Ægir - 01.07.2015, Qupperneq 26
26
„Nú á haustmánuðum stígum
við stórt skref með því að færa
starfsemi fyrirtækjanna
tveggja undir sama þak í
Garðabæ en þau verða hins
vegar rekin að minnsta kosti til
áramóta sem sjálfstæðar ein-
ingar. Á einhverjum tímapunkti
munu þau væntanlega renna
saman í eitt félag enda sé ég
ekkert nema tækifæri í því að
leggja saman krafta KAPP og
Optimar Ísland svo úr verði
stórt og öflugt fyrirtæki á sviði
véla- og verkstæðisþjónustu
sem og í sölu á kæli- og frysti-
kerfum,“ segir Freyr Friðriks-
son, framkvæmdastjóri og eig-
andi fyrirtækjanna KAPP ehf.,
véla-, kæli- og renniverkstæðis
í Garðabæ og Optimar Ísland
ehf. í Reykjavík. Snemma sum-
ars keypti Freyr rekstur Op-
timar Ísland en það félag hefur
áratuga reynslu í framleiðslu,
sölu og þjónustu á kæli- og
frystibúnaði, ekki hvað síst fyr-
ir sjávarútveg.
„Markmiðið er að viðhalda
og auka enn við sókn Optimar í
frysti- og kæliþjónustunni,
bæði hérlendis og erlendis en
stór hluti framleiðslu fyrirtækis-
ins er fyrir erlendan markað.
Optimar Ísland framleiðir, selur
og þjónustar kæli-, frysti- og
vinnslubúnað frá Optimar Stett-
er og Havyard MMC í Noregi
sem og ísþykknivélar og tengd
kerfi. Optimar Ísland er hvað
þekktast fyrir hinar heims-
þekktu OPTIM-ICE ísþykknivélar
sem eru mjög vinsælar á al-
þjóðamarkaði. OPTIM-ICE er
með bestu kæliaðferðum sem
fyrirfinnast í dag en ísþykknivél-
arnar hafa einstaklega hraða
kælingu og eiginleika sem fara
mjög vel með hráefnið,“ segir
Freyr.
Fyrirtæki með langa reynslu
Optimar á sér rætur allt aftur til
ársins 1988 en þá var félagið
dótturfyrirtæki Kværner í Nor-
egi. En nafninu var breytt í Op-
timar Ísland árið 2000. Guð-
mundur Jón Matthíasson, fyrr-
verandi framkvæmdastjóri og
eigandi Optimar Ísland segir
heilsufarsástæður hafa knúið
sig til að selja fyrirtækið.
„Þetta hefur verið afar
ánægjulegur tími og reksturinn
hefur gengið mjög vel. Það er
vissulega erfitt skref að yfirgefa
fyrirtækið en ég er samt mjög
ánægður að setja það í hend-
urnar á Frey og ég treysti hon-
um vel til að stýra því áfram á
réttri braut og óska honum og
öllu starfsfólki heilla,“ segir
Guðmundur Jón.
Allt í kæliþjónustunni á einni
hendi
Öll tækjaframleiðsla Optimar Ís-
land fer fram hér á landi en sem
fyrr segir á fyrirtækið einnig í
góðu samstarfi við Optimar
Stetter og Havyard MMC í Nor-
egi. Freyr segir ljóst að erlendur
markaður verði eftir sem áður
stór þáttur í starfseminni.
„Um 60% af framleiðslu Op-
timar Ísland fer fram erlendis en
engu að síður er heimamarkað-
urinn hér á landi okkur mjög
dýrmætur. Og frá því þessi eig-
endabreyting var tilkynnt í
sumar höfum við fengið mjög
góð viðbrögð frá viðskiptavin-
um hér á landi þannig að ég hef
mikla trú á tækifærum okkar á
Íslandi. Styrkur okkar liggur í að
nú höfum við á einni hendi
mjög víðfeðmt þjónustusvið,
allt frá viðhaldsþjónustu yfir í
framleiðslu og sölu á búnaði
fyrir fyrirtæki sem byggja á
kæli- eða frystibúnaði í sinni
starfsemi. Fyrir utan almenna
þróun í vélbúnaði liggur líka
fyrir að verkefni muni á kom-
andi árum skapast vegna breyt-
inga á kælimiðlum í kerfunum
þannig að það er að mínu mati
margt framundan og áhuga-
verðir tímar,“ segir Freyr Frið-
riksson.
Optimar Ísland og KAPP
undir sama þak
Optimar Ísland flytur nú á haustmánuðum að Miðhrauni 2 í Garðabæ þar sem KAPP ehf. er til húsa en sami eigandi er nú að fyrirtækjunum tveimur.
Þ
jón
u
sta