Náttúrufræðingurinn - 2015, Síða 15
107
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
var í héraðið eftir riðuniðurskurð eða
með öðrum fjárkaupum á síðustu
árum úr Norður-Þingeyjarsýslu.
Í Eyjafirði hefur búum með
forystufé fækkað nokkuð frá
rannsókn Lárusar en fjöldi
forystufjár lítið breyst. Þetta er í
fullu samræmi við mikla fækkun
sauðfjárbúa á þessu svæði. Stærstur
hluti forystufjár á svæðinu mun
samt eiga langa ræktunarsögu
vegna þess að grunnur þess er
fjárskiptafé úr Þingeyjarsýslum eða
fé fengið af því svæði síðar með
fjárkaupum.
Í Suður-Þingeyjarsýslu hefur bæði
fé og hjörðum fækkað nokkuð frá
rannsókn Lárusar. Breytingar innan
svæðisins munu talsverðar á þessu
árabili. Forystufé hefur fjölgað í
Aðaldal og mun hann í dag ein
þeirra sveita þar sem flest forystufé
er að finna. Vestan Skjálfandafljóts
hefur forystufé fækkað umtalsvert
og líklega hvað mest í Bárðardal.
Austan Skjálfandafljóts er forystufé
af norður-þingeyskum stofni
með langa ræktunarsögu. Vestan
Skjálfandafljóts er forystufé að
einhverju ræktað með sæðingum
en rekur líklega að stærri hluta ættir
til fjár sem flutt var úr austurhluta
sýslunnar, og munu einhverjir þeirra
flutninga á sínum tíma hafa verið á
gráu svæði.24
Í Norður-Þingeyjarsýslu er fleira
forystufé en í nokkurri annarri sýslu
á landinu. Þarna er að finna vöggu
forystufjárræktunar í landinu. Frá
rannsókn Lárusar hefur búum með
þetta fé aðeins fækkað en fé fremur
fjölgað og er forystufjáreign nokkuð
almenn. Nokkra af fjárflestu hópum
forystufjár á sama búi, með 5–20
fjár, er að finna á þessu svæði og má
hiklaust telja þau bú stofnræktarbú
íslensku forystufjárræktunarinnar á
okkar dögum.
Í Norður-Múlasýslu er meginhluta
forystufjárins að finna í Vopnafirði
og í tveimur allstórum hjörðum á
Jökuldal norðan Jökulsár. Þetta fé
mun eiga sér gamlan ræktunargrunn.
Eitthvað mun mega rekja hann til
Norður-Þingeyjarsýslu og þá ekki
síst til búa á Hólsfjöllum meðan þar
voru enn stór fjárbú. Hjörðum með
forystufé hefur fjölgað frá talningu
Lárusar en fénu heldur fækkað.
Á svæðinu frá Egilsstöðum suður
og vestur um að Hvolsvelli er fjöldi
forystufjár ákaflega takmarkaður. Á
þessu svæði hefur forystufjárbúum
80-961
Formann
85-878
Salómon
89-921
Móblesi
89-980
Fori
91-969
Ári
94-823
Prestur
96-822
Biskup
98-884
Blesi
01-885
Skúmur
02-900
Leifur
03-986
Geri
04-939
Tígull
04-970
Loftur
05-827
Karl
Philip
07-828
Póstur
77-960 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 7,81 3,18 0 0 0
Fori
80-961 0 0 25 0 0 0 0 0 0 10,94 0 0 3,91 0
Formann
85-878 0 0 0 0 0 0 12,5 18,75 0 0 6,25 10,94 9,38
Salómon
89-921 0 0 0 0 0 8,59 4,3 35,45 6,45 2,15 1,07 0
Móblesi
89-980 0 0 0 0 0 0 14,45 0 0 0,98 0
Fori
91-969 0 12,5 0 0 0 6,25 25 15,63 0 0
Ári
94-823 0 0 0 0 0 0 1,56 0 42,19
Prestur
96-822 0 0 0 0,78 3,13 26,56 0 0
Biskup
98-884 50 25 0 50 12,5 31,25 0
Blesi
01-885 31,25 2,96 25,54 13,28 29,69 1,56
Skúmur
02-900 1,48 12,77 8,98 17,18 2,34
Leifur
03-986 6,68 1,72 0,8 0
Geri
04-939 10,29 15,69 0
Tígull
04-970 6,54 1,38
Loftur
05-827 1,38Karl Philip
6. tafla. Skyldleikatengsl sæðingastöðvarhrúta. Skyldleikastuðull* (R) í %. – Relationship between leaderrams in the Artificial Insemination (AI)
services. Relationship coefficients (R) in %.
* Skyldleikaræktarstuðull (R) (e. Relationship coefficient) sýnir líkur á því að sömu gen finnist hjá tveimur einstaklingum sem bornir eru saman. F = 1/2 R.
NFr_3-4 2015_final.indd 107 30.11.2015 16:34