Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2015, Page 38

Náttúrufræðingurinn - 2015, Page 38
Náttúrufræðingurinn 130 engjarós (Comarum palustre) og í 6–8.000 ára gömlum setlögum frá Hafratjörn á Ásum af mosajafna (Selaginella selaginoides), horblöðku og langnykru (Potamogeton praelongus) að auki.33 Greining þessara tegunda og heimildir um nokkrar stórar ættir til viðbótar tel ég góða vísbendingu um að meiri hluti flórunnar hafi numið land hér (eða verið búinn að dreifast um landið) fyrir 9–11.000 árum. Einhverjar tegundir, en mun færri, hafa svo borist til landsins síðar. Frjórannsóknir við Gíslholtsvatn í Holtum og víðar gefa til kynna að reyniviður (Sorbus aucuparia), þrílaufungur og kattartunga (Plantago maritima) hafi verið búin að nema land fyrir 4–6.000 árum.30,34 Rannsóknir á Hellu á Árskógsströnd sýna mýrasóley (Parnassia palustris) í 8–9.000 ára gömlum setlögum30 og rannsóknir frá Vatnskotsvatni í Hegranesi benda til að mjaðjurt (Filipendula ulmaria) hafi verið komin þangað fyrir um 8.500 árum.34 Frjórannsóknir í Svínavatni í Grímsnesi benda til að mjaðjurt, kattartunga og blágresi (Geranium sylvaticum) hafi vaxið þar fyrir 7.500– 8.000 árum, og að reyniviður hafi verið kominn þangað fyrir um 7.000 árum.32 Þetta þýðir að vísu ekki að þessar tegundir geti ekki hafa verið komnar fyrr, því á sumum stöðum ná setlögin ekki alla leið til fyrstu þúsalda eftir að ísaldarjökla leysti. Hins vegar er eðlilegt að ætla að þótt allar þær tegundir sem auðvelt áttu með flutning til landsins hafi numið land á fyrstu árþúsundunum hafi landnám annarra ekki heppnast fyrr en síðar, og tegundir því bæst við smátt og smátt. Það er hins vegar ekki fyrr en fyrir rúmum 1.100 árum að nýir möguleikar opnast og plöntur byrja að flytjast til landsins á skipum hinna norrænu eða keltnesku landnema, m.a. með búfé þeirra. Einkum eru það tegundir sem almennt fylgja manninum og búskaparháttum hans, jurtir sem berast með búfé og fylgja ræktun. Sumar tegundir sem bárust með landnámsmönnum áttu þó fleiri flutningsmöguleika, og hafa að líkindum verið komnar til landsins áður. Dæmi um það er haugarfi, sem fylgir bæði ræktun og búfé og hefur því örugglega komið með landnámsmönnum, en berst einnig með fuglum og er mjög áburðarsækinn. Hann nam land í Surtsey árið 1970 og óx þá upp úr fugladriti,22 en dó út aftur á næstu árum þar sem áburðinn skorti. Löngu síðar barst hann aftur til Surtseyjar með mávum eftir að varp þeirra var komið af stað og nam þá varanlega land.35 Það eru því sterkar líkur á að hann hafi verið kominn í íslensku fuglabjörgin löngu fyrir landnám, eins og Áskell og Doris Löve hafa gert grein fyrir.36 Svipað gæti gilt um varpasveifgras. Það kemur einnig fyrir í fuglabjörgum en berst annars eins og haugarfinn um landið með húsdýrum, er hvarvetna í byggð en finnst einnig víða um óræktað land og á hálendinu í götum og næturskjólum búfjár og við gististaði leitarmanna. Tegundirnar hjartarfi (Capsella bursa-pastoris) og blóðarfi (Polygonum aviculare) fylgja einnig landbúnaðinum og búfénu en eru þó ekki eins útbreiddar og hinar tvær. Þær hafa án efa borist til landsins á landnámstíma og engar vísbendingar hef ég séð um að þær hafi verið komnar áður. Enn má nefna njóla og húsapunt sem dæmi um plöntur sem nær örugglega hafa fylgt landnáminu. Steindór Steindórsson telur hálíngresi (Agrostis capillaris) í hópi tegunda sem borist hafa til landsins um landnám og byggir það á þeirri eigin reynslu að það vaxi einkum í ræktuðu landi og fylgi búfé.4 Þetta er mikill misskilningur að mínu mati. Hálíngresi er landlægt um allt land frá fjöru og upp í 6–700 m hæð til fjalla, algjörlega án tillits til ræktunar og búfjár. Það fylgir jafnan skjólgóðum dældum í mólendi og fjallshlíðum líkt og blágresið. Það hefur mun víðari útbreiðslu en skriðlíngresi sem tengist fremur 16. mynd. Útbreiðslukort vallhumals (Achillea millefolium) ofan 600 m sýnir dæmigert landrænt mynstur. – Localities where Yarrow (Achillea millefolium) is found at the elevation of 600 m or more above sea level. It is frequent at higher elevations in the inland regions of the Northeast, but in all other regions it is mainly found near human settlements. 15. mynd. Útbreiðslukort vallhumals (Achillea millefolium). – Total distribution of Yarrow (Achillea millefolium) in Iceland. NFr_3-4 2015_final.indd 130 30.11.2015 16:34

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.