Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Náttúrufræðingurinn - 2015, Qupperneq 62

Náttúrufræðingurinn - 2015, Qupperneq 62
Náttúrufræðingurinn 154 2. mynd. Útsýni frá Nýlendu á Mýrum til vesturs. Næst þjóðvegi er ónefnd vegtjörn (hluti af Nýlenduvatni áður en vegurinn var lagður). Fjær er Tangatjörn þar sem hefur orpið hátt í tugur lómspara. – A view from Nýlenda towards west. Next to the road is a small pond, which used to be part of the larger Lake Nýlenduvatn. Further afield is Lake Tangatjörn occupied by nearly ten pairs of Red-throated Divers. Ljósm./Photo: Ævar Petersen, 3. júní 2010. var með því í fjarsjá hvar refurinn faldi eggið. Fann Ib eggið óskemmt. Í millitíðinni hafði refurinn haldið áfram vestur fyrir tjörnina þar sem hann sást ræna annað lómshreiður. Austan við tjörnina sveigði dýrið frá henni og skokkaði yfir mýri þar sem er svartbaksvarp. Þar sást hann taka egg úr svartbakshreiðri og fela. Áfram hélt refurinn og kom næst að norðvesturhorni Nýlenduvatns (3. mynd). Á annan tug lóma hefur orpið árlega við vatnið síðan rannsóknir hófust. Hélt refurinn austur með vatninu, staðfastlega með vatnsbakkanum. Kindur sem voru á svæðinu ömuðust við rebba og hraktist hann frá vatninu, tók á sig krók en kom að því aftur aðeins austar. Nokkrir lómar urpu þetta sumar á norðurströnd Nýlenduvatns en egg höfðu horfið úr flestum hreiðrum þegar hér var komið sögu. Fuglarnir höfðu ekki orpið að nýju en sé eggjum rænt líður hálfur mánuður þangað til lómar geta orpið að nýju.3 Við norðausturhorn vatnsins fann rebbi þó eitthvað sem talið var lómsegg. Þetta ár (2010) var lómavarp mun seinna á ferðinni en árið áður og er nokkuð víst að refir hafa valdið seinkun með því að ræna hreiðrin fljótlega eftir að orpið var í þau. Aðrir afræningjar á svæðinu eru svartbakar, hrafnar og kjóar. Nú hélt refurinn áfram og að Sand vatni, sem er næsta vatn austan Nýlenduvatns. Eiði er á milli vatnanna, aðeins um 15 m þar sem það er mjóst. Kom refurinn að norðausturhorni Sandvatns en þar skammt undan landi er steinn í vatninu. Þar var áður hólmi sem nú er löngu horfinn. Hann hét Sandvatnshólmi og urpu þar himbrimar árið 1858. Voru eggin tekin og komust í hendur Johns Wolleys sem þá var hér á landi.4 Wolley átti gríðarmikið eggjasafn og er það varðveitt í British Museum í Englandi. Sumarið 2010 varp himbrimi við Sandvatn og var hreiðrið í norðausturhorni vatnsins gegnt staðnum þar sem Sandvatnshólmi var fyrrum. Eftir að refurinn kom yfir að Sandvatni hélt hann áfram för sinni austur með vatninu og þræddi vatnsbakkann sem fyrr. Ekki leið á löngu þar til hann kom í námunda við himbrimann á hreiðri sínu. Hófst nú áhugaverð atburðarás. Þegar rebbi nálgaðist smeygði fuglinn sér af hreiðrinu en hélt sig fast við vatnsbakkann. Í hreiðrinu voru tvö egg sem sáust greinilega þótt fjarlægðin væri um 425 m. Maki álegufuglsins var ekki viðstaddur en hann hefur sjálfsagt verið úti á sjó í fæðuleit. Þegar refurinn átti nokkra metra eftir að hreiðrinu lyfti himbriminn sér upp, breiddi vængina út og buslaði með fótunum svo skvettur gengu í allar áttir.5 Þetta atferli er dæmigert fyrir himbrima þegar óviðkomandi, svo sem mannfólk, er við hreiðrið þótt misjafnt sé hvað einstakir fuglar eru æstir eða árásargjarnir. Þegar fuglinn lét sem verst hörfaði refurinn lítið eitt og við það róaðist himbriminn. Þannig gekk í nokkur skipti þangað til refurinn tók að grafa með framlöppunum og var hann þá 1–2 m frá hreiðrinu. Við það róaðist himbriminn og sat stilltur á vatninu framan við hreiðrið. Allt í einu tók refurinn undir sig stökk að hreiðrinu, greip annað eggið í kjaftinn og hljóp burt áður en himbriminn áttaði sig og faldi það um 50 m í burtu. Skokkaði rebbi svo áfram til austurs með ströndu Sandvatns og hvarf en sneri ekki til baka að hreiðrinu til að ná í hitt eggið eins og við hefði mátt búast. Má ætla að refurinn hafi byrjað að grafa til þess að draga athygli fuglsins frá raunverulegri ætlan sinni, og sýnir það kænsku rebba. Slíkt atferli er þekkt hjá ýmsum tegundunum í dýraríkinu. Árið 2010 fannst í Helgrindum refagreni í ábúð, um 2 km frá himbrimahreiðrinu, og var annað grendýrið mórautt. Fjórum dögum eftir að refurinn stal himbrima- egginu skaut refaskytta mórauðan ref á þessum slóðum og er líklegt að þar hafi fallið dýrið sem stal egginu. Af himbrimaparinu er það að segja að varp misfórst og enginn ungi sást á vatninu fram eftir sumri eins og verið hafði árið áður. Sárasjaldan verða menn sjónar- vottar að atburðarás sem þessari, hvað þá að afráni úr himbrima hreiðri, og því eru nær engar skráðar lýsingar NFr_3-4 2015_final.indd 154 30.11.2015 16:34
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.