Ægir - 01.07.2015, Síða 21
21
Stjórnendur útgerðarfyrirtæk-
isins Vísis hf. í Grindavík höfðu
horft fram á sífellt minnkandi
framlegð af rekstri fyrirtækis-
ins frá árinu 2011. Haustið
2013 var orðið ljóst að ekki yrði
við svo búið áfram. Í ársbyrjun
2014 var tekin ákvörðun um að
loka vinnslustöðvum fyrirtæk-
isins á Húsavík, Þingeyri og
Djúpavogi og freista þess að
snúa taflinu við með því að
vinna allan afla fyrirtækisins í
tveimur fiskvinnsluhúsum í
heimabænum Grindavík, þar af
öðru húsinu alveg nýju með öll-
um besta fáanlega búnaði til
bolfiskvinnslu. Pétur H. Páls-
son, framkvæmdastjóri Vísis
hf., er afar sáttur við hvernig til
hefur tekist með breytingaferl-
ið en fyrirtækið fagnaði 50 ára
afmæli fyrr á þessu ári.
„Þetta hefur verið mikil
áskorun fyrir okkur öll því við
lögðum allt kapp á að búa
þannig um hnútana að enginn
missti vinnuna þrátt fyrir þessar
breytingar. Við buðum öllum
starfsmönnum á Húsavík, Þing-
eyri og Djúpavogi vinnu hjá
okkur hérna í Grindavík og
lögðum okkur fram um að að-
stoða hina, sem ekki vildu
þiggja þetta boð eða treystu
sér ekki til þess að flytja af ýms-
um ástæðum, til þess að fá
vinnu. Það hefur gengið eftir
með örfáum undantekningum,“
segir Pétur.
Árangur framar áætlunum
Hann segir að þrátt fyrir alla þá
gagnrýni sem fyrirtækið hafi
orðið fyrir vegna þessa hafi um
70 manns þegið boð um vinnu í
Grindavík. „Við höfum hjálpað
fólki til að laga sig að nýjum að-
stæðum eins og okkur hefur
verið nokkur kostur. Fyrir rekst-
ur fyrirtækisins sjálfs er auðvit-
að mest um vert að þessar um-
fangsmiklu breytingar hafa skil-
að okkur þeim árangri að við
höfum tvöfaldað framlegðina
okkar frá árinu 2013. Það er
reyndar framar þeim áætlunum
sem við höfðum gert en bættur
rekstur fyrirtækisins var auðvit-
að undirliggjandi hvati að öll-
um þessum breytingum,“ segir
Pétur þegar við ræðum við
hann í „betri stofunni“ í fyrir-
tækinu eins og rýmið er kallað.
Engum dylst, sem heimsækir
höfuðstöðvar Vísis hf., að þetta
er fjölskyldufyrirtæki fram í
fingurgóma, þar sem frumherj-
unum er sýnd viðeigandi virð-
ing. Í „betri stofunni“ er t.d. org-
el frá móðurömmu Péturs og
ofan á því innrammaðar myndir
af föður hans, Páli H. Pálssyni
og móður, Margréti Sighvats-
dóttur. Páll lést í febrúar á
þessu ári en Margrét árið 2012.
Pétur H. Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis hf. í Grindavík, með höfuðstöðvar fyrirtækisins baksýn. Fullkomin, tölvustýrð bitaskurðarvél frá Marel hefur skilað verðmæta-
aukningu úr hverju flaki.