Náttúrufræðingurinn - 2015, Qupperneq 9
101
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
litalyklum Bændasamtaka Íslands.
Tvílitur er ekki greindur frekar,
enda heiti tvílita allbreytileg eftir
landsvæðum. Á hitt eyðublaðið
voru skráðar ætternisupplýsingar
sem tiltækar voru (óþarft þegar
féð var skráð í skýrsluhaldi sauð-
fjárræktarinnar (FJARVIS)). Skrá-
setning var miðuð við að ná til
allra hreinræktaðra forystukinda
sem settar voru á vetur haustið 2008.
Í árslok 2009 var byrjað að skrá
upplýsingar sem þá höfðu borist.
Heimtur voru mjög misjafnar og
var árið 2010 notað til eftirleitar
með ótal símtölum og tölvupóstum.
Ætla má að tekist hafi að lokum að
fá yfirlit um flesta einstaklinga í
stofninum.
Mikið af eftirrekstrinum fólst í
því að reyna eftir föngum að fylla
í göt í ættfærslu. Í ljós kom að
verulegur hluti af forystufénu hefur
staðið utan skýrsluhaldsins þannig
að takmarkaðan ættargrunn var
að finna þar. Víðast hafði skráning
upplýsinga verið brotakennd og
urðu upplýsingarnar því strax mjög
skörðóttar. Ennfremur er meira
um að forystuféð sé aðkeypt en
annað fé en ætternisskráningu í
skýrsluhaldi var til skamms tíma
ábótavant fyrir aðkeypt fé. Stór
hluti hrúta af þessum stofni er
aðeins notaður lambsveturinn
og fær því hver og einn þeirra
mjög takmarkaða notkun. Oftast
eru þessir hrútar ekki skráðir og
glatast upplýsingar um þá þess
vegna fljótt. Þegar farið er að rekja
ættir vantar því víða upplýsingar
um föðurætt sé ekki um afkvæmi
sæðingastöðvarhrúta að ræða. Allir
þessir þættir leiða til þess að ættir
verða yfirleitt ekki raktar lengra
aftur en á áttunda áratug síðustu
aldar. Ættarlínur sem ná lengra
aftur í tímann eru samt allmargar,
en yfirleitt það aðskildar að þær
mynda ekki grundvöll fyrir mat á
skyldleikarækt. Fyrir kom að neitað
var að veita ætternisupplýsingar
um gripina vegna vafasamrar komu
þeirra á búið.
Þegar upplýsingar höfðu verið
skráðar var úrvinnslan einkum
fólgin í talningu gripa í flokkum
eftir ýmsum flokkunarstærðum.
Við útreikning skyldleikaræktar
einstaklinga, skyldleikaræktar innan
árganga og erfðaframlags einstakra
gripa var notaður forritapakkinn
EVA.34 Til að meta skyldleika á milli
einstaklinga og hópa í gögnunum
var síðan notað forritasafnið Pedig.35
Niðurstöður
Mæling á forystueiginleikanum
Niðurstöður mælinga á hæfni for-
ystukindanna til að leiða hópinn
koma fram í 1. töflu þar sem sýnd
eru meðaltöl raðnúmera forystufjár-
ins í rekstrartilrauninni. Sérstaða
forystufjárins er mjög skýr og var
forystukindin alltaf fyrst nema í
þremur tilvikum af 60. Í fyrri rekstri
var forystukind einu sinni í þriðja
sæti í röð og í síðari rekstri var for-
ystukind tvisvar önnur í rekstrar-
röðinni.
Landfræðileg dreifing
forystufjárins
Í 2. töflu er yfirlit um gripina sem
skráðir voru í könnuninni. Samtals
voru skráðir 1422 gripir sem settir
voru á vetur haustið 2008. Þar af
voru 107 hrútar, 1190 ær og 125
sauðir.
Mjög fátt forystufé var að finna á
höfuðborgarsvæðinu. Á Vesturlandi
var fjöldinn áþekkur í öllum sýslum.
Hjarðir í Mýrasýslu eru aðeins færri
en öllu stærri en í hinum sýslunum.
Á Vestfjörðum er forystufé mjög fátt
og bundið við örfá bú (3. mynd).
Engin hjörð komst á skrá úr Vestur-
Barðastrandarsýslu og var það eina
sýsla landsins þar sem forystufé var
ekki að finna. Í Húnavatnssýslum
var fjöldi forystufjár í hverri hjörð
Raðnúmer
í hópnum
Rank in
group
Fyrri rekstur
First test run
Síðari
rekstur
Second test
run
1 1,033 1,033
2 3,317 3,267
3 4,100 3,933
4 4,817 4,600
5 3,833 4,183
6 3,900 3,983
3. mynd. Forystuærin Snerpa á Miðdal í Bolungarvík leiðir fjárhóp heim að haustlagi 1988.
Hún var dóttir Formanns 80-961 sem er víða nefndur í þessari grein. – The leaderewe Snerpa
on Miðdalur Farm in Bolungarvík, W-Iceland, leading the flock home in the autumn of 1988.
She was the daughter of the leaderram Formann 80-961, often mentioned in this article. Ljósm./
Photo: Lárus G. Birgisson.
1. tafla. Meðaltöl rekstrarraðar í hópunum þar
sem forysta var mæld (sjá frekari lýsingu í
texta). Forystukind hafði ætíð rekstrarnúmer
1 en númer hinna ánna réðst af tilviljun. –
Results of recordings, means of sheep num-
bers in ranks 1–6, respectively. In all trials the
leadersheep had the number 1.
NFr_3-4 2015_final.indd 101 30.11.2015 16:34