Ægir - 01.07.2015, Page 15
15
F
réttir
Sjávarútvegráðstefnan
í sjötta sinn
„Umræðan á Sjávarútvegsráð-
stefnunni endurspeglar það
sem efst er á baugi í sjávarút-
vegi á Íslandi í dag,“ segir
Bylgja Hauksdóttir, formaður
stjórnar Sjávarútvegsráðstefn-
unnar sem haldin verður í
sjötta sinn dagana 19. og 20.
nóvember næstkomandi. Í ljósi
mikillar aðsóknar að ráðstefn-
unni síðustu ár verður hún nú
haldin á Hilton Reykjavík Nor-
dica þar sem aðgangur er að
tveimur 300 manna ráðstefnu-
sölum.
Ráðstefnan hefst að kl. 10 að
morgni fimmtudagsins 19. nóv-
ember með opnunarávarpi Sig-
mundar Davíðs Gunnlaugsson-
ar, forsætisráðherra og því næst
taka við erindi Simon Smith frá
Saucy Fishco sem talar um
hvernig eigi að kenna ungum
neytendum að borða meiri fisk,
Daða Más Kristóferssonar um
auðlindagjöld og loks erindi
Kristjáns Hjaltasonar um ís-
lenskan sjávarútveg 2015,
heimsframboð og hagsmuna-
gæslu. Því næst mun Hjálmar
Sigþórsson frá Tryggingamið-
stöðinni afhenda Framúrstefnu-
verðlaun Sjávarútvegsráðstefn-
unnar 2015 en þau hafa verið
fastur liður hennar frá upphafi.
Átta málstofur
Aðalefni ráðstefnunnar verða
síðan átta málstofur þar sem
fjölbreytt málefni sem snerta ís-
lenskan sjávarútveg verða til
umfjöllunar. Fjórar málstofur á
fyrri degi ráðstefnunnar bera yf-
irskriftirnar „Lengi býr að fyrstu
gerð - frá veiðum til vinnslu“,
„Ný nálgun við markaðssetn-
ingu sjávarafurða“, „Hvaða
tækifæri sjá erlendir aðilar í ís-
lensku fiskeldi“ og „Eru tækifæri
fyrir Íslendinga í umhverfismál-
um?“
Málstofur síðari ráðstefnu-
dagsins bera yfirskriftirnar
„Togveiðar – Áskoranir til fram-
tíðar“, „Sjávarútvegur og sam-
félagsábyrgð“, „Ferskfiskflutn-
ingar og markaðir“ og „Af
hverju eru ekki fleiri konur í
stjórnunarstöðum í sjávarút-
vegi?“
Málstofum á síðari degi lýk-
ur um hádegi en síðasti hluti
ráðstefnunnar verður helgaður
umfjöllun um sameiginlega
markaðssetingu þar sem m.a.
verður fjallað um kosti og galla
landsmerkis fyrir íslenskan sjáv-
arútveg. Sigurður Ingi Jóhanns-
son, sjávarútvegsráðherra mun
síðan flytja ávarp í lok þessa lið-
ar ráðstefnunnar en henni lýkur
með kosningu fulltrúa í stjórn.
Umræða sprottin úr grasrót
greinarinnar
„Okkar markmið er að hafa
mikla fjölbreytni í umfjöllunar-
efnum ráðstefnunnar og koma
sem víðast við. Við heyrum í
smábátasjómönnum, fræðumst
um flutninga, fiskeldi, ræðum
umhverfismálin, togveiðar,
flutninga, ábyrgar fiskveiðar og
þannig má áfram telja. Og síð-
ast en ekki síst efnum við til
málstofu um þá spurningu
hvers vegna ekki eru fleiri kon-
ur í stjórnunarstöðum í sjávar-
útvegi sem verður ekki síður
forvitnileg umfjöllun en annað
sem þarna verður rætt,“ segir
Bylgja og undirstrikar að Sjávar-
útvegsráðstefnan sé öllum opin
og óbundin hagsmunaöflum
eða stjórnmálaskoðunum.
„Sjávarútvegsráðstefnan er
vettvangur fyrir allar skoðanir
og er hreinræktuð grasrótarum-
ræða fólks í greininni og mark-
miðið er að dýpka og efla um-
ræðuna um hana. Sjávarútvegs-
stefnan hefur því ekki gróða-
sjónarmið að leiðarljósi heldur
einungis að hver ráðstefna
standi undir sér,“ segir Bylgja
en frummælendur á ráðstefn-
unni skipta tugum og í ljósi
reynslunnar er við því að búast
að hana sæki hátt í 500 manns.
„Í undirbúningi ráðstefnunn-
ar skipuleggjum við umfjöllun-
arefnin og síðan mótast um-
fjöllunin af þeim fyrirlesurum
sem taka þátt í hverri málstofu
fyrir sig. Okkur hefur reynst
auðvelt að fá frummælendur
og í sumum tilfellum hafa aðilar
óskað eftir að fá að halda erindi
á málstofunum. Við getum því
ekki verið annað en ánægð
með hvernig Sjávarútvegsráð-
stefnan hefur þróast,“ segir
Bylgja.
Eins og áður segir er Sjávar-
útvegsráðstefnan öllum opin
og er stekið á móti skráningum
á heimasíðu hennar fram að
ráðstefnu. Aðal styrktaraðilar
ráðstefnunnar í ár eru Arion
banki, Icelandair Cargo, Trygg-
ingamiðstöðin, Wise, Olís, Oddi,
Promens og Icelandic Group.
Bylgja Hauksdóttir, formaður
stjórnar Sjávarútvegsráðstefn-
unnar, er þess fullviss að komandi
ráðstefna verði fræðandi og ár-
angursrík fyrir bæði þá fjölmörgu
sem taka þátt í dagskráinni og
hina sem á hlýða.
Frá Sjávarútvegsráðstefnunni 2014.