Ægir

Árgangur

Ægir - 01.07.2015, Blaðsíða 27

Ægir - 01.07.2015, Blaðsíða 27
27 Ráðstefnan World Seafood Con- gress verður haldin í Reykjavík dagana 10.-14. september 2017. Ráðstefnan er haldin á tveggja ára fresti og ekki ein- asta er þetta í fyrsta skipti sem hún er haldin á Íslandi heldur jafnframt í fyrsta skipti sem henni er valinn staður á ein- hverju Norðurlandanna. Valið stóð á milli Íslands og Víetnam fyrir ráðstefnustað 2017. Matís vinnur að skipulagi og undirbúningi World Seafood Congress 2017 og eru drög að dagskrá, heimasíða og fleira að taka á sig mynd. Sigrún Elsa Smáradóttir, fagstjóri hjá Matís, segir kynningu á ráðstefnunni að hefjast í íslenskum sjávarút- vegi sem hún segir að fái þar gott tækifæri til að kynna sig á alþjóðavettvangi. Bláa lífhagkerfið í brennidepli Meginþema ráðstefnunnar 2017 verður vöxtur í bláa líf- hagkerfinu en með því er vísað til mikilvægis hafsins og þeirra tækifæra sem það skapar til vaxtar, nýsköpunar, rannsókna og markaðssetningar með mat- vælaöryggi, fæðuöryggi, sjálf- bærni og matarheilindi að leið- arljósi. Fjallað verður um ný- sköpun í sjávarútvegi, nýjar vörur og möguleika til fjárfest- inga, matvælaöryggi og for- sendur nýsköpunar í matvæla- framleiðslu fá einnig umfjöllun sem og alþjóðleg verslun með mat. Svokölluð matarheilindi verða einnig umfjöllunarefni, þ.e. baráttan gegn svikum í matvælaframleiðslu, rekjan- leika í matvælaframleiðslu, sölu á tímum netverslunar og mat- artengdar ferðaþjónustu. Mark- aðsaðgengi er annað mikil- vægt viðfangsefni og gefast tækifæri til að fjalla um að- gengi að mörkuðum ekki hvað síst vaxandi mörkuðum í Afríku og Asíu. Opnar ný tækifæri „Alþjóða matvælastofnunin (FAO) stofnaði til ráðstefnunnar á sínum tíma og ásamt henni hafa undirstofnanir Sameinuðu þjóðanna komið að þessum vettvangi. Hér á landi höfum við Sjávarútvegsháskóla Sam- einuðu þjóðanna og munum við að sjálfsögðu tengja hann þessari ráðstefnu. Ráðstefnan er að okkar mati kjörið tækifæri til að kynna íslenskan sjávarút- veg alþjóðlega enda sækja hana fulltrúar hvaðanæva að úr heiminum. Reynslan hefur sýnt að sjávarútvegur þess lands þar sem ráðstefnan er haldin hverju sinni fær mikið kastljós og okk- ar markmið er að svo verði einnig að þessu sinni. Liður í því verður tenging hennar við Ís- lensku sjávarútvegssýninguna sem hefst þann 13. september 2017 en lokadagur ráðstefn- unnar er jafnan helgaður heim- sóknum til fyrirtækja í greininni og í okkar tilfelli munu ráð- stefnugestir verja síðasta deg- inum á sýningunni. Við höfum þarna mikinn vettvang til að koma á framfæri fyrir hvað ís- lenskur sjávarútvegur stendur, hvernig við stýrum veiðum, vinnslu, markaðsmálum og öllu öðru sem að greininni snýr. Markmiðið er að ráðstefnan skili okkur ávinningi og skapi um leið ný tækifæri fyrir greinina, því viljum hvetja bæði fyrirtæki og stofnanir til að taka þátt,“ segir Sigrún Elsa. Ráðstefnan World Seafood Congress á Íslandi í fyrsta sinn árið 2017: Tækifæri til að kynna íslenskan sjávarútvegi alþjóðlega Sigrún Elsa Smáradóttir, fagstjóri hjá Matís. Íslenskur sjávarútvegur mun fá mikið kastljós á WSC ráðstefnunni haustið 2017, líkt og jafnan er um sjávarútveg í því landi þar sem hún er haldin hverju sinni. F réttir

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.