Náttúrufræðingurinn - 2015, Síða 61
153
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Refur leikur á himbrima
Ævar Petersen
Sumarið 2010 var fylgst með ref í ætisleit á Mýrum vestur þar sem lómar
hafa verið rannsakaðir síðan 2006. Sást hann taka egg úr hreiðrum lóma,
svartbaks og himbrima. Fylgst var með honum í um hálftíma en á þessum
tíma skokkaði hann um tveggja kílómetra leið. Hann leitaði greinilega með
bökkum vatna og tjarna þar sem lómshreiður er að finna. Refir höfðu kom-
ist upp á lagið með að ræna eggjum úr lómshreiðrum og hafði áður sést til
dýra. Áhugaverðast var að fylgjast með atburðarásinni þegar refurinn kom
að himbrimahreiðri. Fylgst var með atferli refs og álegufugls sem endaði
með því að refurinn nældi sér í annað eggið úr hreiðrinu.
Náttúrufræðingurinn 85 (3–4), bls. 153–155, 2015
1. mynd. Ótrúlega gæfur himbrimi á hreiðri. Myndin er tekin við Elliðavatn við Reykjavík og
án aðdráttarlinsu. Ljósmyndari stóð beint yfir fuglinum sem hjó í stígvél hans með nefinu. Eftir
nokkrar mínútur skaust dagsgamall ungi undan fuglinum og út á vatnið en foreldrið fylgdi. –
An unusually tame Great Northern Diver on nest. The photo is taken at Lake Elliðavatn on the
outskirts of Reykjavík, without a zoom lens. The photographer stood by the bird, which pecked
at his boots. After a few minutes a day old chick scurried out on the water from underneath the
adult, which immediately followed. Ljósm./Photo: Ævar Petersen, 28. júní 2013.
Rannsóknir hafa staðið yfir á
lómum á Mýrum vestur frá árinu
2006. Hafa þær snúist um að skoða
breytingar á varpstofni, meta varp-
árangur og setja á fuglana ljósrita
(e. geolocators) til að kanna ferðalög
þeirra utan varptíma.1 Lómar verpa
á bökkum tjarna og vatna eða þá
í sefi. Fljótlega varð ljóst að refir
gerðu usla í varpi lómanna á Mýrum.
Sáust þeir taka egg úr hreiðrum og
leita eftir vatnsbökkunum þar sem
lómshreiður er að finna. Mörg egg
hurfu skömmu eftir að þeim var
orpið, ekki síst árið 2010. Refir sáust
ræna lómshreiður og bera burtu
egg í kjafti. Eggin voru bæði étin
strax og falin skammt frá hreiðri,
eflaust til góða á þeim tíma árs
þegar æti er takmarkað. Vel er þekkt
að hrafnar stela nýjum eggjum
og fela þau til seinni tíma.2 Oftast
voru refirnir á ferli á nóttunni eða
snemma morguns. Auk afráns úr
lómshreiðrum sást refur næla sér í
egg úr hreiðri himbrima (1. mynd).
Var aðdragandi þess athyglisverður
og skal nú lýst nánar.
Hinn 5. júní 2010 fylgdist
höfundur í fjarsjá (30×) með
mó rauðum ref að morgni. Veður var
ákaflega gott, logn og lítil sól þannig
að skyggni var mjög hagstætt,
engin tíbrá sem oft torveldar sýn
á löngu færi. Skoðunarstaður var
við sumarbústaðinn Nýlendu sem
stendur á höfða við Nýlenduvatn.
Hann rís nokkuð upp yfir landið
umhverfis og er útsýni frábært í allar
áttir. Aðstæður til skoðunar voru því
eins og best varð á kosið, sem kom
til góða við skráningu atburðarins
sem hér er greint frá. Fylgst var
með refnum í u.þ.b. hálftíma en á
meðan fór hann um tveggja km leið.
Fjarlægð var breytileg, frá 150 til yfir
400 m. Engin styggð kom að refnum.
Refurinn var á skokki meðfram
sjávarströndinni neðan við Tanga-
tjörn hjá Ökrum á Mýrum þegar
fyrst sást til hans. Sveigði rebbi upp
að tjörninni sunnanverðri (2. mynd)
en tæpur tugur lómspara varp við
tjörnina. Kom hann að lómshreiðri,
stal úr því eggi og faldi í grasi um 50
m í burtu. Tók það refinn ekki nema
um 15 sekúndur að koma egginu
fyrir. Samstarfsmaður minn, Ib K.
Petersen, fór á staðinn meðan fylgst
NFr_3-4 2015_final.indd 153 30.11.2015 16:34