Morgunblaðið - 08.07.2016, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 2016
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar 4 Smíðar og útskurður með leiðbeinanda kl. 8.30-16.30.
Innipútt og úti, opið kl. 11-12.
Garðabær Opið í Jónshúsi og heitt á könnunni alla virka daga kl.
9.30- 16. Hádegismatur kl. 12, pantað með dags fyrirvara, meðlæti
selt með síðdegiskaffinu kl. 14-15.50.
Gullsmári Tiffanýgler kl. 9, ganga kl. 10. Hárgreiðslustofa og fóta-
aðgerðastofa á staðnum. Allir velkomnir!
Hraunbær 105, 110 Reykjavík Kaffiklúbburinn, allir velkomnir í
kaffi kl. 9. Opin handavinna, leiðbeinandi kl. 9–12. Hádegismatur kl.
11.30. Fáum barnakór í heimsókn úr leikskólanum Heiðarborg kl.13.
Kaffi kl. 14.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, morgunkaffi og
spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi. Morgunleikfimi kl.
9.45, matur kl. 11.30 og kaffi kl. 14.30.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, morgunleik-
fimi kl. 9.45, upplestur kl. 11, bíngó kl. 14, ganga með starfsmanni kl.
14. Uppl. í s. 411 2760.
Stangarhylur 4, FEB Reykjavík Dansað sunnudagskvöld kl. 20,
Hljómsveit hússins leikur fyrir dansi. Veitingar við flestra hæfi.
Smáauglýsingar
Húsgögn
Hjónarúm án dýnu
Til sölu hjónarúm 180x200. Búið er
að taka rúmið í sundur til að auð-
velda flutning. Selst mjög ódýrt.
Upplýsingar í síma 620-3003.
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Rotþrær-vatnsgeymar-
lindarbrunnar.
Rotþrær og siturlagnir.
Heildar lausnir - réttar lausnir.
Heitir Pottar.
Lífrænar skolphreinsistöðvar.
Borgarplast.is,
Mosfellsbæ, sími 561 2211
Iðnaðarmenn
Ýmislegt
Jessenius Faculty of Medicine
í Martin Slóvakíu heldur
inntökupróf í læknisfræði Martin
14. júlí og 15. ágúst nk.
Palacký University í Olomouc í
Tékklandi heldur inntökupróf í júlí
og ágúst í tannlæknisfræði og
læknisfræði.
Kaldasel ehf., Runólfur
Oddsson. Uppl. í s. 5444333 og
fs. 8201071
kaldasel@islandia.is
Hjólbarðar
Matador fólksbíla- og jeppadekk
auk heilsársdekk - útsala
Framleidd af Continental í Slóvakíu
Kaldasel ehf., dekkjaverkstæði
Dalvegur 16 b, 201 Kópavogur
s. 5444333 kaldasel@islandia.is
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á
eskju; þau passa öll vel við hann
afa. Hann Siggi afi var ljúfur,
hjálpsamur, hugrakkur, áhuga-
samur, yfirvegaður og heilt yfir
virkilega góð sál. Það sem lýsir
honum þó best er það hversu þol-
inmóður hann var. Ég hef aldrei
kynnst nokkrum eins þolinmóðum
og hugrökkum og hann afi var. Afi
glímdi við erfið veikindi síðustu ár,
en kvartaði samt aldrei. Hann tók
sjúkdómnum eins og sönn hetja og
barðist eins lengi og hægt var.
Hann var aldrei neikvæður eða
reiður. Aldrei tapaði hann lífsgleð-
inni; ekki einu sinni undir lokin
þegar baráttan var orðin virkilega
erfið.
Ég hef hugsað mikið til þess
undanfarna daga hversu góður og
þolinmóður hann var við mig þeg-
ar við fjölskyldan bjuggum á Eg-
ilsstöðum. Þá var auðsótt mál að fá
að fara yfir til ömmu og afa til að
horfa á fótboltaleiki í gegnum
gervihnöttinn sem afi átti, en þar
var hægt að finna alla leiki. Þótt afi
hafi ekki haft næstum því jafnmik-
inn áhuga á fótbolta og ég settist
hann samt alltaf niður og horfði á
leikina með mér. Hann hafði nefni-
lega áhuga á öllu sem börnin hans
og barnabörnin höfðu áhuga á. Við
afi deildum einnig sömu sýn á póli-
tík (ég ætla þó ekki að fara nánar
út í þá sálma) en við gátum talað
um pólitíkina á Íslandi eins og
margt annað klukkustundunum
saman.
Ég kveð afa minn með mikilli
sorg, en er afar þakklátur fyrir
þann tíma sem við áttum saman.
Ég er virkilega stoltur og þakk-
látur fyrir að hafa átt hann sem
afa.
Bragi Steinn Eymundsson.
Siggi bróðir var einstaklega vel
gerður og vandaður drengur.
Hann var elstur af okkur tíu systk-
inunum, hlýr og umhyggjusamur
bróðir. Siggi var samviskusamur
og vandvirkur, greindur og gekk
vel í skóla, músíkalskur, góður og
efnilegur íþróttamaður, listfengur
og allt lék í höndum hans. Betri
fyrirmynd var vart hægt að hugsa
sér. Mannkostir hans og fjölþættir
hæfileikar hvöttu okkur systkinin
til að standa okkur vel. Ekki sakar
að geta þess að sumum fannst
hann bera svipmót af sjálfu átrún-
aðargoði allra unglinga á þessum
tíma, sjálfum kónginum Presley.
Að alast upp í stórum systkina-
hópi í 80 fermetra húsnæði við tak-
mörkuð veraldleg efni hefur ef-
laust haft áhrif á þá miklu
samkennd sem hefur einkennt
samskipti okkar alla tíð. Þrátt fyrir
þröngan kost var enginn skortur á
glaðværð og umburðarlyndi í
Vallanesi sem hefur reynst gott
veganesti.
Siggi var gæfumaður og ung
bundust þau Olga tryggðaböndum
og tókust á hendur þá ábyrgð að
stofna fjölskyldu. Eftirtektarvert
var hvað þau voru samrýmd og
studdu hvort annað vel í öllu sem
þau tóku sér fyrir hendur. Börn
þeirra og fjölskyldur bera þess
vitni að hafa fengið góðan undir-
búning til að takast á við lífið og
framtíðina.
Siggi og Olga voru höfðingjar
heim að sækja og nutum við syst-
kinin þess í ríkum mæli. Hvort
sem við komum saman, nokkur
eða 130 manna stórfjölskyldan, var
bróðir okkar og nikkan hans mið-
depillinn. Hann var flottur harm-
onikkuleikari og naut þess svo
sannarlega að koma öllum í hátíð-
arskap og halda uppi fjörinu, oft
með öðrum meðspilurum úr fjöl-
skyldunni.
Það kom ekki á óvart að Sigga
væru falin krefjandi ábyrgðastörf
og mannaforráð hjá RARIK.
Hann fór ekki í manngreinarálit og
samferðamenn hans nutu þess að
samskipti hans einkenndust af
hæversku og tillitssemi. Honum
var umhugað um gott orðspor fyr-
irtækisins og gekk sjálfur á undan
með góðu fordæmi og vinnusemi
til að svo mætti vera. Sama gilti
um þátttöku hans í fjölmörgum fé-
lagasamtökum, þar var hann öfl-
ugur liðsmaður. Með jákvæðri
framgöngu og málefnalegum mál-
flutningi ávann hann sér traust og
virðingu enda oftar en ekki valinn
til trúnaðarstarfa og skoraðist þá
ekki undan ábyrgð.
Nokkrum dögum fyrir andlátið
áttum við systkinin og makar dýr-
mæta stund saman á heimili Sigga
og Olgu. Kveðjustund að hans ósk.
Með þessu sýndi hann aðdáunar-
vert æðruleysi og kjark. Með ein-
lægni sinni og hreinskilni vildi
hann koma til skila hversu þakk-
látur hann var fyrir samheldni og
samhug sem hefur einkennt sam-
skipti okkar og veitt okkur
ómældar hamingju- og gleði-
stundir.
Við höfum alla tíð verið stolt af
bróður okkar og verðum ævinlega
þakklát fyrir allt sem hann var
okkur og gerði fyrir okkur öll.
Við dáumst að hvernig Olga,
Eymundur, Hanna Birna, Bjarni
Gaukur og fjölskyldur hafa tekist
á við erfiða daga undanfarið. Við
biðjum þeim guðs blessunar og
megi góðar og fallegar minningar
verða þeim huggun í sorginni.
Anna, Agnes, Eygló, Albert,
Ragnar, Brynjar, Benedikt,
Halldóra og Óðinn.
Nú er fallinn frá vinur okkar
Sigurður Eymundsson. Okkar
fyrstu kynni af Sigga byrja í
Tækniskólanum í Reykjavík og
aukast enn meir eftir að við förum
til framhaldsnáms og annarra
starfa í Árósum í Danmörku. Þau
kynni og vinátta sem með okkur
öllum tókst í Danmörku er alveg
einsök og hefur vaxið og dafnað
allar götur síðan. Þessi hópur
samanstóð af sex fjölskyldum,
samtals 21 einstaklingi, og fékk
nafnið Árósagengið og hefur hald-
ið hópinn vel. Allar minningar sem
tengjast þessum árum eru afar
ánægjulegar og framúrstefnu
flutningsmáti heim með hrossa-
flutningavél frá Iscargo er afar
eftirminnilegur. Nokkrum árum
síðar er allur hópurinn aftur kom-
inn saman á Íslandi og hefur þá
stækkað talsvert með fleiri börn-
um. Þá upphefst frægur tími Ár-
ósapartía þar sem Siggi var alltaf
hrókur alls fagnaðar með nikkuna
sína og spilaði fyrir dansi og mikl-
um söng.
Við söknum sárt góðs vinar og
félaga. Blessuð sé minning þín.
Vottum þér Olga og fjölskyldu
þinni okkar dýpstu samúð vegna
fráfalls Sigga. Minning um góðan
vin mun lifa áfram í hjörtum okk-
ar.
Deyr fé
deyja frændur
deyr sjálfur ið sama.
En orðstír
deyr aldregi
hveim er sér góðan getur.
(Úr Hávamálum.)
Hulda og Pétur,
Kristján og Dóra,
Inga og Snæbjörn,
Pétur og Svava,
Áslaug (Ása).
Fráfall Sigurðar Eymundsson-
ar kom mér á óvart. Þegar við
sáumst síðast hefði mér þótt það
fjarstæða, að það gæti komið í
minn hlut að rita um hann kveðju-
orð. Kynni okkar hófust er hann
var ráðinn umdæmisstjóri Rarik á
Blönduósi. Seinna gegndi hann
sama starfi á Egilsstöðum, en
hann var frá Höfn og Austurland
honum kært. Á Blönduósi var
hann fljótlega valinn í forystusveit
sjálfstæðismanna í sveitarstjórn.
Við áttum því margt saman að
sælda, því þess má geta að ég átti
sæti í stjórn Rarik lengur en elstu
menn muna.
Það var aldrei hávaði í kringum
störf Sigurðar Eymundssonar. Ég
spurði hvernig maður hann væri,
þegar hans var von norður og
svarið var einfalt. Hann leysir öll
mál. Þetta reyndust orð að sönnu.
Honum var einstaklega lagið að ná
niðurstöðu í ágreinings- eða
átakamálum, þannig að allir
mættu vel við una. Kom þar m.a.
til yfirsýn hans, lipurð og tillits-
semi við aðra og hélt hann þó
ávallt vel á sínum hlut. Ég hygg að
hann hafi átt vinarhug allra þeirra
sem með honum störfuðu, hvar í
fylkingu sem þeir stóðu.
Ég er honum þakklátur fyrir
samskipti okkar öll, vináttu hans,
hreinskiptni og drengskap. Það
var alltaf gott að koma á heimili
þeirra hjóna Olgu og Sigurðar
hvort sem það var fyrir norðan eða
austan og njóta þar gleði og hlýju.
Síðast komum við Helga til þeirra
á Egilsstöðum í stórafmæli Sig-
urðar og var þar gríðarleg veisla
og glatt á hjalla. Minningar um
góðan dreng eru dýrmætar.
Við Helga sendum Olgu og allri
fjölskyldunni einlægar samúðar-
kveðjur.
Blessuð sé minning Sigurðar
Eymundssonar.
Pálmi Jónsson.
Í dag kveðjum við góðan vin og
samstarfsmann til fjölda ára, Sig-
urð Eymundsson, fyrrverandi um-
dæmisstjóra hjá RARIK.
Sigurður var starfsmaður RA-
RIK í nær fjóra áratugi og þar af
sem hluti af yfirstjórn fyrirtækis-
ins í um þrjátíu ár. Hann hóf störf
hjá RARIK 1967 sem rafvirki og
síðar rafveitustjóri á Höfn í
Hornafirði í eitt ár. Þá fór hann til
náms í rafmagnstæknifræði og
kom í framhaldi til starfa á fram-
kvæmdadeild RARIK í Reykjavík
og starfaði við hönnun aðveitu-
stöðva og annarra mannvirkja í
flutnings-dreifikerfi RARIK
næstu fimm árin. Hann tók við
starfi umdæmisstjóra fyrir Norð-
urland vestra, árið 1978 og fluttist
með fjölskylduna til Blönduóss. Í
því starfi kom hann að flestum
þáttum í rekstri fyrirtækisins,
hvort sem það sneri að tæknimál-
um, fjármálum, eða samskiptum
við viðskiptavini. Á Blönduósi var
Sigurður og fjölskyldan í 12 ár, eða
til 1990 að hann tók við sem um-
dæmisstjóri á Austurlandi með að-
setur á Egilsstöðum og gegndi því
starfi næstu 14 árin. Hann hafði í
störfum sínum á Blönduósi m.a.
komið að undirbúningi að bygg-
ingu Blönduvirkjunar, en á Aust-
urlandi kom hann enn frekar að
virkjanarekstri og sat m.a. í verk-
efnisstjórn vegna undirbúnings
stækkunar Lagarfossvirkjunar.
Hann tók 2004 við stöðu fram-
kvæmdastjóra virkjanasviðs
RARIK sem hann gegndi þar til
hann lét af störfum árið 2007.
Í störfum sínum kom Sigurður
að miklum fjölda verkefna hjá RA-
RIK og sinnti fjölmörgum trúnað-
arstörfum, bæði innan fyrirtækis-
ins og fyrir hönd þess út á við.
Hann var vinamargur og mikill
vinur vina sinna, enda einstaklega
heill og góður drengur og þótt
hann hefði ákveðnar skoðanir var
hann alltaf tilbúinn til að ræða
málin, virða skoðanir annarra og
finna lausnir á öllum málum. Hann
hafði þann skemmtilega eiginleika
að geta tekist á um mál af fullri
festu, en staðið síðan upp að lokn-
um degi og ýtt frá öllum ágrein-
ingi. Þá greip hann gjarnan í nikk-
una og naut þess að skemmta sér
og öðrum, enda var hann mikill
gleðigjafi þegar við átti.
Nú þegar við kveðjum Sigurð
félaga okkar og vin hinstu kveðju
vil ég fyrir hönd fyrirtækisins og
okkar fyrrverandi samstarfs-
manna hans þakka honum ómet-
anlegt starf fyrir RARIK öll þessi
ár, vináttu hans og trúnað sem
hann sýndi fyrirtækinu og okkur
samstarfsmönnum sínum öllum.
Ég vil einnig þakka fyrir gott og
náið samstarf til fjölda ára og
mikla persónulega vináttu hans í
minn garð, bæði innan fyrirtækis
og utan. Það eru margar minning-
ar sem koma upp í hugann sem
ekki er hægt að tíunda hér, en upp
úr standa þó minningar úr fjöl-
mörgum ferðum okkar um landið,
einnig svokölluðum samstarfs-
nefndarfundum og nokkrum frá-
bærum veiðiferðum, þar sem Siggi
tók upp nikkuna í lok dags og sá til
þess að gera stundina ógleyman-
lega. Ég vil þakka fyrir þessar
stundir, en einnig einlæga vinátta
þeirra hjóna, Sigurðar og Olgu, í
garð okkar hjóna og fyrir að hafa
alltaf tekið okkur eins og við vær-
um hluti af þeirra eigin fjölskyldu.
Við kveðjum Sigurð nú með mikl-
um söknuði. Olgu og fjölskyldu
þeirra allri sendum við okkar inni-
legustu samúðarkveðjur.
Tryggvi Þór Haraldsson.
Fallinn er frá heiðursmaðurinn
Sigurður Eymundsson, fyrrver-
andi umdæmisstjóri RARIK á
Norðurlandi vestra og Austurlandi
sem og síðar frkvstj. virkjanasviðs.
Með honum er genginn maður sem
tók drjúgan þátt í uppbyggingu
þjóðfélagsins á sviði orkumála en
einnig í samfélagslegum verkefn-
um með virkri þátttöku í fé-
lagsmálum þar sem hann hafði
frelsi manna til verka og athafna að
leiðarljósi.
Sigurður starfaði í nær fjóra
áratugi hjá Rafmagnsveitunum og
tók drjúgan þátt í því hlutverki
þeirra að rafvæða hinar strjálli
byggðir landsins og þjónusta við-
skiptavinina þar. Þetta gat verið
erfitt starf og ekki heiglum hent að
standa í þeirri baráttu jafnt í hörð-
ustu hríðarbyljum vetrarins sem á
sólríkum sumardögum. Sigurður
var rólegur og yfirvegaður að eðl-
isfari en gat verið ákveðinn og
harður af sér ef svo bar undir og
stjórnaði sínum mönnum af einurð
en sanngirni. Ég starfaði með hon-
um í nær þrjá áratugi og hann kom
mér ávallt fyrir sjónir sem afskap-
lega heill og traustur maður sem
gott var að starfa með, maður sem
var hægt að treysta í hvívetna. Ég
leiddi tækni- og þróunarsvið fyrir-
tækisins á þessum árum og var
gott að starfa með Sigurði, hann
var faglegur í starfi sínu og vann
RARIK ávallt heilt sem og við-
skiptavinum þess.
Ekki fór það framhjá okkur
samferðamönnum Sigurðar hversu
góður tónlistarmaður hann var og
oftar en ekki var harmonikkan tek-
in fram að kvöldi eftir langa og
stranga samningafundi m.a. með
fulltrúum annarra orkufyrirtækja
og lagið þá tekið. Hafi menn ekki
verið búnir að komast að niður-
stöðu um daginn reyndist það mun
auðveldara eftir góðar samveru-
stundir kvöldsins þar sem Sigurð-
ur var hrókur alls fagnaðar.
Á síðustu árum sínum á Egils-
stöðum ráku þau Sigurður og Olga
fyrirtæki með veitinga- og ferða-
þjónustu. Mér er minnisstætt að ég
var eitt sinn á ferð með fjölskyldu
minni fyrir austan og snæddum við
kvöldverð á veitingastað Olgu sem
nefndist Kaffi Nielsen. Betri
hreindýrasteik höfum við ekki
fengið. Til þess að kóróna kvöldið
birtist húsbóndinn með harmon-
ikkuna og lék á hana af hjartans
lyst á meðan snætt var. Svona var
Sigurður í einu og öllu, gaf sig af
öllu hjarta í starf og leik, var vinur
vina sinna og verður því sárt sakn-
að.
Olgu, eiginkonu hans, og fjöl-
skyldu sendum við Anna okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Steinar Friðgeirsson.
Í dag kveðjum við harmonikku-
unnendur góðan og traustan vin og
félaga. Fyrstu kynni mín af Sigurði
voru þegar hann tók sæti í stjórn
Sambands íslenskra harmonikku-
unnenda og tókst með okkur góð
vinátta og gott samstarf. Hann var
kjörinn gjaldkeri sambandsins
haustið 2010 og gegndi því starfi af
nákvæmni og samviskusemi til
æviloka. Sigurður var úrræðagóð-
ur og það var gott að leita til hans
með ýmis málefni er vörðuðu sam-
bandið. Sigurður starfaði mörg á
með Harmonikkufélagi Héraðsbúa
og sat í stjórn þess í mörg ár. Eftir
að hann fluttist til Reykjavíkur
gekk hann í raðir Félags harmon-
ikkuunnenda í Reykjavík og tók
hann virkan þátt í starfi félagsins
og var góður fengur fyrir hljóm-
sveit FHUR. Hann var góður
harmonikkuleikari og einkar vand-
virkur í sinni spilamennsku á hljóð-
færið. Ég vil fyrir hönd Sambands
íslenskra harmonikkuunnenda
þakka Sigurði fyrir góð kynni og
samstarf og um leið senda eftirlif-
andi eiginkonu og fjölskyldu okkar
innilegustu samúðarkveðjur
F.h. SÍHU,
Gunnar Ó. Kvaran formaður.