdaföður minn. Heiðarleiki,
samviskusemi, óbilandi þolinmæði
og dugnaður eru orð sem koma í
hugann þegar lýsa á mannkostum
hans. Einnig yfirvegun og prúð-
mennska.
Siggi var tæknimaður af Guðs
náð og fylgdist með nýjustu tækni
af miklum áhuga. Átti alltaf nýj-
ustu „græjurnar“ þegar kom að
nútímatækni. Verklaginn var hann
með afbrigðum og útsjónarsamur í
framkvæmdum. Þessi eiginleiki
kom sér afar vel þegar Olga hóf
rekstur kaffihúss og síðar gisti-
húss á Egilsstöðum, en í þeim efn-
um lagði Siggi drjúga hönd á plóg
meðfram fullri vinnu sem yfirmað-
ur Rarik á Austurlandi.
Í mörg ár átti Siggi hlut í flug-
vél, fyrst á Blönduósi og síðar á
Egilsstöðum. Gaman var að fara
með honum í útsýnisflug og minn-
isstæð er síðasta ferðin með hon-
um einn góðviðrisdaginn fyrir
austan þar sem flogið var yfir tign-
arleg Austfjarðafjöllin og litskrúð-
ugt landslagið á Lónsöræfum.
Börnum okkar reyndist Siggi
hinn besti afi og athygli vakti hvað
þau hændust að honum sem ungir
krakkar. Siggi afi var kletturinn
sem gott var að leita til. Meira að
segja hundurinn okkar, hann
Tryggur, grét af gleði þegar Siggi
afi kom í heimsókn.
Við fjölskyldan erum þakklát
fyrir allar samverustundirnar sem
við höfum átt í gegnum tíðina með
þeim hjónum. Fyrst á Árbrautinni
á Blönduósi, þá á Koltröðinni á Eg-
ilsstöðum og nú síðustu ár hér í
höfuðborginni. Á meðan Siggi og
Olga bjuggu fyrir austan gistu þau
gjarnan hjá okkur þegar þau áttu
erindi í bæinn. Þá var oft slegið
upp veislu og skrafað fram á nótt
um heima og geima. Afar dýrmætt
var fyrir börnin okkar að kynnast
afa og ömmu í daglegu lífi á meðan
við bjuggum á Egilsstöðum um
þriggja ára skeið fyrir nokkrum
árum. Frá þeim tíma eigum við
fjölskyldan góðar og dýrmætar
minningar.
Áðurlýstir mannkostir Sigurðar
komu berlega í ljós í veikindum
hans síðustu árin. Erfiðleikum sín-
um mætti hann af aðdáunarverðu
æðruleysi, yfirvegun og raunsæi.
Það var erfitt að sjá þennan góða
mann lúta í lægra haldi fyrir ofur-
eflinu. En við getum huggað okkur
við að hann átti góða og gjöfula ævi
og skilaði drjúgu ævistarfi sem
hann gat verið stoltur af. Að leið-
arlokum þakka ég tengdaföður
mínum samfylgdina og bið Guð að
blessa minningu hans.
Ragnheiður Bragadóttir.
Það er virkilega erfitt að kveðja
afa sinn, en það hjálpar að hugsa
til þess hvern mann hann hafði að
geyma. Besta leiðin til þess að lýsa
honum Sigga afa er í raun fólgin í
því að telja upp öll góðu og já-
kvæðu lýsingarorðin sem til eru á
íslensku til að lýsa góðri mann-
Sigurður
Eymundsson
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Minningargreinar
Elsku besti pabbi okkar, tengdapabbi, afi
og langafi,
FINNBOGI GÍSLASON,
fyrrverandi skipstjóri,
lést á Landspítalanum í faðmi
fjölskyldunnar þann 29. júní sl.
Útförin verður gerð frá Neskirkju 8. júlí klukkan 15.
.
Kristín Finnbogadóttir, Axel Friðriksson,
Sigurður Finnbogason,
Herdís Finnbogadóttir, Ólafur G. Guðlaugsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma, langamma og
langalangamma,
ÞÓRUNN ÁGÚSTA SIGURÐARDÓTTIR,
Borgartúni, Garði,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 2.
júlí. Útförin fer fram frá Útskálakirkju þriðjudaginn 12. júlí kl. 14.
.
Guðni Ingimundarson,
Sigurjóna Guðnadóttir, Ásgeir M. Hjálmarsson,
Ingimundur Þ. Guðnason, Drífa Björnsdóttir,
Árni Guðnason, Hólmfríður I. Magnúsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Hjartkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
JÓN HÉÐINN PÁLSSON
frá Miðkoti, Dalvík,
andaðist á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
1. júlí. Jarðsett verður frá Dalvíkurkirkju
klukkan 13.30 þriðjudaginn 12. júlí.
Sérstakar þakkir til starfsfólks HSS fyrir góða umönnun.
.
Sesselía Björk Guðmundsdóttir,
Sigurjón Páll Jónsson, Signe Rindom,
Óli Vignir Jónsson, Þórunn Margrét Jónasdóttir,
Guðmundur H. Jónsson, Ósk Jórunn Árnadóttir,
Anna María Jónsdóttir,
Árni Örn Jónsson, Harpa Helgadóttir,
Jón Bjarki Jónsson, Unnur Stefánsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulega föðursystir okkar, mágkona
og frænka,
HANNA Ó. ANDRÉSDÓTTIR CRONIN,
529 Cooper Rd, Northbridge, MA,
Bandaríkjunum,
lést 5. júlí síðastliðinn.
.
Laufey Linda Harðardóttir,
Elfur Erna Harðardóttir,
Ragnheiður Guðmundsdóttir,
fjölskyldur og aðrir ættingjar.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir
og systir,
MARÍA DRÖFN JÓNSDÓTTIR,
Njarðarvöllum 2, Reykjanesbæ,
áður til heimilis að Kirkjuvegi 57,
Keflavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Nesvöllum sunnudaginn 3. júlí.
Útförin fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju mánudaginn 11. júlí
klukkan 15. Við viljum koma á framfæri sérstökum þökkum til
starfsfólks hjúkrunarheimilisins á Nesvöllum.
.
Guðmundur A. Gunnarsson,
Guðbjörg M. Gunnarsdóttir, Ingi Þór Reynisson,
Vala Braun, Cal Braun,
Guðmundur Ingi Jónsson, Bjarney Ó. Gunnarsdóttir,
Íris Kröyer Jónsdóttir, Gísli Harðarson,
Þór Viðar Jónsson.