Ægir - 01.07.2015, Side 27
27
Ráðstefnan World Seafood Con-
gress verður haldin í Reykjavík
dagana 10.-14. september
2017. Ráðstefnan er haldin á
tveggja ára fresti og ekki ein-
asta er þetta í fyrsta skipti sem
hún er haldin á Íslandi heldur
jafnframt í fyrsta skipti sem
henni er valinn staður á ein-
hverju Norðurlandanna. Valið
stóð á milli Íslands og Víetnam
fyrir ráðstefnustað 2017.
Matís vinnur að skipulagi og
undirbúningi World Seafood
Congress 2017 og eru drög að
dagskrá, heimasíða og fleira að
taka á sig mynd. Sigrún Elsa
Smáradóttir, fagstjóri hjá Matís,
segir kynningu á ráðstefnunni
að hefjast í íslenskum sjávarút-
vegi sem hún segir að fái þar
gott tækifæri til að kynna sig á
alþjóðavettvangi.
Bláa lífhagkerfið í brennidepli
Meginþema ráðstefnunnar
2017 verður vöxtur í bláa líf-
hagkerfinu en með því er vísað
til mikilvægis hafsins og þeirra
tækifæra sem það skapar til
vaxtar, nýsköpunar, rannsókna
og markaðssetningar með mat-
vælaöryggi, fæðuöryggi, sjálf-
bærni og matarheilindi að leið-
arljósi. Fjallað verður um ný-
sköpun í sjávarútvegi, nýjar
vörur og möguleika til fjárfest-
inga, matvælaöryggi og for-
sendur nýsköpunar í matvæla-
framleiðslu fá einnig umfjöllun
sem og alþjóðleg verslun með
mat. Svokölluð matarheilindi
verða einnig umfjöllunarefni,
þ.e. baráttan gegn svikum í
matvælaframleiðslu, rekjan-
leika í matvælaframleiðslu, sölu
á tímum netverslunar og mat-
artengdar ferðaþjónustu. Mark-
aðsaðgengi er annað mikil-
vægt viðfangsefni og gefast
tækifæri til að fjalla um að-
gengi að mörkuðum ekki hvað
síst vaxandi mörkuðum í Afríku
og Asíu.
Opnar ný tækifæri
„Alþjóða matvælastofnunin
(FAO) stofnaði til ráðstefnunnar
á sínum tíma og ásamt henni
hafa undirstofnanir Sameinuðu
þjóðanna komið að þessum
vettvangi. Hér á landi höfum
við Sjávarútvegsháskóla Sam-
einuðu þjóðanna og munum
við að sjálfsögðu tengja hann
þessari ráðstefnu. Ráðstefnan
er að okkar mati kjörið tækifæri
til að kynna íslenskan sjávarút-
veg alþjóðlega enda sækja
hana fulltrúar hvaðanæva að úr
heiminum. Reynslan hefur sýnt
að sjávarútvegur þess lands þar
sem ráðstefnan er haldin hverju
sinni fær mikið kastljós og okk-
ar markmið er að svo verði
einnig að þessu sinni. Liður í því
verður tenging hennar við Ís-
lensku sjávarútvegssýninguna
sem hefst þann 13. september
2017 en lokadagur ráðstefn-
unnar er jafnan helgaður heim-
sóknum til fyrirtækja í greininni
og í okkar tilfelli munu ráð-
stefnugestir verja síðasta deg-
inum á sýningunni. Við höfum
þarna mikinn vettvang til að
koma á framfæri fyrir hvað ís-
lenskur sjávarútvegur stendur,
hvernig við stýrum veiðum,
vinnslu, markaðsmálum og öllu
öðru sem að greininni snýr.
Markmiðið er að ráðstefnan skili
okkur ávinningi og skapi um
leið ný tækifæri fyrir greinina,
því viljum hvetja bæði fyrirtæki
og stofnanir til að taka þátt,“
segir Sigrún Elsa.
Ráðstefnan World Seafood Congress á Íslandi í fyrsta sinn árið 2017:
Tækifæri til að kynna íslenskan
sjávarútvegi alþjóðlega
Sigrún Elsa Smáradóttir, fagstjóri
hjá Matís.
Íslenskur sjávarútvegur mun fá mikið kastljós á WSC ráðstefnunni
haustið 2017, líkt og jafnan er um sjávarútveg í því landi þar sem hún er
haldin hverju sinni.
F
réttir