Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Náttúrufræðingurinn - 2015, Qupperneq 35

Náttúrufræðingurinn - 2015, Qupperneq 35
127 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags Mývatnsöræfi, til suðvesturs frá Hágöngum og Langasjó, og að lokum suðvestur af Langjökli um Skjaldbreiðarhraun og nágrenni. Að lokum er töluverður hópur plantna alfarið bundinn sjónum, annaðhvort fjörutegundir eða sjávarfitjategundir. Þær finna sér aðeins vaxtarskilyrði á svæðum þar sem sjór gengur á land við háflæði (sbr. Puccinellia maritima-flokk í Wasowicsz o.fl. 20149). Upplýsingar sem ekki koma fram á útbreiðslukortum Útbreiðslukort eru gagnlegt tæki til að gefa mynd af land- fræðilegri útbreiðslu tegund- anna til samanburðar við ýmsa umhverfisþætti sem hafa áhrif á útbreiðsluna. Auk þeirra gefur gagnagrunnurinn ýmsar fróðlegar upplýsingar sem ekki koma fram á slíkum kortum. Sem dæmi má nefna lóðrétta útbreiðslu tegundanna, sem aðeins er hægt að sýna með þversniði gegnum landið. Slík kort hafa verið notuð til að sýna útbreiðslu snjódældategunda við Eyjafjörð.7,14 Á venjulegum kortum sést engin takmörkun á útbreiðslu þessara tegunda, þær eru jafn algengar allt frá fjarðarmynni inn í dalbotna. Á sniði gegnum landið sést hins vegar að utan til við fjörðinn eru þær algengar frá sjávarmáli upp til fjalla, en innar við fjörðinn og inni í Eyjafjarðardal vantar þær á láglendi (13. mynd). Ástæðan er sú að í innsveitum getur allur snjór bráðnað hvenær sem er á miðjum vetri úr snjódældum á láglendi upp í 300–350 m hæð til fjalla, en í útsveitum helst snjór í sumum dældum allan veturinn. Snjódældaplöntur eins og grámulla, fjallasmári og aðalbláberjalyng (Vaccinium myrtillus) þola illa að missa snjóþekjuna á miðjum vetri. Þær vantar því á láglendi í innsveitum, en vaxa á belti frá þessari hæð og upp að efri vaxtarmörkum. Á þessu belti er snjóþekjan örugg í snjódældunum mestallan veturinn. Annað dæmi er þéttleiki út - breiðslunnar, sem ekki kemur fram á útbreiðslukortum. Út breiðslu- kort sem byggð eru á 10×10 km- eða 5×5 km-reitakerfum sýna einn punkt í miðju hvers reits, hvort sem mikið er af plöntunni hvarvetna í reitnum eða aðeins nokkrar plöntur á einum bletti. Gott dæmi um þetta er útbreiðslukort bláklukkunnar (Campanula rotundi- folia, 14. mynd). Kortið gefur í raun falska vísbendingu um að hún sé nokkuð útbreidd við Eyjafjörðinn og á höfuðborgarsvæðinu, auk þess að vera algeng á Austurlandi. Þetta er hins vegar fjarri sanni. Í raun er bláklukkan mjög útbreidd um allt Austurland frá Þistilfirði suður að Skeiðarársandi. Hún finnst þar hvarvetna í mólendi, uppi á heiðum og til fjalla, oft upp í 6–800 m hæð. Laufblöð hennar finnast þar víða, jafnvel þótt hún hafi ekki náð að blómgast. Hún fyllir sem sagt landið hvarvetna þar sem skilyrði henta henni, eða er með öðrum orðum landlæg á Austurlandi. Utan þessa svæðis er hún hvergi landlæg, finnst aðeins á stökum smáblettum og er hending að rekast á hana á vettvangi, t.d. við Eyjafjörðinn, þrátt fyrir þéttleika punktanna. Flestir þessir stöku staðir eru annaðhvort við gamlar alfaraleiðir frá því að hesturinn var þarfasti þjónninn eða í skógræktarreitum þar sem líklegt er að bláklukkan hafi borist með trjáplöntum að austan. Athyglisvert er hins vegar hversu lítið bláklukkan dreifist út frá þessum stöðum. Steindór Steindórsson nefnir dæmi 13. mynd. Lóðrétt þversnið sem sýnir útbreiðslu og hæðarmörk aðalbláberjalyngs (rautt) við Eyjafjörð. Í snjóþungum úthéruðum nær tegundin niður að sjávarmáli, en í snjóléttum innsveitum hverfur hún af láglendi. – Vertical distribution of Bilberry in Eyjafjörður District, North Iceland (red); y-axis: Elevation in m, x-axis: Distance from the coast. It is common in the snowy coastal district with secure snow cover all winter, but missing in the lowland of the inland valleys, where the snow may vanish from the lowland any time of the winter. 14. mynd. Útbreiðslukort bláklukku (Campanula rotundifolia). Hún er landlæg um allt Austurland frá Þistilfirði suður að Skeiðarársandi, en finnst aðeins á smáblettum utan þess svæðis. – Distribution of Harebell (Campanula rotundifolia). It is ubiquitous everywhere in the East, but very rare in all other areas, only present as a few plants in single patches. NFr_3-4 2015_final.indd 127 30.11.2015 16:34
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.