Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2015, Page 42

Náttúrufræðingurinn - 2015, Page 42
Náttúrufræðingurinn 134 Kísilþörungarnir Aulacoseira islandica (O. Müller) Simonsen og Aulacoseira subarctica (O. Müller) E.Y. Haworth og rannsóknir í Þingvallavatni Tegundirnar Aulacoseira islandica (O. Müller) Simonsen og Aulacoseira subarctica (O. Müller) E.Y. Haworth sem þrífast í Þingvallavatni eru merkilegar fyrir ýmsar sakir. Þingvallavatn er fyrsti fundarstaður tegundanna, en þeim var fyrst lýst í byrjun síðustu aldar, annars vegar sem tegund og hins vegar sem undirtegund; Þingvallavatn er því viðmiðunar- fundarstaður þeirra. Fyrir það eitt ættu Íslendingar að vakta sérstaklega lífsferla þeirra og þróun í vatninu. Tegundirnar halda uppi mestum hluta af lífþyngd þörungasvifsins árið um kring og líklega einnig mestum hluta af þörungaframleiðslu vatnsins. Þær þurfa lítið ljós til vaxtar og geta ef aðstæður leyfa haldið uppi hárri frumframleiðslu við yfirborðið yfir veturinn. Um hásumarið falla þær eins og snjódrífa úr svifinu til botns. Frumframleiðsla þeirra og annarra smásærra tegunda sem leggjast sem slikja yfir kransþörungabeltið er talin svara til um þriðjungs frum- framleiðslunnar á svæðinu. Markmiðið með þessari yfirlitsgrein er að sýna mikilvægi Aulacoseira-tegundanna í vistfræði Þingvallavatns í ljósi rannsókna sem gerðar voru á gróðursamfélaginu á tímabilinu 1974 til 1987 auk vöktunar frá 2007–2010, og setja fram drög að lýsingu á lífsferlum þeirra í vatninu. Í ljósi nýlegra heimilda frá öðrum löndum um líffræði og vistfræði þessara tegunda er ástæða til þess að rannsaka þær nánar í Þingvallavatni. Inngangur Danirnir Carl Hansen Ostenfeld og Carl Wesenberg-Lund rann sökuðu svif í Þingvallavatni og Mývatni árin 1902 og 1903.1 Ostenfeld sendi sýni af tveimur kísilþörungategundum af ættkvíslinni Melosira (frá Þingvallavatni og Heiðarvatni í Mýrdal) til Ottos Müllers í Berlín sem þá var að rannsaka ættkvíslina. Müller lýsti annarri tegundinni, þeirri stærri og breiðari, sem nýrri og gaf henni nafnið Melosira islandica og hina, þá minni, greindi hann sem Melosira italica. Í grein sem fjallar um breytileika innan ættkvíslarinnar gengur Müller lengra en fram kemur í grein þeirra Ostenfelds og Wesenberg-Lunds og lýsir tegundinni sem nýrri undirtegund M. italica, þ.e. Melosira italica ssp. subarctica.2 Við flokkunarfræðilega endurskipulagningu voru báðar þessar tegundir færðar undir ætt- kvíslina Aulacoseira (Thwaites).3 Elizabeth Y. Haworth færði síðan rök fyrir því að Aulacoseira italica ssp. subarctica ætti að skilgreina sem sérstaka tegund4 sem hún gerði árið 1990.5 Viðurkennd nöfn tegundanna eru: Aulacoseira islandica (O. Müller) Simonsen 1979 og Aulacoseira subarctica (O. Müller) E.Y. Haworth 1990. Þingvallavatn er því á skrá sem tilvísunarstaður fyrir frumlýsingu beggja tegundanna. Otto Müller rekur ýtarlega útlits- legan breytileika tegundanna, og nefnir m.a. beinar keðjur (l. forma recta) og bognar keðjur (l. forma curvata).2 Þessar útlitsgerðir, vísa til mikils breytileika í útliti en hafa ekki gefið tilefni til viðurkenndrar sundurgreiningar. Aulacoseira islandica og Aulacoseira subarctica finnast aðallega í djúpum næringarsnauðum vötnum á Íslandi, og er Aulacoseira subarctica mun algengari.6 Gunnar Steinn Jónsson Ritrýnd grein Náttúrufræðingurinn 85 (3–4), bls. 134–139, 2015 NFr_3-4 2015_final.indd 134 30.11.2015 16:34

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.