Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2015, Page 36

Náttúrufræðingurinn - 2015, Page 36
Náttúrufræðingurinn 128 um bláklukku sem óx á litlum bletti í 25–30 ár án þess að dreifast nokkuð, og hvarf síðan aftur án þess að nokkur augljós ástæða fyndist.4 Annað dæmi þekki ég frá Þingmannaleiðinni yfir Vaðlaheiði þar sem Jón Rögnvaldsson fann lítinn blett með bláklukku fyrir 1932.15 Ég fylgdist með þessum bletti í um 50 ár, en hann stækkaði lítið sem ekkert, og nú er hann týndur eða ef til vill alveg horfinn. Annað nærtækt dæmi er krossmaðran (Galium boreale), sem er landlæg á öllu Suðvesturlandi frá Hvammsfirði suður og austur að Eyjafjallajökli. Utan þess svæðis er hún aðeins á misstórum smáblettum við umferðaræðar um Norður- og Austurland. Hún er hins vegar á nokkrum svæðum farin að breiðast nokkuð út frá þessum blettum, einkum á innanverðu Fljótsdalshéraði og í Fljótsdal, og í vestanverðri Húnavatnssýslu. Þessi útbreiðslumynstur bláklukkunnar og krossmöðrunnar verða að mínu mati ekki skýrð út frá loftslagi né öðrum umhverfisþáttum. Nærtækasta skýringin er sú að plönturnar hafi borist snemma til landsins, bláklukkan til Austurlands en krossmaðran til Suðvesturlands, líklega fyrir um 5–10.000 árum. Á þessum langa tíma hefur þeim tekist að dreifast langar leiðir út frá upphafsstaðnum, og um leið fyllt landið og orðið landlægar á þeim svæðum sem þær komust yfir. Eftir landnám gafst þeim hins vegar nýr möguleiki til fjardreifingar með ríðandi umferð, og þannig komu til þessir dreifðu smáblettir víðs vegar um landið. Tíminn síðan um landnám er hins vegar enn ekki orðinn nógu langur til að þær geti myndað samfellda útbreiðslu og orðið landlægar á hinum nýju svæðum. Þriðja dæmið af skyldum toga er hundasúran, Rumex acetosella. Samkvæmt útbreiðslukortunum virðist hún nú útbreidd um allt landið, einkum á byggðum svæðum, en samt sem áður er mikill munur á dreifingu hennar eftir landshlutum. Hundasúran er landlæg um Suðurland og Vesturland og einnig nokkuð norður með Austfjörðum og væntanlega búin að vera þar lengi. Annars staðar, svo sem á austanverðu Norðurlandi, Norð- austurlandi og Fljótsdalshéraði er hún ekki landlæg heldur nýlegur landnemi sem aðeins finnst á landgræðslusvæðum, meðfram vegum og annars staðar þar sem umferð er mikil. Á bernskuárum mínum í Eyjafirðinum var hunda- súra ekki til þar, nema hún var komin til Möðruvalla í Hörgárdal og hafði einnig fundist á Oddeyri.15 Sama er að segja um Þingeyjarsýslur, þar var hún aðeins til sem fágætur slæðingur. Síðar hefur hún borist um þennan landshluta með ofaníburði og landgræðslu Vegagerðarinnar, með tækjum sem plægja niður jarðstrengi eða með sáningum í kjölfar slíkra framkvæmda, og síðast en ekki síst í miklum mæli á öllum athafnasvæðum Landgræðslunnar. Hvar sem farið er út fyrir áhrifa- svæði nefndra framkvæmda í þessum landshluta finnst að jafnaði engin hundasúra, gagnstætt því sem er á Vestur- og Suðurlandi. Skoðum nú nýrri slæðinga, þá sem borist hafa til landsins með manninum og dreifst um landið síðar. Engir slæðingar hafa dreifst eins hratt um landið í seinni tíð og hlaðkollan (Chamomilla suaveolens) og akurarfinn (Stellaria graminea). Báðir eru meira eða minna dreifðir um allt land samkvæmt útbreiðslukortum. Hlaðkollan barst til landsins um 1895 og hefur síðan dreifst hratt um byggðir landsins.16 Hún virðist dreifast einkum með bíldekkjum og skósólum og nam því fyrst land við allar hafnir, á bílastæðum og hvarvetna á sveitabæjum þar sem flutningabílar athafna sig, svo og í hlaðvörpum og á gangstígum. Hún er hins vegar hvergi orðin landlæg, finnst nánast hvergi í flögum eða móum utan umferðaræða né heldur uppi um heiðar. Akurarfinn er líklega eitthvað eldri í landinu, fyrsta heimild um hann er frá Akureyri 1861.17 Litlum sögum fer af honum fyrstu áratugina en upp úr 1930 er hann farinn að dreifast nokkuð um landið.18 Síðan hefur hann breiðst hratt út og er nú fyrir löngu kominn í flestar byggðir landsins og heim á flesta sveitabæi. Hann vex mest í þéttgrónu landi innan um gras eða stör. Eins og hlaðkollan fylgir hann aðeins byggðinni og landbúnaðinum, en er hvergi orðinn landlægur. Þessi og fleiri dæmi benda til þess að þótt slæðingar geti dreifst hratt um landið með umferð og athafnasemi mannsins, þá dugi 100–200 ár hvergi nærri til að þeir nái fullri dreifingu og verði landlægir. Með tímanum er hins vegar líklegt að hlaðkollan nemi land í rökum flögum og á malarkenndum eyrum líkt og krossfífill (Senecio vulgaris), lambaklukka (Cardamine hirsuta) og skurfa (Spergula arvensis) hafa þegar gert. Þessar þrjár síðastnefndu tegundir voru komnar löngu á undan hlaðkollunni og eru orðnar landlægar á Suðvesturlandi í þeim gróðurlendum sem henta þeim. Þær voru löngu orðnar ílendar í þeim landshluta um aldamótin 1900 þegar fyrsta útgáfa Flóru Íslands kom út, og þeirra er getið um miðja 18. öld í ferðabók Eggerts og Bjarna19 og í plöntulista Königs.20,21 Líklegt er að þær hafi borist til landsins um eða eftir landnám, eða jafnvel fyrr. Þótt þær séu orðnar landlægar á Suðvesturlandi hafa þær ekki náð að breiðast út um allt landið. Þá víkur sögunni að tegundum sem bárust með landnámsmönnum til Íslands og eru því búnar að vera hér í um það bil 1.100 ár. Góð dæmi um slíkar tegundir eru njóli (Rumex longifolius), húsapuntur (Elytrigia repens) og baldursbrá (Tripleurospermum maritimum). Afar litlar líkur eru á því að þær hafi verið komnar til landsins fyrir landnám. Baldursbráin gæti þó verið eldri og hafa borist með hafstraumum eða fuglum. Baldursbráin hefur oftar en einu sinni borist til Surtseyjar, í eitt skiptið örugglega með fuglum, en í hin skiptin líklega með sjónum.22 Þessar tegundir eru dreifðar um mestallt landið samkvæmt útbreiðslukortum en fylgja alfarið byggðinni. Njólinn hefur dreifst NFr_3-4 2015_final.indd 128 30.11.2015 16:34

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.