Náttúrufræðingurinn - 2015, Side 24
Náttúrufræðingurinn
116
Nýfundin gögn
Gögnin sem geymd eru á Þjóð-
skjalasafninu eru nokkur bréf, flest
á dönsku, í kassa sem skráður
er „Rentukammer 32.29, örk 9“ (1.
mynd):
1. Bónarbréf síra Þórðar Þórhalla-
sonar prests í Saurbæ og Braut-
arholti á Kjalarnesi til konungs
um að Móar verði gerðir að
prestsjörð í stað Skrauthóla,
því Skrauthólar séu næstum
óbyggilegir vegna afleiðinga
skriðuhlaups í maí 1748. Dag-
sett 10. júlí 1754, á dönsku.
2. Vottorð sýslumanns Kjalarnes-
sýslu, Guðmundar Runólfs-
sonar, um tjónið af skriðunni
á jörðunum Skrauthólum, Öf-
ugskeldu og Sjávarhólum. Stutt-
orð lýsing á íslensku, dags. 31.
ágúst 1754 (2. mynd).
3. Sama vottorð, sem snarað hefur
verið á dönsku, undirritað
á Setbergi 31. ágúst 1754
af Guðmundi Runólfssyni
sýslumanni og Magnúsi
Gíslasyni amtmanni.
4. Bréf um málið frá Magnúsi
Gíslasyni amtmanni, dagsett 27.
september 1754, á dönsku. Bréfið
bætir engu við það sem fram
kemur í fyrri bréfum en ítrekað
er að prestsetrið í Skrauthólum
liggi undir algerri eyðileggingu.
5. Bréf frá Magnúsi Gíslasyni amt-
manni, dagsett 26. september
1755, á dönsku, um makaskipti
á Móum og Skrauthólum. Hér
segir að mat á jörðunum sé
það sama og verði konungur
því ekki fyrir fjárhagstjóni ef af
skiptunum yrði.
6. Fremst í bréfamöppunni er
úrskurður konungs þar sem
fallist er á að prestsetrið verði
flutt að Móum. Dagsett í
Fredensborg 26. apríl 1756.
Síðastnefnda skjalið er prentað
í Lovsamling for Island.3 Hér á
eftir fara textar tveggja fyrstnefndu
skjalanna, sem voru lesin með
aðstoð Jóns Torfasonar, sérfræðings
á Þjóðskjalasafni Íslands.
Bréf til konungs frá sr.
Þórði Þórhallasyni
Séra Þórður Þórhallason (1723–
1803) skrifaði konungi sínum bréf
10. júlí 1754. Þá voru liðin rúm sex
ár frá skriðufallinu. Þar óskar hann
eftir að fá konungsjörðina Móa á
Kjalarnesi sem prestsjörð í staðinn
fyrir Skrauthóla. Kirkjujarðirnar
Saurbær og Brautarholt voru
í bændaeign og þess vegna sat
presturinn ekki þar.
Skjal nr. 1. Bónarbréf sr. Þórðar
Þórhallasonar. Í íslenskri þýðingu er
textinn á þessa leið:
Æruverðugasti, allranáðugasti erfða-
herra og kóngur.
Fyrir yðar konunglegu tign er
ég, snauður prestur, tilneyddur að
lýsa þeim mikla skaða og háska sem
jörðin Skrauthólar hefur orðið fyrir,
en hana hef ég náðarsamlegast fengið
til ábúðar sem prestur í Saurbæjar-
og Brautarholtssóknum. En frá 1748,
þegar minnstu munaði að umrædd jörð
eyðilegðist í hastarlegu skriðufalli, hafa
hvorki ég né aðrir þorað að reisa þar
nokkra viðunandi aðstöðu eða byggingu
fyrir prest af hræðslu við yfirvofandi
hættu.
Því í umræddu skriðufalli eyðilögðust
tvær aðrar jarðir nærfellt alveg en fólkið
slapp naumlega úr miklum lífsháska,
en þessi [þ.e. Skrauthólar] sem er
innan við 100 skref frá annarri hinna
[Öfugskeldu], beið tilfinnanlegan skaða
og tjón á graslendi, svo ég, vegna
þessa óheppilega tilfellis, er svo gott
sem húsnæðislaus og verð að leigja
mér bóndabæ til íveru. En í nágrenni
við margnefnda jörð, Skrauthóla, er
ein af jörðum yðar tignar, sem nefnist
Móar, og er af svipuðum gæðum og sú
fyrrnefnda en ekki undirorpin sömu
hættum. Því fer ég þess auðmjúklega
á leit við yðar konunglegu tign að
yður þóknist náðarsamlegast að veita
mér, og þeim prestum sem á eftir mér
2. mynd. Vottorð Guðmundar Runólfssonar um skaðann af skriðuhlaupinu dagsett 31. ágúst
1754. – Certificate about the Öfugskelda landslide written by Sheriff Guðmundur Runólfsson
dated 31th August 1754.
NFr_3-4 2015_final.indd 116 30.11.2015 16:34