Náttúrufræðingurinn - 2015, Síða 65
157
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Fjarðarheiði kallast grunn lægð í
fjallgarðinum milli Austfjarða og
Héraðs, kennd við bæinn Fjörð í
Seyðisfirði, og er 600–650 m yfir
sjávarmáli. Þar hefur um aldir verið
alfaraleið milli Seyðisfjarðar og
Héraðs, og má þar sjá ruddan og
varðaðan reiðveg og tvo gamla
bílvegi, nokkuð heillega, auk
núverandi þjóðvegar. Heiðin er
mjög snjóþung og liggja þar iðulega
fannir í dældum allt sumarið.
Gróðurinn ber þess merki, hann
er víða fremur rýr, nema neðst í
lægðinni þar sem eru mýrar og
tjarnir með störum og broki. Í
þurrlendi er grasvíðir mest áberandi,
oftast dvergvaxinn, 1–3 sm, iðulega
gormsnúinn, með smáum blöðum
og aldinlaus.
Meira svæði þekur þó mosa -
skorpan eða „mosamoldin“, sem
Steindór Steindórsson kallaði,
og má segja að hún sé ríkjandi
gróðurfélag á heiðinni, bæði í þurru
mólendi og nokkuð röku og grýttu
landi (1. mynd). Þetta er sótbrún
eða næstum svört skorpa sem þekur
moldarlagið og er yfirborð hennar í
hrjónum (hrufum) og smáfellingum
(2. mynd). Víða vex örsmár grasvíðir
á skorpunni, svo hún tilheyrir í
raun sama gróðurfélagi og grasvíði-
dældin.
Við skoðun í víðsjá sést að yfirborð
skorpunnar er þakið hélumosa
(Anthelia), sem myndar fasta þekju,
um 2–5 mm þykka, samanfléttaða
af mosastönglum með þéttsettum
sótbrúnum blaðvöndlum. Þegar
hún er rifin upp fylgir henni oft
1–1,5 sm þykkt moldarlag með
mosaleifum. Upp úr skorpunni
teygja sig hér og þar örstuttir, gráir
mosasprotar sem liggja flatir á
yfirborði hennar (3. mynd). Efst á
hrjónum virðist þessi mosaþekja
oft vera dauð og stundum rofin,
og yfirleitt er hún stráð moldar- og
sandkornum (áfoki). Ekki hef ég
séð þörunga á yfirborði hennar,
jafnvel ekki í raklendi (skoðað 11.
september 2013).
Heimildir um mosa-
skorpu
Svo virðist sem Helgi Jónsson hafi
orðið fyrstur til að geta um þetta
sérkennilega gróðurfélag í ritgerð
sinni um gróður á Austurlandi í
Botanisk Tidsskrift 1895, en þar ritar
hann:
Eftersom man stiger højere op ad
Fjeldene og kommer længere ind
i Dalene, tiltager Dværgpilen. Paa
Højfjældenes flade Stræk-ninger
optræder den i Forening med
Mosser, som dominerer paa større
Strækninger. Jeg saa paa Húsavíkur-
heiði et smukt Exempel paa denne
Vegetation, idet Salix herbacea vox-
ede eneherskende paa den graalig-
sorte Mosbund; flere Steder havde
man Mosbunden uden Dværgpilen.
Denne Mosbund ser ud som en
graaligsort Skorpe (1–2 Tommer tyk),
liggende paa Underlaget, og bestaar
af Anthelia nivalis og Jungermannia
[Lophozia] ventricosa.1
Í ritgerð um gróður á Snæfellsnesi
1900 segir Helgi:
Helgi Hallgrímsson
Mosaskorpa
1. mynd. Mosaskorpa á Fjarðarheiði. Hér er hringvaxinn grasvíðir áberandi í skorpunni og
grámulla lengst til vinstri. Ljósm. höf., 2013.
Náttúrufræðingurinn 85 (3–4), bls. 157–160, 2015
NFr_3-4 2015_final.indd 157 30.11.2015 16:34