Morgunblaðið - 08.07.2016, Síða 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 2016
Bergþóra Jónsdóttir
bj@gmail.com
Reykjavíkurdætur eru nýkomnar
heim úr tveggja vikna ferðalagi þar
sem þær komu fram á hátíðum í
Noregi, Brussel og Danmörku.
Hróarskelduhátíðin stóð upp úr, þar
sem þær fengu 10 þúsund áheyr-
endur og ótrúlegar viðtökur á tón-
leikana sína, að sögn Sölku Vals-
dóttur, eins meðlims Reykjavíkur-
dætra. ,,Við vorum með ákveðnar
væntingar en hvernig fólkið tók tón-
listinni okkar og orkan sem mynd-
aðist var alveg geggjað,“ segir
Salka.
Reykjavíkurdætur gefa út fyrstu
breiðskífu sína í dag, 8. júlí, og
halda þær hlustunarpartí á Prikunu
af því tilefni í kvöld kl. 21. Þær ætla
að bjóða upp á bjór og taka nokkur
lög af nýju breiðskífunni. Platan
heitir RVK DTR, sem er vísun í
hljómsveitarnafnið. Hún er til sölu í
öllum helstu verslunum, auk þess
sem hægt er að nálgast hana á öll-
um helstu tónlistarveitum heims.
Ótrúleg orka sem myndaðist
„Þetta byrjaði allt með rappkonu-
kvöldi sem tvær úr hópnum, Blær
og Kolfinna, héldu sumarið 2013.
Þær ætluðu að hafa smá tónleika
ásamt nokkrum vinkonum sínum og
buðu 30 manns, mest fjölskyldu og
vinum. Þetta spurðist út og endaði í
200 gestum. Ég var ein af gest-
unum, ótrúlega spennandi orka sem
myndaðist þetta kvöld. Ég samdi
mitt fyrsta rapp eftir þetta. Kol-
finna hringdi svo í mig fyrir næsta
rappkonukvöld og þá kem ég inn í
þetta og vinkona mín Jóhanna Rak-
el. Þetta gerðist allt mjög hratt.
Eftir það kvöld ákvað hópurinn sem
fram kom að gera lag og flytja á
þriðja rappkonukvöldinu nokkru
síðar, þá varð til lagið Reykjavíkur-
dætur. Það varð strax vinsælt og
mikil umræða skapaðist um okkur.
Fólk fór að kalla okkur Reykja-
víkurdætur og þaðan kemur nafnið.
Skemmtistaðir fóru að hringja í
okkur og biðja okkur að spila, við
urðum allt í einu vinsæll hópur á
engum tíma. Við eiginlega gripum
bara einhverja öldu og höfum verið
að þróast mjög hratt síðan,“ segir
Salka.
Við erum listahópur
„Við byrjuðum ekki á því að kalla
okkur hljómsveit heldur voru það
fjölmiðlar sem gerðu það. Við erum
16 stelpur sem vilja skemmta sér
saman og flytja tónlist undir eins
konar „regnhlífarsamtökum“ sem
eru Reykjavíkurdætur.“ Að sögn
Sölku fær hver og ein í hópnum al-
gjört frjálsræði í því hvernig og
hvað hún vill skapa undir formerkj-
um listahópsins Reykjavíkurdætra.
„Listamenn eru að búa til list sem
er jafn mismunandi og þeir eru
margir. Það er ekkert öðruvísi hjá
okkur. Við erum svo margar og all-
ar listamenn og mismunandi hvern-
ig við viljum láta tónlistina birtast
fólki. Það var aldrei markmiðið að
vinna sem hljómsveit og semja allt
saman,“ segir Salka.
Vinna mikið hver í sínu lagi
Að sögn Sölku standa Reykja-
víkurdætur fyrir svo margt því að
hver og ein vinnur sitt efni eða
nokkrar saman, alveg eftir því
hvernig áhuginn í hópnum er, en
allt snýst þetta um rapptónlist. Þær
eru með reglur innan hópsins um að
hver megi gefa út það sem hún vilji.
Þess vegna standa þær fyrir svo
margt og því er aldrei einn rauður
þráður í því sem þær eru að koma á
framfæri.
Að sögn Sölku er það kostur
hversu ólíkar þær eru. En allar hafa
þær það markmið að semja og flytja
tónlist „Við vinnum í rauninni mjög
lítið saman. Það hefur alltaf verið
þannig, t.d. hafa Reykjavíkurdætur
bara gert þrjú lög saman á þessu
þriggja ára tímabili sem við höfum
verið starfandi saman. Sem dæmi
heyri ég kannski lag frá einhverri
okkar í fyrsta skipti á Youtube eins
og aðrir. Við erum ekki að ritskoða
hver aðra neitt,“ segir Salka. Hver
hópur getur gefið út lag eða birt
eitthvað á Youtube í nafni Reykja-
víkurdætra án þess að fá leyfi hjá
hinum. Þær gefa hver annarri full-
komið rými til að gera ólíka hluti,
þess vegna er erfitt að tala um
Reykjavíkurdætur sem eina heild.
Hún segir að allt of oft þurfi að
svara fyrir eitthvað sem einhver
önnur geri eða segi í hópnum.
Stuðningur að vera saman
Salka segir það stundum ókost að
hafa þetta rými því í svo stórum
hópi sé ein kannski ekki alltaf sam-
mála því sem hinar geri. Á móti
komi að mikill stuðningur sé fyrir
þær að koma fram saman. „Það er
einhver brjáluð orka sem myndast
þegar við erum saman á sviðinu.
Þetta hjálpar okkur öllum að koma
okkur á framfæri. Fullt af stelpum
að hafa gaman saman á sviði er
bara æðislegt. Það er sjaldgæf sjón
og við erum að gera eitthvað alveg
nýtt. Viðtökurnar erlendis eru frá-
bærar.
Fólk er orðlaust og hefur aldrei
séð álíka í lífi sínu,“ segir Salka.
Söfnuðu fyrir breiðskífu
Karolina fund er samtök sem sáu
um söfnun sem stelpurnar tóku þátt
í til að fjármagna útgáfu breiðskíf-
unnar. Þær seldu varning og fengu
þannig fólk til að styrkja sig. „Við
seldum diska, boli og póstkort og
ýmislegt fleira. Þetta er mjög
skemmtilegt fyrirbæri og hjálpar
tónlistarmönnum að gefa út sjálfir
án þess að vera bundnir samningum
til að fá peninga. Ef verkefnið geng-
ur ekki upp, t.d. ef platan er ekki
gefin út, fær fólk endurgreitt. Þetta
gerði það að verkum að við náðum
að safna fyrir plötunni og gott bet-
ur.“
Hjarðhegðun Íslendinga
Salka segir mikinn mun á því að
spila á Íslandi eða erlendis. Text-
arnir og framkoma hafi skapað um-
ræðu í samfélaginu og það sé í lagi
en henni finnst fólk gleyma að veita
tónlistinni athygli. „Meira er verið
að fókusera á tónlistina okkar á
pólítískan hátt en ekki verið að líta
á okkur sem tónlistarmenn sem eru
að búa til góða tónlist. Þegar við er-
um úti er fólk ekki að hugsa um
þessa hluti heldur annaðhvort fílar
það tónlistina eða ekki. Á Íslandi er
fólk fljótt að gagnrýna. Svo fer það
eftir hvaða mánuður er hvort það sé
kúl að hlusta á Reykjavíkurdætur
eða ekki. Tilfinningin okkar er að
það sé hjarðhegðunarbundið oft og
tíðum,“ segir hún.
Tónlist er bylgjur
Stelpurnar í listhópnum hafa mis-
munandi bakgrunn en allar hafa
grunn í einhvers konar sköpunar-
vinnu. „Við erum ekki endilega að
vekja athygli eða áhuga á konum.
Við veljum ekki hvernig við höfum
áhrif á fólk. Tónlist fyrir mér er
bylgjur sem hafa áhrif á fólk. Það er
ekki hægt að ákveða fyrir fram
hvernig áhrif þú ætlar að hafa; það
er svipað og að ætla að ramma inn
mynd áður en hún er máluð,“ segir
Salka að lokum.
„Gripum bara einhverja öldu“
Reykjavíkurdætur eru nýkomnar af Hróarskelduhátíðinni Gefa út sína fyrstu breiðskífu í dag
Sjá mörg tækifæri erlendis Eru miklu frekar listahópur en hljómsveit
Ljósmynd/Tom
Mikil orka Stemningin var gríðarlega góð á Hróarskelduhátíðinni 2016 þegar stelpurnar spiluðu fyrir 10 þúsund manns.
Ljósmynd/Isabella Katarína Márusdóttir
Töff Reykjavíkurdætur skilgreina sig frekar sem listahóp en hljómsveit.
Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is
Verkfæralagerinn
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
295
Vinnuvettlingar
PU-Flex
1.395
Öflugar
Volcan
malarskóflur
á frábæru
verði
frá 365
Ruslapokar 120L
Ruslapokar 140L
Sterkir 10/50stk
Greinaklippur
frá 595
695
Strákústar á
tannbursta-
verði
Garðklóra/
Garðskófla
595
1.995
Öflug
stungu-
skófla
Garðverkfæri ímiklu úrvali
frá 1.995
Garðslöngur
ímiklu úrvali
Fötur í
miklu úrvali
4.995
Hakar, hrífur, járnkarlar, kínverjar,
sköfur, skröpur, fíflajárn, fötur,
balar, vatnstengi, úðarar,
stauraborar.........
Léttar og góðar hjólbörur
með 100 kg burðargetu
Úðabrúsar
ímörgum
stærðumfrá 995
999Barna-
garðverk-
færi
frá 395
Ruslatínur
frá 295