Morgunblaðið - 08.07.2016, Blaðsíða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 2016
Frumsýningunni á sjöundu þátta-
röðinni af Game of Thrones verð-
ur frestað um óákveðinn tíma
vegna veðurs.
Fyrri þáttaraðir
hafa fram til
þessa verið
frumsýndar á
HBO í mars eða
apríl, en þannig
verður það ekki
næsta vor. Und-
ir lok sjöttu
þáttaraðarinnar
var boðað að
vetur væri í
nánd og það
mun ganga eftir í sjöundu þátta-
röðinni.
„Sólríkt veðurfar þjónar ekki
lengur hagsmunum okkar,“ hefur
BBC eftir handritshöfundunum
David Benioff og Dan Weiss. „Við
höfum seinkað öllu til þess að
geta fangað grátt vetrarveðrið á
hinum ýmsu stöðum.“ Í fréttinni
kemur fram að meðal tökustaða
eru Ísland, Króatía og Spánn.
Nýverið var upplýst að senni-
lega yrðu aðeins framleiddar
tvær þáttaraðir til viðbótar af
Game of Thrones, en færri þættir
verða í hverri röð, sem hingað til
hafa ávallt talið tíu. „Enn liggur
ekki ljóst fyrir hversu margir
þættir verða í hverri röð, en þeim
mun fækka sökum þess að tökur
taka sífellt lengri tíma,“ segir
Benioff.
Fresta frumsýn-
ingu vegna veðurs
Ís Vetur konungur
ræður ríkjum.
AF TÓNLIST
Hjalti St. Kristjánsson
hjaltistef@mbl.is
Það er alltaf snúið að verafyrsta band í setti. Sér-staklega ef settið er fyrsta
dag tónlistarhátíðar, tölum nú ekki
um ef tónlistarhátíðin er haldin 700
km frá meginbyggðarkjarna lands-
ins, hvaðan flestir gestir koma. Með
það í huga held ég að það hafi verið
erfitt að vera grunnskólastrákur sem
var að opna uppskeru- og árshátíð
málmhausa landsins.
Hljómsveitalisti kvöldsins
Meistarar Dauðans opnuðu
Eistnaflug þetta árið og ég vona, í
ljósi þess að ég náði ekki, sökum eig-
in heimsku, að sjá þá sjálfur, að þeim
hafi verið vel tekið. Samkvæmt al-
mannarómi stóðu þeir sig vel og þeir
sem mættu tóku vel á móti þeim.
Fyrsta hljómsveit sem ég náði að sjá
var Celestine, þeir keyrðu áfram af
hörku en voru sumir hverjir nokkuð
inn í sig og útgeislunin var ekki mik-
il. Tónlistin var þó góð. Útgeislunina
vantaði þó ekki hjá næstu tveimur
hljómsveitum, Churchhouse Creep-
ers og Muck. Creepers eru afbragðs
stoner-rokkband og spilagleðin er al-
gjör. Hinsvegar fannst mér sándið
ekki nógu þétt á þetta stóru sviði en
þeir bættu upp fyrir það með góðum
lagasmíðum og brjáluðu stuði. Þess
má svo til gamans geta að Church-
house Creepers stefna á vínil-útgáfu
plötu sinnar, sem kom út rafrænt á
vormánuðum, fyrir jól.
Muck hef ég áður mært og mér
finnst að allir ættu að prófa að fara á
muck-tónleika til að upplifa brjál-
æðið og „fuck all“-viðmótið. Þeir létu
það ekki stoppa sig að annar gítarinn
hætti að virka og keyrðu bara áfram
á öllu hinu, með einum gítar. Næsti
maður á svið var kannski það sem
mönnum gæti þótt stinga hvað mest í
stúf við afganginn en það gerði hann
síður en svo. Magni Ásgeirsson
mætti svellkaldur á sviðið og hreif
salinn með sér sem enginn annar.
Hann tók með sér landslið hljóðfæra-
leikara og náði að rífa ferðaþreytt
fólkið með sér í bestu rokkslagara
síðustu áratuga, meira og minna öll
lögin sem hann söng í Rockstar: Su-
pernova. Þar á eftir kom atriðið sem
í raun stakk í stúf. Sænska svart-
málmshljómsveitin Marduk var án
efa langþyngsta atriði kvöldsins sem
annars myndi á mælikvarða Eistna-
flugs teljast óttalegt léttmeti. Þar
var hinsvegar algjör eðall og það er
augljóst að það á ekkert að slá af á
þessu flugi. Það á að keyra af fullum
krafti og að sögn hátíðarhaldara er
engin spurning um að Marduk hafi
unnið Eistnaflug því aldrei áður hafa
svo margir sótt tónleika á mið-
vikudagskvöldi, hvað þá jafn „anti
mainstream“ hljómsveit og þá.
Þá var aftur vent í kross því næsta
hljómsveit var Agent Fresco. Hún
skilaði mjög þéttu giggi og augljóst
að þeir eru í fantaformi, þrátt fyrir
að Arnór, söngvari hljómsveit-
arinnar, hafi að eigin sögn verið að
kljást við „örlitla lungnabólgu“. Í það
minnsta tóku þessir tónleikar Agent
Fresco öðrum tónleikum þeirra sem
undirritaður hefur séð fram. Salur-
inn var smekkfullur og áhorfendur
virtust skemmta sér konunglega.
Úlfur Úlfur voru að eigin sögn „wild
card“ kvöldsins og því miður virtust
þeir hafa dregið jókerinn. Svo virtist
sem málmhausarnir hafi ekki verið
tilbúnir að opna augu sín fyrir rapp-
inu að þessu sinni. Hvort það var
vegna þess að fólk var þreytt eða það
fílaði ekki tónlistina veit ég ekki en í
það minnsta var slæleg mæting. Úlf-
arnir voru kraftmikilir og reyndu
hvað þeir gátu að draga sem flesta á
gólfið en það var allt fyrir ekkert.
Það var hálftómur salur en þeir sem
voru á svæðinu skemmtu sé þó vel.
Allur aðbúnaður betri
Á hátíðinni er allur aðbúnaður
hinn besti og augljóst að það sem af-
laga fór í fyrra hefur verið lagfært,
varningssala hljómsveita hefur feng-
ið góðan stað inni í tónleikasalnum,
er það vel. Það má nefnilega ekki
gleyma því að það að vera í hljóm-
sveit er dýrt og oftast illa launað.
Eistnaflug fer vel af stað þetta ár-
ið og undirritaður er satt best að
segja mjög spenntur fyrir framhald-
inu.
Sprengistjarnan slær aftur í gegn
Meistaralegir Drengjasveitin Meistarar Dauðans opnaði Eistnaflug núna. Harðir Sænska svartmálmssveitin Marduk dró metfjölda fólks á tónleika.
Morgunblaðið/Elín Arnórsdóttir
Stuðboltar Churchhouse Creepers keyrði af miklum móð og fækkaði fötum
á sviði íþróttahússins í Neskaupstað við fögnuð áhorfenda og heyrenda.
Látið okkur
sjá um
þvottinn
fyrir heimilið
Háaleitisbraut 58-60 • 108 Reykjavík • haaleiti@bjorg.is • Sími 553 1380
GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA
Takið frí frá þvottahúsinu í sumar
MIKE AND DAVE 5:50, 8, 10:10
INDEPENDENCE DAY 2 5, 8, 10:30
LEITIN AÐ DÓRU ÍSL.TAL 3:50, 5:50
CENTRAL INTELLIGENCE 10:30
WARCRAFT 2D 8
ANGRY BIRDS ÍSL.TAL 3:50
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar
TILBOÐ KL 3:50
TILBOÐ KL 5