Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2015, Blaðsíða 69

Náttúrufræðingurinn - 2015, Blaðsíða 69
161 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags Ísland hefur mikla jarðfræðilega sérstöðu og breytileiki jarðminja er mikill. Það er mikilvægt fyrir okkur að stuðla að vernd jarðminja og læra af reynslu annarra þjóða og þeim aðferðum sem þar eru notaðar. Alþjóðleg ráðstefna um jarðminjar og vernd þeirra var haldin í Reykjavík dagana 8.–12. september 2015. Yfirskrift ráðstefnunnar var Stefnumörkun jarðminjaverndar í heimi breytinga. Samtökin ProGEO stóðu fyrir ráðstefnunni en undirbúningur hennar var í höndum starfsmanna á Náttúrufræðistofnun Íslands, umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, Umhverfisstofnun, Landvernd, Jarðfræðafélagi Íslands og Jarð- vísindastofnun Háskóla Íslands. Hvað er ProGEO? ProGEO (The European Association for the Conservation of the Geological Heritage) eru frjáls evrópsk félagasamtök og geta allir gerst aðilar að þeim. Samtökin voru formlega stofnuð 1992, en eiga sögu aftur til ársins 1988. Markmið ProGEO er að stuðla að verndun jarðminja og landslags, ásamt því að efla fræðslu um jarðminjar og þekkingu á þeim. Samtökin standa fyrir alþjóðlegum ráðstefnum um jarðminjar og vernd þeirra og eru þær haldnar á 2–3 ára fresti. Samtökin eiga náið samstarf við Alþjóða-jarðfræðisambandið (IUGS) og Alþjóða-náttúruverndar- sambandið (IUCN). Auk þess hafa þau sterk tengsl við Mennta-, vísinda- og menningarstofnun Sameinuðu þjóðanna (UNESCO), jarðvanga og önnur náttúruverndarsamtök. ProGEO gefa reglulega út frétta- bréf, ProGEO News, á vefsíðu sinni. Samtökin koma að útgáfu fræðiritsins Geoheritage sem kemur út 3–4 sinnum á ári. Árið 2012 gáfu samtökin út merkilega bók, Geoheritage in Europe and its conservation.1 Í henni er gerð grein fyrir stöðu jarðminja í 37 Evrópulöndum, hverju fyrir sig, og er kafli um Ísland þar á meðal. Í bókinni er að finna afar gagnlegar upplýsingar um jarðminjavernd, fyrst og fremst út frá náttúruverndarlögum og öðrum lagalegum forsendum. ProGEO-ráðstefnan á Íslandi Ráðstefnudagarnir sjálfir voru 9. og 10. september, en fyrir og eftir ráðstefnuna var boðið upp á vettvangsferðir, eins dags ferð um Reykjanesskaga og tveggja daga ferð um Suðurland og hluta hálendisins, þar sem Veiðivötn og Landmannalaugar voru skoðuð. Þátttakendur á ráðstefnunni voru 80 frá 23 löndum, og voru 16 gestir frá löndum utan Evrópu. Íslenskir þátttakendur voru 12. Við opnun ráðstefnunnar ávarpaði Ólafur Ragnar Gríms- son, forseti Íslands, gesti ráðstefnunnar og vakti það bæði athygli og hrifningu. Þá fluttu Jón Geir Pétursson, skrifstofustjóri í Alþjóðleg ráðstefna í Reykjavík um jarðminjar og vernd þeirra Lovísa Ásbjörnsdóttir og Kristján Jónasson Náttúrufræðingurinn 85 (3–4), bls. 161–162, 2015 ProGEO – tveggja daga ráðstefnuferð. Hópmynd við Vatnaöldur. Ljósm. Lovísa Ásbjörnsdóttir. NFr_3-4 2015_final.indd 161 30.11.2015 16:35
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.