Morgunblaðið - 08.07.2016, Blaðsíða 27
gekk í Rotaryhreyfinguna árið
2002, hefur starfað í Rot-
aryklúbbnum Rotary Breiðholt, sat
þar í stjórn sem gjaldkeri, hefur
setið í nefnd Útflutningsráðs Fé-
lags íslenskra stórkaupmanna, var
formaður þess um skeið, sat í
stjórn hóps æðardúnsútflytjenda
hjá FÍS og var fyrsti formaður
þess og hefur átt sæti í stjórn
nokkurra fyrirtækja. Hann var
einn aðalhvatamanna að stofnun
Íslensks-kínversks viðskiptaráðs
sem stofnað var 1997, var formað-
ur þess fyrstu sex árin og var val-
inn fyrsti heiðursfélagi ráðsins í
fyrra.
Sigtryggur hefur sinnt trún-
aðarstörfum fyrir Félag blindra og
sjónskertra á Íslandi, hefur setið í
stjórn félagsins og í stjórn
Blindrabókasafnsins og var for-
maður þess um skeið, auk þess
sem hann sat í stjórn Blindra-
vinnustofunnar og var formaður
þar um tíma. Þá hefur hann setið í
stjórn Átthagafélags Grunnvíkinga
í Reykjavík og hefur verið ræðis-
maður Slóveníu frá 2001. Sig-
tryggur var sæmdur gullmerki
FÍS árið 2001.
Fjölskylda
Sigtryggur kvæntist 19.9. 1968
Þorbjörgu Guðmundsdóttur, f. 7.1.
1942, skrifstofumanni. Foreldrar
hennar voru hjónin Guðmundur
Kristjánsson, f. 21.11. 1909, d. 29.3.
1998, skipamiðlari, af Deild-
artunguætt, og Gróa Ólafsdóttir, f.
5.7. 1916, d. 31.10. 2007, húsfreyja,
af Fremri-Hálsætt.
Börn Sigtryggs og Þorbjargar
eru Fjóla Guðrún, f. 22.8. 1969,
doktor í verkfræði og dósent við
NTNU í Þrándheimi, en maður
hennar er Eggert V. Valmund-
arson, verkfræðingur hjá Verkís,
og eru börn þeirra Þorbjörg Gróa
og Valmundur Rósmar; Magnús
Rósmar, f. 6.3. 1972, flugstjóri hjá
Icelandair en fyrrverandi kona
hans er Helena Gylfadóttir leik-
skólakennari og eru dætur þeirra
Margrét Rósa og Ásta Halldóra,
en núverandi sambýliskona Magn-
úsar er Maria Mazzucato og eiga
þau dótturina Isabellu Mariu; Guð-
mundur Rósmar, f. 14.11. 1974,
viðskiptafræðingur en kona hans
er Brynja Stefanie Swan, lögfræð-
ingur hjá Samkeppnisstofnun, og
eru börn þeirra Þorbjörg og Edw-
ard Dagur. Systur Sigtryggs eru
Þórey, f. 13.8. 1943, sálfræðingur,
uppeldis- og sérkennslufræðingur,
talmeinafræðingur og listamaður,
og Hildur Guðrún, f. 12.4. 1948,
bókasafnsfræðingur.
Foreldrar Sigtryggs: Eyþór
Magnús Bæringsson, f. 15.6. 1916,
d. 2.9. 1972, kaupmaður, og k.h.,
Fjóla Jósefsdóttir, f. 14.6. 1920, d.
16.10. 2012, húsfreyja.
Úr frændgarði Sigtryggs Rósmars Eyþórssonar
Sigtryggur Rósmar
Eyþórsson
Steinunn J. Björnsdóttir
húsfr. í Dunhagakoti
Einar Sigvaldason
b. í Dunhagakoti í
Hörgárdal
Guðrún Einarsdóttir
húsfr. í Grímsey og á Dalvík
Jósef Þorsteinsson
sjóm. og b. í Grímsey á Dalvík
Fjóla Jósefsdóttir
húsfr. í Rvík
Sigurbjörg Sigurðardóttir
húsfr. á Sveinsstöðum
Þorsteinn Vigfússon
b. á Sveinsstöðum í Skíðadal
Torfi
Björnsson
b. í Asparvík.
Björn
Björnsson
verslunarm.
á Hólmavík
Þórður
Björnsson
sjóm. og
bílstj. í
Keflavík
Gunnar
Þórðarson
tónskáld
og gítar-
leikari
Torfhildur
Torfadóttir
á Ísafirði sem
varð 107 ára
Hulda
Daníelsdóttir
iðnverkak.
Indíana
Einarsdóttir
húsfr. við Eyjafjörð
Jóhanna
Sigurjónsdóttir
húsfr. á Akureyri
Rósa
Antonsdóttir
iðnverkak. á
Akureyri
Þóroddur
Hjaltalín
milliríkja-
dómari í
knattspyrnu
Helga
Jósefsdóttir
húsfr. í Rvík
Ólafur Bjarki
Ragnarsson
starfsm. hjá
Skeljungi
Ragnar
Ólafsson
Íslandsm.
í golfi og
landsliðsein-
valdur í golfi
Guðmunda
Bæringsdóttir
húsfr. á
Ísafirði
Daníel
Gunnarsson
skipstj. á
norskum
fiskiskipum
Guðjón Björnsson
vinnum. í Hlíð í Strandasýslu,
af Kollafjarðarnesætt
Sigríður Guðjónsdóttir
iðnverkak. á Ísafirði og í Rvík
Bæring M.S.
Bæringsson
sjóm. í Furufirði
Eyþór Magnús
Bæringsson
kaupm. í Rvík
Halldóra F. Gísladóttir
húsfr. í Furufirði
Bæring Bæringsson
b. í Furufirði
Jónína G. Bogadóttir
vinnuk. Í Eyjum í Strandasýslu
Arnór
Sigurðsson
skipstj. á
Ísafirði
Aron Einar
Gunnarsson
fyrirliði
íslenska
landsliðsins í
knattspyrnu
Arnór
Gunnarsson
handbolta-
kempa
Gunnar
Arnórsson
skipstj. á Ísafirði
Jóhanna
Arnórsdóttir
húsfr. í Eyjafirði
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 2016
Ásmundur frá Skúfsstöðumfæddist á Skúfsstöðum íHjaltadal 8.7. 1899. For-
eldrar hans voru Jón Sigurðsson,
bóndi og sýslunefndarmaður á
Skúfsstöðum, og k.h., Guðrún Þor-
steinsdóttir húsfreyja.
Ásmundur kvæntist 1938 Irmu
Weile, danskri óperusöngkonu af
pólskum og þýskum ættum.
Ásmundur ólst upp á Skúfsstöðum
og hlaut góða heimamenntun. Hann
varð snemma vel lesinn í íslenskum
bókmenntum, ljóðum og sögum, fór
ungur til Reykjavíkur og gerðist
starfsmaður danska sendiráðsins
þar, fékkst við verslunarstörf og var
viðriðinn blaðamennsku um skeið,
gaf t.d. út blaðið Neista á Siglufirði
1919 og auglýsingablað í Reykjavík.
Ásmundur dvaldi lengi erlendis,
mest í Danmörku og Þýskalandi, en
eftir stríð fluttu þau Irma til Reykja-
vikur og áttu þar heima, síðast við
Lindargötuna.
Ásmundur var skáldmæltur og
komu út eftir hann þrjár ljóðabæk-
ur, Haföldur 1922, Skýjafar 1936, og
ljóðaflokkur um Hóla í Hjaltadal,
1932. Að öðru leyti fór ekki mikið
fyrir útgefnum skáldverkum hans.
En hann var sigldur, var ágætum
gáfum gæddur, víðlesinn, hafði gott
vald á íslensku tungutaki, jafnt í
mæltu máli sem rituðu, og var gædd-
ur eftirminnilegri frásagnarsnilld,
enda lyftist hann allur við hita minn-
inganna, einkum þegar hann sagði
sögur af skáldunum Matthíasi Joch-
umssyni og Einar Benediktssyni
sem hann starfaði hjá um hríð. Frá-
sagnir hans náðu þó ekki lengra en
til stríðsloka, eins og honum fyndist
að eftir það gerðust ekki markverðir
atburðir.
Ásmundur var oft með ýmsum
öðrum skáldum höfuðstaðarins.
Steinn Steinarr getur þess t.d. í
blaðaviðtali að hann hafi orðið sér úti
um rottueitur til að draga úr rottu-
gangi, hafi formað það eins og lag-
köku en þá hafi Ásmundur komið í
heimsókn, fengið sér bita af kökunni
og ekki orðið meint af. Þá má geta
þess að hann var síðastur íslenskra
skálda til að flytja konungi kvæði.
Ásmundur lést í september 1963.
Merkir Íslendingar
Ásmundur
Jónsson
90 ára
Viðar Þorláksson
85 ára
Ólöf I. Haraldsdóttir
80 ára
Agnes Egilsdóttir
Björn Trausti Ragnarsson
Elías Magnússon
Karl Einarsson
Oddur Jón Guðjónsson
Ólafur Rafn Jónsson
Ragna Steinunn
Eyjólfsdóttir
75 ára
Ásdís Bernburg
Áslaug Garðarsdóttir
Guðleifur Guðmundsson
Guðrún Beck
Jón Halldór Magnússon
Sigrún G. Björnsdóttir
Sigtryggur Rósmar
Eyþórsson
Sigurveig Sigurðardóttir
70 ára
Hugrún Engilbertsdóttir
Jakobína Jóhanna
Jóhannesdóttir
Jón Ármann Arason
Ragnhildur Óskarsdóttir
Þórður M. Þórðarson
60 ára
Bryndís Ingibjörg
Björnsdóttir
Finnbogi R. Alfreðsson
Hólmfríður Sigurðardóttir
Inga Jóhannsdóttir
Jón Helgi Eiðsson
Magnús Helgi Alfreðsson
Sigríður Einarsdóttir
50 ára
Börkur Arnarson
David Kelly
Fríður Reynisdóttir
Guðni Björn Jónsson
Hermann M. Arnþórsson
Hjalti Már Bjarnason
Jóhann Karl Þórisson
Rebekka Sigurðardóttir
Rúnar Ólafsson
Sigrún Lóa Sigurgeirsdóttir
Skúli Sigurðsson
Steinþór Baldursson
Svava Grímsdóttir
40 ára
Benedikt Þór Bárðarson
Bjarni Friðrik Jóhannesson
Gauti Stefánsson
Gerður Sif Ingvarsdóttir
Guðlaugur Valdimarsson
Inga Hrönn Kristjánsdóttir
Ingvar Þór Kristjánsson
Jóhann Hilmar Haraldsson
Pawel Henryk
Kosciukiewicz
Petra Fanney Bragadóttir
Sigurður Ingi Guðmarsson
Telma Steingrímsdóttir
30 ára
Anna Andrea Kjeld
Arndís Aðalbjörg
Finnbogadóttir
Hafþór Hauksson
Halldóra Kristjánsdóttir
Ilana Pereira Pinho
Kjartan Örn Sigurjónsson
Sandra Halldórsdóttir
Sebastian Ryszard
Dzierzchowski
Sergei Kazachek
Sigríður Erla Jónsdóttir
Sigurður Amlín Magnússon
Sóley Anna Pálsdóttir
Stefán Ingi Jónsson
Til hamingju með daginn
30 ára Sóley ólst upp á
Siglufirði og Ólafsfirði, býr
á Siglufirði og starfar hjá
INKASSO.
Maki: Ólafur Björnsson, f.
1981, starfsm. hjá Primex.
Dætur: Sylvía Rán Ólafs-
dóttir, f. 2006, og Katla
Margrét Ólafsdóttir, f.
2011.
Foreldrar: Margrét Gunn-
arsdóttir, f. 1967, býr í
Danmörku, og Páll Skúla-
son, f. 1967, d. 2010,
húsasmiður.
Sóley Anna
Pálsdóttir
30 ára Halldóra ólst upp í
Seltjarnarnesi, býr í
Reykjavík, lauk MSc-prófi
í markaðsfræðum í
Barcelona og er flugfreyja
hjá Icelandair.
Maki: Árni Björn Helga-
son, f. 1975, fram-
kvæmdastjóri.
Stjúpdóttir: Elísabet
Þóra, f. 2011.
Foreldrar: Þórdís Zoëga,
f. 1957, leikskólakennari
og Kristján A. Óskarsson,
f. 1955, tæknifræðingur.
Halldóra
Kristjánsdóttir
40 ára Sigurður er lærð-
ur þjónn og starfar hjá
Fiskmarkaði Íslands í Rifi.
Maki: Erna Sylvía Árna-
dóttir, f. 1968, hjúkrunar-
fræðingur.
Börn: Viktor Már, f. 2003;
Ásdís Björg, f. 2007, og
Vilberg Magnús, f. 2012.
Stjúpsynir: Árni Hrafn, f.
1993; Elvar Ingi, f. 1994,
og Hörður Elí, f. 1999.
Foreldrar: Guðmar Sig-
urðsson, f. 1949, og Þóra
F. Hjálmarsdóttir, f. 1950.
Sigurður Ingi
Guðmarsson
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Einstakar perlur eftir íslenska myndlistarmenn
Vefuppboð nr. 228
Opið virka daga kl. 10–18
Sumarperlur
Uppboðinu lýkur 13. júlí
Tolli
Louisa Matthíasdóttir Kristín Gunnlaugsdóttir
Jóhannes S. Kjarval
Kristján Davíðsson
Gunnlaugur Blöndal