Ægir - 01.07.2015, Side 6
6
Við höfum í haust séð margar fréttir birtast um áhrif viðskiptabanns
Rússa á íslenskan sjávarútveg. Og þær eiga það sammerkt að um er
að ræða stórar fjárhæðir í tekjumissi af útflutningi, sér í lagi þegar
þær tölur eru settar í samhengi við einstaka landshluta eða ákveðin
svið greinarinnar. Sem rétt er að gera þar sem þetta högg, og það er
og verður að óbreyttu raunverulega umtalsvert, mun koma harðar
niður á sumum svæðum landsins en öðrum. Bitna harðar á tilteknum
hópum sjómanna og landverkafólks. Þegar öllu er á botninn hvolft
þá koma áhrifin að stórum hluta fram í minni vinnu fólks í greininni
og tilheyrandi samdrætti í atvinnutekjum, jafnvel þó svo að ekki hafi
verið boðaðar hreinar uppsagnir starfsfólks af þessum sökum.
Enn og aftur birtist okkur hvernig hinn hverfuli heimur sjávarút-
vegsins er. Það getur skyndilega rofað til og jafnharðan dregið fyrir
sólu. Takist okkur ekki að selja afurðir þá þýðir lítið að rífast um skipt-
ingu kvóta eða fiskveiðistjórnun. Endastöðin, sem er sala afurða, er
það sem allt snýst um. Í sjálfu sér er hún bæði endirinn og upphafið,
ef út í það er farið.
Friðleifur Friðleifsson, deildarstjóri hjá Icelandic Seafood Inter-
national, ræðir í viðtali hér í blaðinu um markaðsmál og áhrif við-
skiptabanns Rússa á íslenskan sjávarútveg. Þar vekur hann athygli á
atriði sem sjaldan er nefnt þegar veiðar, vinnsla og markaðsmál eru
rædd, þ.e. afhendingaröryggi. „Afhendingaröryggi er lykilatriði í allri
markaðssetningu vöru. Þetta er hugtak sem fólk þarf að leggja sig
betur fram um að skilja og meðtaka. Eftir að hafa stundað viðskipti
við margar af stærstu verslunarkeðjum Evrópu get ég staðfest þetta.
Fyrsta spurning innkaupastjóranna er iðulega sú hvort við getum
samið við þá til 12 mánaða? Ef svarið er jákvætt, fara þeir kannski
fram á 24. Getum við ábyrgst afhendingu og gæði? Við svörum því
játandi og þá fyrst fara menn að ræða um verð. Þegar kemur að
þorski stöndum við mjög vel að vígi upp á afhendingaröryggi. Það
hefur í raun verið lykilatriði í því hvernig við höfum byggt upp mark-
aði fyrir þorsk.“
Sóknartækifærin eru sannarlega til staðar og sagan geymir í þess-
ari grein, líkt og mörgum öðrum, þá staðreynd að mótlætið getur oft
skilað mesta ávinningnum til framþróunar. Í sjávarútveginum er
heldur ekki við því að búast að alltaf gangi vel á öllum sviðum. Líkast
til er það líka skýringin á þeirri staðreynd hversu mikill nýsköpunar-
og framþróunaráhugi drífur áfram fólk og fyrirtæki í sjávarútvegi. Það
þarf stöðugt að bregðast við.
Pétur H. Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis hf. í Grindavík lýsir ein-
mitt í viðtali hvernig fyrirtækið þurfti að bregðast við breytingum,
taka erfiðar ákvarðanir og leita nýrra leiða. Og hann er ekki í vafa um
tækifæri í nýsköpun í greininni. „Atvinnugreinin sjálf býr yfir gríðar-
legri þekkingu og það er ótrúlega margt spennandi að gerast innan
hennar. Menn eru fljótir að aðlagast og finna nýjar leiðir til verð-
mætasköpunar. Þann kraft þarf að beisla áfram. Það hefur aðeins
staðið upp á okkur sjálfa að sýna fólki hvað við erum að gera. Með
því væri kannski hægt að losa umræðuna um sjávarútveginn úr þeim
hjólförum sem hún hefur verið föst í allt of lengi og beina henni inn á
uppbyggilegri brautir.“
Jóhann Ólafur Halldórsson skrifar
Blikur og bullandi tækifæri
Út gef andi:
Athygli ehf. ISSN 0001-9038
Rit stjórn:
Athygli ehf. Glerárgötu 24, Ak ur eyri.
Rit stjór i:
Jóhann Ólafur Hall dórs son (ábm.)
Sími 515-5220. GSM 899-9865.
Net fang: johann@athygli.is
Aug lýs ing ar:
Augljós miðlun. Sími 515-5206.
GSM 898-8022.
Net fang: inga@athygli.is
Suðurlandsbraut 30. Reykjavík.
Hönnun & umbrot:
Athygli ehf.
Suðurlandsbraut 30. Reykjavík.
Sími 515-5200.
Á skrift:
Hálfsársáskrift að Ægi kostar 5500 kr.
Áskriftar símar 515-5200 & 515-5205
ÆG IR kem ur út 11 sinn um á ári.
Eft ir prent un og ívitn un er heim il,
sé heim ild ar get ið.
R
itstjórn
a
rp
istilll
Vökvakerfislausnir
Vökvadælur, vökvamótorar
og stjórnbúnaður
Danfoss hf. Skútuvogi 6, 104 Reykjavík, Sími: 510 4100
www.danfoss.is
Stjórnbúnaður skipa. Tæknibúnaður sem ætlaður
er til notkunar á sjó mætir erfiðustu hugsanlegu
skilyrðum. Álag óblíðrar náttúru, miklar
hitabreytingar og stöðugur ágangur af söltum
sjó, eykur þörf viðskiptavina fyrir áreiðanlegan
og skilvirkan búnað.
Athugasemd
ristjórnar
Síðasta
tölublað Ægis
var fyrir mistök
merkt 7. t.bl. en
átti að vera 6.
tbl. Beðist er
velvirðingar á
þeim
mistökum.
Ritstjóri
1
T Í M A R I T U M S J Á V A R Ú T V E G Í 1 0 0 Á R108. árgangur - 7. tölubla› 2015 ISSN 0001-9038
Snorri Snorrason
skipstjóri á
Klakki SK-5
Þetta er
skemmtilegt
líf!
Kvótinn 2015-2016