Ægir - 01.07.2015, Page 11
11
til ‘65 þegar hann var við síldar-
leit á rannsóknarskipum Haf-
rannsóknarstofnunar. Þrjú skip
leituðu og voru teknar átu- og
svifprufur með ákveðnu milli-
bili, allt skráð skilmerkilega og
orðsendingar sendar um tal-
stöð til aðalstöðvar síldarleitar-
innar á Dalatanga. „Þetta voru
mikil síldarár og upphafið að
ævintýrinu á Rauðatorginu,“
segir Bjarni.
Rauðatorgið var 60 til 80 sjó-
mílur aust-suðaustur af Gerpi
og fékk nafngiftina af geysi-
stórum flota rússneskra rek-
netabáta sem voru þar að veið-
um og skipum fleiri tugum.
„Þegar komið var að í myrkri leit
þetta svæði út eins og borg.
Rússarnir röðuðu sér í miklar
breiðfylkingar þegar þeir voru
að leggja netin þegar tók að
dimma á kvöldin. Þá var nú
betra að flækjast ekki fyrir
þeim,“ segir Bjarni. Minnist
hann þess að haustið 1966 hafi
gríðarmikið verið af síld á svæð-
inu. „Það var eins og botninn
lyftist upp á stóru svæði þegar
dimmdi, yfir daginn sást ekkert,
síldin lagðist svo klesst niður á
botn. Síld var á þessu svæði
fram undir jól, þegar hún fór að
dóla sér yfir hafið í átt að hrygn-
ingarstöðvunum við Noreg.“
Brestur í síldarstofni
Brestur kom í stofninn árið
1967, minna var um svamlandi
síld austan úr hafi, hún kom
norðar að en áður og lá mun
dýpra. Það hafði verið lenska
síldarinnar að dýpka um 10
faðma á ári og voru veiðarfærin
því dýpkuð í samræmi við það.
Stærstu næturnar náðu niður á
300 faðma dýpi og voru 110
faðma breiðar, álíka stórar og
veiðarfæri nú, en langt í frá eins
sterk. „Þetta sumar voru síldar-
torfur eltar alveg norður undir
Svalbarða, en lítið skilaði sér til
baka á Rauðatorgið. Fyrstu bát-
arnir byrjuðu að herja á önnur
mið þetta sumar, þeir stærstu
fóru niður í Norðursjó, niður á
Döggerbanka, en veiðiskapur-
inn gekk brösuglega, hafsvæð-
ið var óhreint, mikið um skips-
flök og lentu menn ítrekað í að
kasta á flök og rífa og tæta veið-
arfæri. Eins var á þessum tíma
lítið til af nákvæmum staðsetn-
ingartækjum, astiktækin sem
voru í notkun voru ekki nánd-
arnærri eins nákvæm og þau
tæki sem nú eru til. Það var
heldur enginn útbúnaður í bát-
unum til að kæla aflann og því
gerjaðist hann fljótt, sprengdi
upp lúgur og boxalok, þannig
að illa gekk að koma aflanum í
viðunandi ástandi í land.“
Súlan veiddi 612 þúsund tonn af
loðnu á 45 árum
Leó Sigurðsson gerði Súluna út,
en ákvað að draga sig í hlé og
hætta útgerð árið 1988. Varð að
ráði að Bjarni í félagi við Sverri,
son Leós, keypti bátinn. Ráku
þeir hann í sameiningu í um 20
ár. Sverrir sá um framkvæmda-
stjórn, Bjarni stjórnaði skipinu.
Hann fór sinn síðasta túr á Súl-
unni haustið 2009, skömmu áð-
ur en hún var seld til Síldar-
vinnslunnar. Örlögin voru ekki
umflúin, skipið hafði lokið sín-
um líftíma og fór í brotajárn í
Belgíu. „Þessu skipi hafði verið
siglt farsællega í 45 ár, það
hafði borið að landi um 612
þúsund tonn af loðnu á þessum
árum og nam útflutningsverð-
mætið milljörðum króna,“ segir
Bjarni, en að auki veiddi skipið
aðrar tegundir; þorsk, síld og
rækju.
Breytingar til batnaðar í áranna
rás
Súlan var smíðuð í Fredriksstað
í Noregi árið 1967 og var með
stærri nótaskipum á þeim tíma.
Skipið var lengt árið 1974 og
byggt var yfir það ári síðar. Ný
vél var sett í skipið árið 1979 en
gagngerar breytingar voru svo
gerðar á Súlunni í Póllandi árið
1996, þegar hún var lengt á ný,
Skeifan 3E-F · Sími 581-2333 · rafver@rafver.is · www.rafver.is
K Ä R C H E R S Ö L U M E N N
NT 35/1 Tact
Ryksugar blautt og þurrt
Fylgihlutir
Barki 35mm 2,5m,
málmrör, 30mm
gólfhaus og mjór
sogstútur.
NT 45/1 Tact Te
Ryksugar blautt
og þurrt
Fylgihlutir
Barki 35mm 2,5m,
málmrör, 30mm
gólfhaus og mjór
sogstútur,
rafmagnstengill.
NT 55/1 Tact
Ryksugar blautt og þurrt
Fylgihlutir
2,5m 35mm barki, málmrör,
30mm gólfhaus og mjór
sogstútur.
NT 25/1 Ap
Ryksugar blautt
og þurrt
Fylgihlutir
Barki 35mm 2,5m,
málmrör, 30mm
gólfhaus og mjór
sogstútur. Takki
fyrir hreinsun
á síu.
Iðnaðarryksugur
Fyrir bæði blautt
og þurrt
Sjálfvirk
hreinsun á síu
Tengill
Súlan á siglingu með fullfermi, um 950 tonn. Myndin er að líkindum frá
árinu 1986.
Bjarni við Súluna þegar hún var í gagngerum breytingum í Póllandi árið
1996.