Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 2015, Side 43

Náttúrufræðingurinn - 2015, Side 43
135 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags Lýsing á tegundunum í Þingvallavatni Aulacoseira islandica (O. Müller) Simonsen. Lengd frumna: 4–21 µm, þvermál: 7–27 µm. Punktar (e. areolae): Í beinum röðum, 11–12 raðir á 10 µm, 12–13 punktar á 10 µm í hverri röð. Hlutfall þvermáls og lengdar: 1:0,15–2,1. Frumurnar í mislöngum keðjum, flestar bognar en sumar beinar.2 Í sýnum frá 1974– 1975 var mælt sambærilegt þvermál A. islandica og í frumlýsingunni (7–24 µm) og meðalþvermál var á bilinu 13 til 14 µm. Tímabil kynæxlunar og okfrumumyndunar (e. auxospores) var janúar til apríl. Þvermál fer þá í 18 til 28 µm.7 Á 1. mynd (a–d), eru smá- sjármyndir af Aulacoseira islandica frá Þingvallavatni. Á þeim sjást greinilega punktaraðir í skeljum frumnanna og eins hið bogna og spírallaga form keðjanna. Aulacoseira subarctica (O. Müller) E.Y. Haworth. Lengd frumna: 2,5–18 µm, þvermál: 3–15 µm. Punktar: Í bognum röðum, 18 raðir á 10 µm, 18 punktar á 10 µm í hverri röð. Hlutfall þvermáls og lengdar: 1:0,2–6,0. Frumurnar í mislöngum keðjum, flestar beinar en einnig til bognar.2 Í sýnum frá 1974– 1975 var mælt sambærilegt þvermál A. subarctica og í frumlýsingunni (3–14 µm) og var algengt þvermál á milli 5 og 8 µm. Tímabil kynæxlunar og okfrumumyndunar var frá byrjun júní, er í hámarki um miðjan júlí og enn til staðar í litlum mæli um miðjan ágúst.7 Þegar stöðu tegundarinnar var breytt úr undirtegund af Aulacoseira italica í nýja tegund, Aulacoseira subarctica, var m.a byggt á gerð og stærð gaddanna sem sjást á enda frumnanna. Gaddarnir eru grófir og beinir og hver þeirra rís af tveimur langböndum milli punktaraða (e. pervalvar costae) eins og greinilega má sjá á 2. mynd. Það er því einn gaddur fyrir hverjar tvær punktaraðir. Við frumuskiptingu mjókka frumurnar jafnt og þétt. Ástæðan er sú að kísilskeljarnar eru eins og box þar sem lokið, sem er breiðara, leggst að hluta yfir neðri hlutann. Við frumuskiptingu verða bæði efri og neðri hlutinn að loki í nýju frumunum. Því hefur fruman sem heldur lokinu sama þvermál og móðurfruman. Sú sem heldur botninum er á hinn bóginn mjórri en móðurfruman, sem nemur tvöfaldri þykkt skeljarinnar. Þvermálið er talið minnka um 0,15 til 0,32 µm við hverja frumuskiptingu hjá A. subarctica. Samkvæmt því ætti að vera hægt að leggja mat á lífsferil 1. mynd (a–d). Aulacoseira islandica (O. Müller) Simonsen í Þingvallavatni. – Aulacoseira islandica (O. Müller) Simonsen in Lake Thingvallavatn. Ljósm./Photo: Gunnar Steinn Jónsson. 2. mynd (a, b, c). Aulacoseira subarctica (O. Müller) E.Y. Haworth í Þingvallavatni. – Aulacoseira subarctica (O. Müller) E.Y. Haworth in Lake Thingvallavatn. Ljósm./Photo: Gunnar Steinn Jónsson. NFr_3-4 2015_final.indd 135 30.11.2015 16:34

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.