Ægir - 01.07.2015, Page 23
23
Frystigámar / Sala og leiga 10 / 20 og 40 ft.
Seljum einnig og leigjum gámahús, geymslugáma og salernishús í
ýmsum stærðum og gerðum. Fjöldi sérlausna í boði, sniðnar að
þörfum hvers og eins viðskiptavinar.
Klettagörðum 5 | 104 Reykjavík | Sími 568 0100
www.stolpigamar.is
Hafðu
samband
568 0100
vel ekkert notað. Pétur er í hópi
þeirra sem hafa leitt þessa þró-
un. Haustak og Codland eru fyr-
irtæki sem Vísir hf. á aðild að en
það síðarnefnda stefnir að
100% nýtingu alls hráefnis sem
þorskurinn gefur af sér. Á með-
al hliðarafurða sem þróaðar
hafa verið er kollagen, fiskiolía,
kalsíum úr fiskbeinum og fiski-
mjöl sem hentar jafnt sem dýra-
fóður og plöntuáburður. Pétur
segir ekki mjög langt í það að
hliðarafurðir unnar úr fiski geti
orðið verðmætari en fiskafurð-
irnar sjálfar.
„Þú getur í dag farið út í
næsta apótek og keypt eina
túpu af áburði sem heitir Cod-
doc, en það er áburður með
virkum ensímum sem unnin
eru úr á að giska kílói af þorski.
Mig minnir að túban sé seld á
1500 krónur. Ef virði ensímsins
úr þessu kg af þorski er þriðj-
ungur af virði túbunnar er það
jafn mikið og maturinn af fiskin-
um selst á. Þá eigum við eftir að
vinna roðið og ýmislegt annað
úr fiskinum, m.a. kollagen en nú
stendur yfir rannsókn á því
hvernig við nýtum þorskensím
til að framleiða „rétta“ kollagen-
ið. Með því að framleiða eina
svona hliðarafurð úr hverju kílói
þá er búið að tvöfalda verð-
mætið. Ef við náum að fram-
leiða allt sem hægt er að nýta
hráefnið í höfum við margfald-
að verðmætið. En ég fullyrði að
þau efni sem þorskurinn notar
til þess að halda sér á lífi eru
miklu verðmætari en maturinn
sem hann býr til á beinunum.
Til þess að nýta þessi verðmæti
til fullnustu þurfum við að leiða
saman hugvit og þekkingu fær-
ustu vísindamanna okkar.“
Þurfum að vinna með
breytingum
Pétur segir þessa framtíðarsýn
óneitanlega heillandi en á end-
anum snúist þetta um markaðs-
setningu, sem sjávarútvegurinn
verði að vera beintengdur við
sem hluta að órofa keðju. „At-
vinnugreinin sjálf býr yfir gríð-
arlegri þekkingu og það er
ótrúlega margt spennandi að
gerast innan hennar. Menn eru
fljótir að aðlagast og finna nýjar
leiðir til verðmætasköpunar.
Þann kraft þarf að beisla áfram.
Það hefur aðeins staðið upp á
okkur sjálfa að sýna fólki hvað
við erum að gera. Með því væri
kannski hægt að losa umræð-
una um sjávarútveginn úr þeim
hjólförum sem hún hefur verið
föst í allt of lengi og beina
henni inn á uppbyggilegri
brautir,“ segir Pétur.
Hann segir tækniþróun í
sjávarútvegi óneitanlega kalla á
aukna samþjöppun. Það hafi á
endanum í för með sér fækkun
starfsfólks í hefðbundinni fisk-
vinnslu „en fyrir hvert starf sem
losnar þar erum við að skapa
tvö ný í tæknitengdum störf-
um. Þetta er ekki sama fólkið en
við losum jafnframt um fólk
sem vantar í aðrar atvinnu-
greinar. Ungt fólk sem núna er
að hefja störf í sjávarútvegi er
með allt annan bakgrunn en
við sem erum komin á miðjan
aldur. Þetta er ekki fólk sem ólst
upp við vinnu í fiskverkunar-
húsum eða til sjós heldur há-
menntað fólk sem kemur með
allt aðra sýn inn í atvinnugrein-
ina, með þekkingu úr tölvunar-
fræði, viðskiptafræði, hagfræði
og fleiri greinum. Þetta er stór
hluti þess drifkrafts sem keyrir
íslenskan sjávarútveg áfram í
dag,“ segir Pétur og bætir við:
„Þess vegna þurfum við að
hætta að vinna gegn breyting-
um og fara að vinna með þeim.
Okkur tókst að tvöfalda verð-
mæti þorskaflans þrátt fyrir
verulegan samdrátt í veiðum.
Við getum gert miklu betur.
Tækifærin í sjávarútvegi hafa
aldrei verið meiri en við skulum
samt ekki gleyma því að þau
grundvallast í dag á ákvörðun-
um sem teknar voru um stjórn
fiskveiða á Íslandi fyrir 30 ár-
um,“ segir Pétur H. Pálsson,
framkvæmdastjóri Vísis hf. í
Grindavík.
Marningi raðað í öskju.