Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2015, Síða 30

Náttúrufræðingurinn - 2015, Síða 30
Náttúrufræðingurinn 122 Inngangur Allt frá því að Stefán Stefánsson hóf rannsóknir sem leiddu til 1. útgáfu Flóru Íslands árið 19011 hafa íslenskir grasafræðingar og aðrir áhugamenn verið ötulir að safna upplýsingum um útbreiðslu plantna á landinu. Þegar þessar rannsóknir komust á skrið var farið að gera útbreiðslukort fyrir einstakar tegundir í ýmsum tilgangi.2 Ákveðin útbreiðslu- mynstur sem fram komu voru síðar notuð til að rökstyðja svo- nefnda miðsvæðakenningu um að ákveðinn hluti flórunnar hafi lifað af síðasta jökulskeið ísaldar í landinu, og jafnvel fleiri,3,4 og einnig voru útbreiðslumynstur rakin til ákveðinna loftslagsskilyrða, svo sem landræns loftslags,5 hafræns loftslags6 og snjóþekju að vetri.7 Árið 1970 hófst kerfisbundin söfnun upplýsinga um staðsetningu plantna eftir 10×10 km-reitakerfi8 í samræmdan gagnagrunn. Í fyrstu var þetta unnið á vegum Náttúrugripasafnsins á Akureyri en síðar við Líffræðistofnun Há- skóla Íslands þar sem gögnin voru tölvusett. Frá 1987 var þessi gagnagrunnur í vörslu Náttúru fræðistofnunar Norður- lands á Akureyri en rann inn í Náttúrufræðistofnun Íslands við sameiningu þessara tveggja stofnana árið 1993. Árið 1997 var þeim áfanga náð að tekist hafði að safna upplýsingum um blómplöntur og byrkninga frá nánast öllum 10×10 km-reitum á landinu. Útbreiðslumynstur plantna á kortunum gefur í mörgum tilvikum vísbendingar um loftslag og aðra umhverfisþætti sem móta mynstrið. Það tekur hins vegar langan tíma fyrir plönturnar, oft margar aldir, að laga dreifingu sína að loftslaginu, þ.e. leggja undir sig öll þau svæði sem bjóða þeim hentug skilyrði, allt eftir því hversu virkan dreifingarmáta einstakar tegundir hafa. Þangað til ráða sögulegir þættir mestu um útbreiðsluna, og skiptir þá mestu hvenær og hvar tegundin barst fyrst til landsins. 1. mynd. Samanlögð útbreiðsla nokkurra hitakærra tegunda. Þær sem mestar kröfur gera vaxa aðeins á dökkbrúnu svæðunum, en á ljósbrúnum svæðum finnast tegundir sem minni kröfur gera til hitastigs. – Summarized distribution of several southern, thermophilic species. Those most demanding are limited to the dark brown regions, those less demanding are also found in the light brown regions 2. mynd. Útbreiðslukort stúfu (Succisa pratensis), hitakærrar tegundar með suðræna útbreiðslu. – The distribution of Devil’s-bit Scabious (Succisa pratensis), thermophilic species with southern distribution. 3. mynd. Útbreiðslukort boghæru (Luzula arcuata), norðurhjarategundar sem finnst á láglendi við norðurströndina en auk þess hátt til fjalla um allt landið. – The distribution of Curved Wood-rush, Luzula arcuata, an arctic species. It occurs in the lowland of the North Coast, but in the mountains of all other regions. NFr_3-4 2015_final.indd 122 30.11.2015 16:34

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.