Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Náttúrufræðingurinn - 2015, Qupperneq 25

Náttúrufræðingurinn - 2015, Qupperneq 25
117 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags koma í prestakallið, fyrrnefnda jörð, Móa, til frjálsrar ábúðar í skiptum fyrir Skrauthóla. Og þar sem fjárhirslur yðar munu ekki verða fyrir neinum útgjöldum í fyrirsjáanlegri tíð vegna þeirra makaskipta sem ég leyfi mér auðmjúklega að fara fram á, því báðar jarðirnar eru metnar jafn hátt, þá vona ég að verða náðarsamlega bænheyrður, og allt til dauðans verði ég, yðar konunglega tign og allranáðugasti arfakóngur og herra, auðmjúkur undirsáti og tryggur sálusorgari. Þórður Þórhallason Saurbæ, hinn 10. júlí 1754 Vottorð Guðmundar Runólfssonar sýslu- manns Skjal nr. 2, lýsing Guðmundar Runólfssonar sýslumanns á skaðan um, hljóðar svo: Að sóknarprestsins á Kjalarnesi lénsjörð Skrauthólar hafi merkilega skaðast til haglendis í ár 1748, in Maio, af því mjög stórfellda grjóts og vatns áhlaupi eður skriðufalli sem tvær næstliggjandi jarðir, Sjáarhóla og Öfuggskeldu, sama sinn mjög fordjarfaði, sérdeilis síðstnefnda, að húsum, túnum, engjum og haglendi svo í grunn rúineraði að aldeilis óbyggjandi hefur síðan verið, og að nefnd jörð, Skrauthólar, séu væntanlegum skaða jafnvel til húsa og túna framvegis undirorpnir af viðlíku skriðuhlaupi, attesterer hér með eftir begæring, Setbergi d. 31. Augusti 1754, Guðmundur Runólfsson sýslumann í Kjósarsýslu Prestsetrið flutt Það er ýmislegt einkennilegt við bréfaskriftir prests og sýslumanns. Af hverju biðu menn í sex ár áður en þeir ákváðu að fara þess á leit við yfirvöld að flytja prestsetrið, sem um aldir virðist hafa verið í Skrauthólum, að Móum? Lýsingin á afleiðingum skriðufallsins ber ekki með sér að hús og tún hafi skemmst í Skrauthólum, einungis úthagi. Af hverju segist prestur samt vera húsnæðislaus og hafa þurft að leigja sér íverustað á nærliggjandi bæ? Af hverju voru menn svona hræddir um að önnur skriða myndi falla þá og þegar yfir Skrauthóla? Skýringin á þessu öllu er sú að Þórður Þórhallason var ekki orðinn prestur þegar skriðufallið varð. Prestur Kjalnesinga og ábúandi í Skrauthólum var sr. Gestur Árnason. Hann virðist hafa setið hinn rólegasti í Skrauthólum þótt skriða hafi grandað nágrannabænum og ekki ráðgert neina flutninga. Svo gerðist það fjórum árum síðar að sr. Gestur drukknaði á Kollafirði og piltur með honum þegar þeir voru á leið frá Viðey á lélegum báti. 4 Það var í febrúar 1752. Þá sótti Þórður um prestakallið og var vígður þangað sama ár. Hann hefur ekki langað til að setjast að í Skrauthólum en aftur á móti rennt hýru auga til Móa. Hann hófst því handa eftir að hann var kominn á Kjalarnes að fá prestsetrið flutt og beitti fyrir sig ýmsum rökum sem sum orka ef til vill tvímælis. Hvað sem um það má segja var árangurinn góður. Tveimur árum síðar, 26. apríl 1754, samþykktu yfirvöld flutning prestsetursins. Eftir það sátu prestar Kjalnesinga á Móum um langan aldur. Öfugskelda Jarðirnar Sjávarhólar og Skrauthólar á Kjalarnesi heita eftir urðarhólum við ströndina milli bæjanna og bera nöfn sem eiga vel við landslagið á þessum slóðum. Hólarnir eru hluti af fornlegu berghlaupi sem fallið hefur efst úr Esjubrúnum og kastast niður á láglendið allt í sjó fram. Þessu berghlaupi hefur áður verið lýst í Náttúrufræðingnum og er ekki ástæða til að endurtaka þá lýsingu hér.5,6 Ekki er vitað af hverju Öfugskelda bar þetta sérkennilega nafn né heldur hvers konar fyrirbrigði öfugskelda er, en nóg er af venjulegum keldum þarna í grenndinni. Í örnefnaskrá Skrauthóla sést reyndar nafn- myndin Ófeigskelda en það er líklega seinni tíma skýringatilraun.7 Þótt ekki sé minnst á Sjávarhóla og Skrauthóla í Landnámu er líklegt að báðar jarðirnar hafi byggst snemma, jafnvel á landnámsöld. Öfugskelda virðist hafa verið byggð út úr Sjávarhólalandi löngu síðar (3. mynd). Ekki er vitað hvenær það var en bæjarnafnið sést fyrst í rituðum heimildum árið 1501. Þá kom jörðin við sögu í harkalegum deilum ríkustu höfðingja landsins um erfðir 3. mynd. Skrauthólar og fornminjar þar í grennd. Bærinn Öfugskelda var rétt austan við Skrauthóla eins og þessi mynd frá Árbæjarsafni sýnir. – The farm Skrauthólar and the site of Öfugskelda in the close neighbourhood. NFr_3-4 2015_final.indd 117 30.11.2015 16:34
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.