Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2015, Page 32

Náttúrufræðingurinn - 2015, Page 32
Náttúrufræðingurinn 124 á landinu, sbr. boghæru, Luzula arcuata, á 3. mynd (sbr. Luzula arcuata-flokk í Wasowicsz o.fl. 20149). Aðeins með því að undanskilja alla fundarstaði ofan 200 m fáum við útbreiðslumynstur sem sýnir hvar þessar tegundir hafa vaxtarskilyrði á láglendi. Margar þessara tegunda eru háfjallategundir, svo sem fjallabláklukka (Campanula uniflora), hreistursteinbrjótur (Saxifraga foliolosa), fjallavorblóm (Draba oxycarpa) og snækobbi (Erigeron humilis) sem finnast alls ekki á láglendi á Íslandi. Landrænt loftslag (e. continental climate) einkennir að jafnaði þá landshluta sem liggja lengst frá sjó, en hafrænt loftslag (e. oceanic climate) fylgir ströndinni og nær mislangt inn í landið eftir landslagi. Helstu eiginleikar land- ræns loftslags eru tiltölulega hár hámarkshiti dags og sumars, lágur lágmarkshiti nætur og vetrar, mikil hitasveifla bæði dægurs og árstíða, og fremur lítil úrkoma. Á Íslandi er landrænasta loftslagið ekki í miðju landinu eins og búast mætti við, heldur er það hjámiðja í átt til norðausturs (4. mynd). Það er einkennandi fyrir innsveitir á Norðausturlandi og hálendið fyrir norðan Vatnajökul. Í þeim landshluta nær það út til strandar í flestum innfjörðum. Þess gætir einnig suður yfir hálendið og niður í uppsveitir sunnanlands en þó í minna mæli. Samkvæmt útbreiðslumynstri virðast a.m.k. um 35 tegundir plantna (að meðtöldum nokkrum fléttum og mosum auk háplantna) vera háðar landrænu loftslagi. Dæmi um slíkar tegundir eru birkifjóla (Viola epipsila), snækobbi (Erigeron humilis) (5. mynd) og dvergstör (Carex glacialis) (sbr. Carex rupestris-flokk í Wasowicsz o.fl. 20149). Það þarf ekki að koma á óvart að verulegur gróðurmunur komi fram á skilum landræns og hafræns loftslags. Þessi svæði koma oft greinilega fram á veðurspákortum vegna ólíkra veðurskilyrða. Hvergi eru skilin eins skörp og á Austurlandi, sem sést vel þegar farið er frá utanverðum Berufirði úr mjög hafrænu loftslagi, yfir Öxi og niður í Skriðdal á Fljótsdalshéraði í landrænt loftslag. Þarna eru aðeins 40–50 km á milli þessara loftslagsgerða. Þegar haldið er vestur eftir Norðurlandi breytist loftslagið mjög hægfara yfir í hafrænna loftslag þegar kemur vestur fyrir Eyjafjörð og Skagafjörð. Þegar við skoðum útbreiðslu- mynstur hafrænna tegunda kemur fram eins konar spegilmynd af útbreiðslu landrænna tegunda. Hafrænar tegundir eru útbreiddar um allt Suðurland og Vesturland norður á Vestfirði og Húnaflóa, en vaxa aðeins á mjóu belti norður eftir strönd Austfjarða. Á Norður- og Norðausturlandi sjást hafrænar tegundir alls ekki eða aðeins á ystu annesjum (6. mynd). Helstu eiginleikar hafræns loftslags gagn- vart hinu landræna eru mun minni hitasveifla, jafnara hitastig allan sólar hringinn, minni hitastigsmunur milli árstíða, svo og allmikil úrkoma og meiri og jafnari loftraki. Hér á landi eru a.m.k. um 30 tegundir sem aðhyllast hafrænt loftslag. Ágætt dæmi er mosinn urðaskraut (Rhytidiadelphus loreus, 7. mynd). Í þeim hópi eru fáar blóm plöntur, en þeim mun fleiri tegundir mosa og fléttna, sem almennt eru mun háðari loftraka en blómplönturnar. Af þeim ástæðum kemur þessi hópur ekki fram í mynstrum Wasowicsz o.fl. 2014.9 6. mynd. Samanlögð útbreiðsla nokkurra hafrænna tegunda. Þær kröfuhörðustu finnast aðeins á ystu útskögum vestanlands og í Vestmannaeyjum. Flestar hafrænar tegundir vantar á austanverðu Norðurlandi og á miðhálendinu. – Summarized map of several species with oceanic distribution pattern. Those most demanding are only found on the western peninsulas and are absent in the Northeast and the Central highlands. 7. mynd. Útbreiðslukort urðarskrauts (Rhytidiadelphus loreus), dæmigert hafrænt útbreiðslumynstur. – Typical oceanic distribution pattern of the bryophyte, Rhytidiadelphus loreus. NFr_3-4 2015_final.indd 124 30.11.2015 16:34

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.