Ægir - 01.07.2015, Page 14
14
Útivistarfatnaður frá 66°NORÐUR hefur verið áberandi á markaði
undanfarin ár, en Íslendingar þekkja þó flestir til uppruna fyrirtæk-
isins sem sjóklæðagerðar. „Þrátt fyrir að þróunin í útivistarfatnaði
hafi verið ör þá er sjóklæðagerðin enn í dag ein af meginstoðum
fyrirtækisins,“ segir Tomasz Veruson, rekstrarstjóri fyrirtækjasviðs
hjá 66°NORÐUR.
Nýir sjóstakkar í október
„Á sjávarútvegssýningunni í
Kópavogi í fyrra kynntum við til
leiks nýjan sjóstakk og nú í
október vorum við stolt af því
að setja hann á markað. Sjó-
stakkurinn er hannaður út frá
þörfum og ábendingum ís-
lenskra sjómanna. Við unnum
út frá eldri gerð af sjóstakki en
gerðum á honum ýmsar breyt-
ingar sem við teljum að muni
auðvelda líf sjómanna til
muna,“ segir Tomasz.
„Ein ábending sem okkur
barst var sú að hettan á sjó-
stakknum væri alltof lítil, en
vegna öryggis eru allir sjómenn
skyldaðir til að ganga með
hjálm í dag. Nýja hettan er því
þannig sniðin að hún passi vel
yfir hjálm, en þó án þess að þú
festist í flíkinni. Sjómenn þurfa
oft að vinna upp fyrir sig og
önnur ábending var á þá leið að
ermarnar eigi það til síga niður
eftir handleggjunum við slíka
vinnu. Til að koma í veg fyrir
það höfum við því nú sett stroff
í ermarnar sem halda þeim á
réttum stað. Þriðja atriðið sem
ég vil nefna, og er það alls ekki
síst, er að nú er efnið á bakinu
þynnra en að framan sem eykur
hreyfigetu til muna, auk þess að
efnið andar mun betur svo að
þú verður ekki eins sveittur
undir flíkinni.“
Hönnunin tekur því bæði til-
lit til breyttra vinnuaðstæðna
hjá nútímasjómönnum auk
þess að nýta tækninýjungar í
klæðagerð.
Sjóbuxur með innri vasa
Sjóstakkurinn er ekki eina nýja
varan sem er í farvatninu frá
66°NORÐUR en ný útgáfa af sjó-
buxum er nú í prufunotkun hjá
nokkrum sjómönnum. „Við
gerðum þónokkrar breytingar á
þeim, en ég vil kannski helst
nefna eitt atriði sem hljómar ef
til vill lítið séð frá bæjardyrum
okkar sem vinnum í landi – en
skiptir miklu máli fyrir sjómenn.
Það er að hafa lítinn, vatnsheld-
an vasa innan á buxunum sem
getur haldið utan um snjall-
síma. Sjómenn standa oft lang-
ar vaktir og vilja gjarnan hafa
aðgang að tónlistinni sinni eða
einfaldlega vera í símasam-
bandi þegar því er við komið.“
Tomasz segir að þetta sé enn
eitt gott dæmið um umbætur á
hönnun sem hafi kviknað út frá
samtölum við sjómenn og að
fyrirtækið reyni ávallt að vera í
góðu sambandi við viðskipta-
vini sína og þróa flíkurnar í sam-
starfi við þá.
Tómasz Veruson, rekstrarstjóri fyrirtækjasviðs 66°NORÐUR.
Nútíma
sjóklæðnaður
Þ
jón
u
sta