Morgunblaðið - 08.07.2016, Síða 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 2016
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Sambandið sem þú ert í gefur þínu
stórhuga hjarta frelsi. Fólk leyfir þér að ráða
ferðinni, því þú virðist vita hvað þú ert að
gera.
20. apríl - 20. maí
Naut Fjármálin eru sérstaklega viðkvæm nú
um stundir. Foringinn gefur merki, næstum
óafvitandi, og hinn fylgir þeim í blindni. Nýttu
þér sköpunargáfu þína.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Hugarorkan þín gerist ekki sterkari.
Gefðu þér nú tíma til að setja reynslu þína nið-
ur á blað og miðlaðu henni til annarra. Láttu
kylfu ráða kasti.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú hefur sterka nærveru og fólk finnur
sig knúið til þess að afla sér virðingar þinnar.
Hafðu léttleikann í fyrirrúmi. Hugsaðu út fyrir
kassann og gerðu eitthvað nýtt um helgina.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það er engin ástæða til að vera með sút,
þvert á móti skaltu bera höfuðið hátt og
ganga djarflega til verka. Rómantíkin blómstr-
ar um þessar mundir.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Sá er vinur er í raun reynist. Verkefni
sem láta lítið yfir sér eru tækifæri til þess að
sýna umtalsverða hæfileika. Nú er rétti tíminn
til þess að sýna hvað í þér býr.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú ert reiðubúin/n til að leggja hart að
þér vegna þess að þú getur bætt heimilishag-
inn á komandi ári. Gakktu hægum skrefum
næstu mánuðina.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Sá sem segir fátt kjaftar allavega
ekki af sér. Minntu píslarvottinn í þínu lífi á
það um helgina, að þjáningar eru stundum
óhjákvæmilegar, en volæðið er val.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú hefur gott tækifæri til þess að
skoða samskipti þín við aðra. Oft skilur fólk
ekki fyrr en það hefur misst heilsuna að hún
skiptir öllu máli.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Forvitni þín leiðir þig á ókunnar
slóðir þar sem óvænt verkefni bíða þín. Samt
þarftu að fá viðbrögð til að vita hvaða máli þú
skiptir.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Aftur koma upp mál um sam-
anburð og sjálfsálit, og þú kannt nýja aðferð
til að taka á þeim. Hroki er að halda að maður
geti gert eitthvað vel sem maður getur ekki.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú ert upp á þitt besta og hefur já-
kvæð áhrif á umhverfi þitt með léttleika þín-
um. Þú ert praktísk/ur að eðlisfari og vilt
geyma það sem þú heldur að þú þurfir að
nota.
Í Útvarpstíðindum segir frá því aðFjölnismenn hafi gert allmikið
af því að þýða útlend eiginnöfn á ís-
lensku. – „Indus þýddu þeir Svartá,
Bombay Góðvík, Malabar Fjalla-
strönd, Ceylon Ljónseyjar, Heine
heitir Hænir og Walter Scott heitir
Valtari Skott (því ekki Valtýr
Skott). Um líkt leyti orti Sigurður
Pétursson um íslenskuna:
Englar guðs á ebresku
orðin meinast hneigja
en árar tala íslensku
á það þori ég deyja.“
Á miðvikudaginn talaði Gústi
Mar. um þoku og skrifaði í Leirinn:
Veðurblíðan meina menn
sé mest í öðrum sóknum.
Þrálát norðan þræsa enn
og þokusúld á Króknum.
Ólafur Stefánsson svaraði:
Þó að oft sé meira mas,
við messu í öðrum sóknum,
er þó, held ég, grænna gras
en gerist þarna á Króknum.
Og Gústi Mar. aftur:
Vinna á Króknum vaskir menn
velja úr ýmsum störfum.
Kaupfélagið annar enn
okkar helstu þörfum.
Þennan sama miðvikudag var
Ingólfur Ómar í öðrum hugleið-
ingum, – „fallegur dagur,“ skrifar
hann í Leirinn og lætur þessar
björtu braghendur fylgja:
Glóey brosir, glitrar dögg á grænu lyngi
funa slær á fjalladranga
fuglar kvaka og blómin anga.
Báran hjalar blíðum rómi blítt við sand-
inn.
Blika sundin björt og fögur
bjarma skrýðist nes og ögur.
Hjálmar Jónsson sendi mér þess-
ar skemmtilegu stökur. Halldóra
Sigurðardóttir Hallkelsstöðum orti:
Ævi minnar stutt er stund,
stari ég fram á veginn.
Veittu mér, Drottinn, væran blund
en vektu mig hinum megin.
Jóhann P. Magnússon orti:
Sólin blandar skini skúr,
skrýðist blómum jörðin.
Hugur leitar útlegð úr
inn í Skagafjörðinn.
Andrés Valberg orti á ferðalagi:
Ólund herðir átökin,
okkar skerðist rómur
af því ferðafleygurinn
fer að verða tómur.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Íslenskun eiginnafna,
kaupfélagið og veðrið
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
ÉG KEYPTI
MEGRUNARKATTAMAT
ÞETTA VERÐUR
AÐ ENDAST
FYRIRSAGNIR
MORGUNDAGSINS
VERÐA ÞÉR EKKI
AÐ SKAPI
AHHA! ROMM
KAKA!
ÞETTA ER
EKKI ROMM-
KAKA!!
HÚN ER
ÞAÐ NÚNA!
„EF ÉG HEF EKKI EFNI Á VIRKILEGA DÝRRI
AFMÆLISGJÖF ÞÁ KAUPI ÉG EKKI NEITT.
ÞANNIG AÐ ÉG KEYPTI EKKERT FYRIR ÞIG.“LÁGMENNINGARGRÍN ELDIST ILLA.
HANN FÉKK MIG ALLTAF
TIL AÐ HLÆJA.
... allt sem er dásamlegt
vafið upp í þér
Víkverja er nákvæmlega samahver verður Evrópumeistari í
fótbolta á sunnudag, vegna þess að
íslenska landsliðið hefur þegar sigr-
að, hvernig sem á það er litið.
x x x
Undanfarnar vikur hefur lífið fyrstog fremst snúist um EM og sér-
staklega landslið Íslands í keppninni
í Frakklandi. Vinnutími hefur verið
aðlagaður leiktíma, rétt eins og mat-
artími, íhugunartími, æfingatími,
svefntími, þrifatími, frítími og annar
tími.
x x x
Vegna EM hafa ýmsir íþrótta-viðburðir fari ofan garðs og neð-
an. Þeim ber þó að halda til haga.
Að minnsta kosti sumum.
x x x
Á sama tíma og Íslendingarsleiktu sólina hérlendis og á
suðurströnd Frakklands fyrir
skömmu tryggði kvennalandsliðið í
blaki sér sæti á Evrópumóti smá-
þjóða á næsta ári. Þrír sigrar í
þremur leikjum komu liðinu jafn-
framt á annað stig undankeppni HM
2018.
x x x
Fimleikakonan Eyþóra ElísabetÞórsdóttir, setti hollenskt met
og varð hollenskur meistari í fjöl-
þraut. Talið er líklegt að stúlkan,
sem á íslenska foreldra, hafi tryggt
sér sæti í hollenska ólympíuliðinu,
sem keppir á Ólympíuleikunum í
Brasilíu síðar í sumar.
x x x
Birgit Rós Becker setti fjögur Ís-landsmet á HM í klassískum
kraftlyftingum í Bandaríkjunum og
íslenska karlalandsliðið í körfu-
knattleik, skipað leikmönnum 18 ára
og yngri, varð Norðurlandameistari.
Þórir Guðmundur Þorbjarnarson
var valinn besti leikmaður mótsins.
x x x
Fótboltinn rúllaði líka hér heima.Willum Þór Þórsson var ráðinn
þjálfari KR og Fylkir fagnaði fyrsta
sigrinum í Pepsi-deildinni í ár. ÍA
vann tvo leiki í röð og Garðar Gunn-
laugsson settist í stól markakóngs
deildarinnar. víkverji@mbl.is
Víkverji
Drottinn, öll mín þrá er þér kunn
og andvörp mín eru eigi hulin þér.
(Sálmarnir 38.10)
Viðurkennd gæðateppi, slitsterk, ofnæmisprófuð
og samþykkt af Mannvirkjastofnun.
Óhreinindavörn sem lengir líftíma teppanna
og léttir þrif.
Stigahúsateppi
Mikið úrval!
Mælum og gerum tilboð
án skuldbindinga og kostnaðar
Ármúli 32, 108 Reykjavík
Sími 568 1888
www.parketoggolf.is
Sérverslun með teppi og parket