Ægir - 01.07.2015, Page 7
Gæða dýptarmælar fyrir minni báta. 8,4” eða 5.5”, sérlega bjartur LCD 256 lita skjár.
Sendiorkan er 600 W/1kW, tíðnirnar eru 50 og 200 kHz. Hér eru á ferðinni mælar sem
geta stærðargreint fiskinn með hefðbundu botnstykki (single beam) sem áður var
einungis hægt með stóru fjölgeisla botnstykki (multi beam) og því ekki verið fáanlegt
fyrir minni báta. Einnig er í mælinum, öflug botngreining sem greinir botninn í fjórar
mismunandi gerðir, grjót, möl, sand og leir. Nýr truflanadeyfir sem gerir það að verkum
að mælirinn sýnir lóðningar nær botnstykkinu betur en áður. Þessir mælar gefa þér
forskot á fiskveiðunum.
FCV-295 Dýptarmælir
FCV 295 mælirinn vinnur á 2 valfrjálsum tíðnum (28-200
kHz), sendiorkan er 1, 2 eða 3 kW. Dýpissvið 0-3000 m
(1620 fm) 10,4” hágæðaskjár sem sýnir skýra mynd í
hvaða birtuskilyrðum sem er.
Ný tækni frá FURUNO, FDF, (Furuno digital filter) fín-
stillir truflanadeyfinn svo eftir stendur tærari mynd af
endurvarpinu. Truflanadeyfir virkar á allan skjáinn sam-
stundis sem gerir samanburð á fiskilóðningum og botn-
hörku auðveldari, þ.e. notandinn getur borið saman fyrri
og núverandi endurvörp undir sömu stillingu (gain).
FCV-587/FCV-627 Dýptarmælar