Morgunblaðið - 08.07.2016, Side 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 2016
VINNINGASKRÁ
10. útdráttur 7. júlí 2016
34 11256 19360 28918 41435 50688 62839 71915
50 11976 20081 29139 41573 50712 62849 72275
191 11980 20157 29206 41579 50713 63796 72832
464 12219 20164 29554 41587 50730 64008 73038
935 12433 20407 29954 42034 52021 64060 73360
1017 12674 20435 30610 42269 52351 64207 73679
1204 12909 20529 31249 42284 52542 64823 73760
2278 12916 20544 31311 42629 52885 65030 74102
2330 13468 20773 32322 42854 54154 65146 74375
2379 13520 20910 32740 42865 54301 65361 74466
3179 13568 21274 32805 43046 55085 65580 74500
3220 13613 21383 33157 43331 55502 65867 74590
3314 13913 21394 34197 43626 55571 65889 74832
3912 13939 21435 34339 43908 55637 66071 75299
4293 14038 21836 34636 44478 55915 66112 76017
4486 14413 22262 34988 44604 56149 66164 76105
4948 15425 22286 35023 44642 56409 66782 77452
5129 15739 22495 35041 44869 56533 66876 77865
5730 16126 22645 35427 45344 56669 66972 77918
5923 16192 22772 35840 45669 57459 67017 77960
6108 16243 23741 36256 45744 57969 67185 78290
6934 16562 23763 36317 45808 58196 67979 78486
7158 16574 23990 36525 45894 58323 68016 78492
7168 16586 24396 37238 46044 58741 68617 78686
7277 17319 25048 37539 46238 58812 69301 78762
7461 17383 25363 37752 46468 58965 69309 78808
8378 17443 25504 37999 46915 59637 69458 79467
8404 17475 25607 38312 47009 60051 69726 79478
8514 17599 25893 38413 48253 60276 69732 79696
8897 17918 26006 38457 48541 60406 70022 79772
9304 18044 26334 39014 48784 61020 70289 79936
9316 18073 26354 39734 48840 61778 70385
9581 18097 26922 39927 48991 61910 70673
10440 18430 27133 40036 49509 62072 70766
10602 18813 27492 40445 49637 62143 71144
10906 18876 28520 40811 49686 62146 71463
10931 18885 28599 41156 50164 62451 71539
1025 12485 22439 33804 44138 52521 64414 72278
1791 13659 23302 34372 45295 54555 65082 73915
2117 14036 23930 36009 46015 55230 65295 74715
2150 14703 24208 37855 46208 55633 65717 75261
3435 16096 24502 38136 47765 56502 66563 76089
4432 17679 24661 38262 47802 57547 66969 77177
4462 19547 24983 38572 48076 58562 67252 78059
7600 19779 26337 38573 48817 58832 68500 79370
10156 20354 26749 38801 49033 59846 69028 79524
10410 20804 27617 40981 50355 60216 69722
10629 21716 28014 41405 50955 61843 71309
10822 21835 32459 41668 51364 63591 72090
11086 22434 33433 43971 51577 63878 72269
Næstu útdrættir fara fram 14., 21., 28. júlí 2016
Heimasíða: www.das.is
Vinningur
Kr. 10.000 Kr. 20.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 20.000 Kr. 40.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur)
4565 37535 57028 61677
Vinningur
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
4168 19267 23493 29285 43091 65050
8279 19745 23770 34189 50285 68838
9131 20224 24055 35186 51102 77888
16229 20479 24671 37975 52374 79107
Aðalv inningur
Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
7 8 2 2 8
Menningarhátíðin Listaflóð á vígaslóð verður haldin í 5. sinn
í dag og á morgun. Samkvæmt upplýsingum frá skipuleggj-
endum er það heimafólk á Syðstu-Grund í Blönduhlíð sem
stendur fyrir hátíðinni. Í kvöld kl. 20.30 leikur harmo-
nikkutríóið Ítríó í Miklabæjarkirkju. Á efnisskránni eru lög
frá ólíkum tímabilum. Þá mun myndlistarkonan Kristín
Ragnars sýna olíumálverk sín í kirkjunni. Á morgun hefst
síðan fjölskylduhátíðin „Sunnan við garðinn hennar
mömmu“ þar sem til sýnis og sölu verður handverk á flóa-
markaði auk kaffiveitinga. Einnig verður boðið upp á fjölbreytta tónlistar-
dagskrá. Enginn aðgangseyrir er á hátíðina en tekið við frjálsum framlögum.
Hátíð á Syðstu-Grund
Helga Kristbjörg
Guðmundsdóttir
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
„Ég er bara strákur úr Vestmanna-
eyjum. Var í slorinu og ruglinu og
er núna að gefa út plötu,“ segir
Júníus Meyvant, sem er að gefa út
sína fyrstu plötu í dag, en upp-
tökustjórinn hans er búinn að senda
út tvö lög á
undan útgáf-
unni og hafa
þau svo sann-
arlega vakið
mikla athygli.
Lagið
Neon Experi-
ence er hreint
út sagt frábær sumarsmellur sem
hefur verið spilaður á útvarps-
stöðvum undanfarna tvo mánuði.
Að sögn kunnugra er platan víst
bomba, en fólk á ekki að láta orð-
róm ráða smekk sínum heldur at-
huga hvort eitthvað sé að baki hon-
um.
Bjartasta vonin
Í spjalli við útgefanda Júníusar
Meyvants kom fram að þetta hefði
verið löng og erfið fæðing.
Júníus kom smáskífunni Color
Decay út í byrjun árs 2014 en svo
kom svolítið löng bið.
Júníus vann tvenn verðlaun á Ís-
lensku tónlistarverðlaununum árið
2014. Hann var valinn sem Bjart-
asta vonin og fékk verðlaun fyrir
besta lag ársins.
Hann fékk síðan í ofanálag til-
nefningar árið 2015 fyrir besta lag
ársins og besta karlkyns söngvar-
ann.
Júníus gaf árið 2015 út skífu sem
heitir EP og hún fékk víða af-
bragðsdóma.
Meðal annars skrifaði Gaffa, sem
er eitt virtasta tónlistartímarit Dan-
merkur, að skífan væri gríðarlega
melódísk og einstaklega hjartnæm.
Gaffa gaf skífunni fimm stjörnur
af sex mögulegum.
Eyjapeyinn kominn af sjónum
og á mölina
Nú hef ég eins og landinn allur
heyrt lagið Neon Experience sem
hefur hljómað á útvarpsstöðvunum
undanfarna tvo mánuði, hreint út
sagt frábært lag, en hvaðan kemur
þú, hver er uppruni listamannsins?
„Ég ólst upp í Vestmannaeyjum
og hef verið í alls konar vinnu yfir
ævina, var meira að segja á sjónum
eins og er frekar algengt ef maður
elst upp í Vestmannaeyjum.
Sjómennska mín var frekar stutt.
Einn velheppnaður túr og tveir aðr-
ir túrar sem voru verri. Í eitt skiptið
kviknaði í skipinu sem ég var á,
þannig er þetta bara.“
Á sjó? Varstu ekki ælandi allan
túrinn?
„Jú, jú, ég ældi. Það var bara
festival ælunnar. Það var bara eins
og ég ætti þrjú hundruð unga, ég
ældi svo mikið. En ég er mikill land-
krabbi. Landkrabbinn í mér öskraði
mun hærra en sjómaðurinn í mér.“
Þannig að þú hefur fljótlega hætt
á sjónum?
„Já, sjómennskan var ekki mikið
fyrir mig. Ég var mjög ungur. Ég
mátti ekki missa af neinu. Tveir
dagar til spillis hjá ungum manni er
eins og fimm ár hjá fullorðnum.
Maður hefur það á tilfinningunni
að maður sé að missa af öllu.“
Myndlistin kallaði hærra
en tónlistin
Er tónlistin það eina sem hefur
dregið þig til sín eða eru einhverjar
aðrar listgreinar sem kalla?
„Myndlistin hefur alltaf verið
númer eitt, tvö og þrjú hjá mér. Svo
komst ég að því að ég héldi tóni. Ég
byrjaði að syngja eitthvað þegar ég
var tvítugur.
Þegar maður er einn syngur mað-
ur vel. Sérstaklega þegar maður er
einn í sturtu, þá syngur maður mjög
vel.
Svo getur maður lent í því á
karókíkvöldi að enginn klappar eftir
að maður hefur sungið og þá er
maður ekki lengur viss um hvort
maður eigi að syngja aftur.“
Hvað varð til þess að þú fórst af
stað með tónlistina þína, var eitt-
hvert andartak sem kom þessu af
stað?
„Ég var einn af þessum sem þótti
kakan góð en kunnu ekki að baka.
Ef maður bakar eitthvað í fyrsta
skipti mislukkast það alltaf, svo lær-
ir maður.
Ég byrjaði að glamra á gítar og
varð hugsjúkur.
Ég missti svefn af því að ég fékk
svo margar hugmyndir.
En í dag get ég svolítið stjórnað
þessu og er orðinn skipulagðari.“
Hvernig nærðu skipulaginu og
einbeitingunni, er það með því að
vinna nógu mikið?
„Nei, oftast koma lögin þegar ég
er ekki að vinna, heldur þegar ég er
að dunda mér eitthvað.
Ég get verið að röfla við vin minn
og þá fæ ég hugmynd.
Tónlistin kemur alls staðar að.“
En nú þurfa allir listamenn eitt-
hvað meira en að kunna að skapa,
oftast þarf einhverja heppni eða ein-
hvern sem ýtir á listamanninn, var
eitthvert andartak sem breytti
þessu hjá þér?
„Ég var voðalega heppinn. Vinur
minn var eitthvað að vinna með
upptökustjóranum Haraldi Leví og
hann sendi Haraldi upptökur af tón-
listinni minni og eftir það lét Har-
aldur Leví mig ekki í friði.“
Þannig að hann hefur komið þér
af stað, fengið þig til að þræla þér
út?
„Já. Ég er líklega latasti duglegi
maðurinn á landinu.“
Þetta er oft nauðsynlegt í lista-
heiminum, að hafa einhvern sem er
bara með svipuna á listamanninum?
„Það gerist ekkert nema undir
pressu. Þú sérð íþróttamennina
okkar, það gerist ekkert annars.
Það er mjög íslenskt.
En ég hef svo sem séð Þjóðverja
skíta upp á bak líka.
Það er kannski ekki rétt hjá mér
að það sé eitthvert einkamál Íslend-
inga að gera það.“
Þú hefur unnið skrítin störf?
„Já, ég var líka einu sinni rútubíl-
stjóri í Noregi.“
Ha? Ertu með meirapróf?
„Já.“
Þvílík hetja. Eru einhver fleiri
svona störf sem maður tengir ekki
við listamann?
„Þú getur giskað á hvaða starf
sem er og það eru svona 90% líkur á
að ég hafi einhvern tímann hand-
langað eitthvað í því djobbi.“
Er tónleikaferð framundan?
„Já. Ég verð að sjálfsögðu á
Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum.
En síðan fer ég í alvöru túr í
september, stóran hring um Fær-
eyjar og svo heim. Nei, djók. Ég
mun túra um Danmörk, Holland,
England, Frakkland, Austurríki og
Sviss og fleiri lönd, þetta verður
gaman.“
Morgunblaðið/Eggert
Fegurð Maðurinn sem hefur verið á sjó og í slorinu semur nú hvað fallegustu tónlist á Íslandi.
Ælandi listamaður
með frábæra plötu
Ný plata frá Eyjapeyjanum Júníusi Meyvant