Ægir - 01.07.2015, Page 28
28
Halldór Ármannsson var endur-
kjörinn formaður Landssam-
bands smábátaeigenda á aðal-
fundi samtakanna sem haldinn
fyrir skömmu. Samtökin fagna
nú í byrjun desember 30 ára af-
mæli og settu þessi tímamót
nokkuð mark sitt á framsögur
við upphaf aðalfundarins.
Sagði formaðurinn m.a. að
telja verði til tíðinda að svo
óstýrilátan hóp hafi tekist að
temja í svo langan tíma en
smábátasjómönnum hafi lán-
ast að vinna sameinaðir í flest-
um þeim málum sem skipt hafi
sköpum fyrir heldina. Smábáta-
sjómenn séu sterkastir þegar
mest á reyni.
Halldór fjallaði nokkuð um
öryggismál í ræðu sinni og vís-
aði til rannsóknarinnar á því
þegar Jóni Hákoni BA hvolfdi
við Vestfirði í sumar. Hann
gagnrýndi að framgang rann-
sóknarinnar og sagði einnig
nauðsynlegt að taka til endur-
skoðunar öryggishlutverk
Landhelgisgæslunnar og þær
brotalamir sem séu í því kerfi
sem sjálfvirkur staðsetningar-
búnaður báta og skipa byggi á.
Skuggasvæði séu í kerfinu og af
þeim sökum detti bátar út úr
því. Öryggistæki hafi í tilviki
Jóns Hákons BA brugðist skip-
verjum. „Allir sjófarendur
treysta því og eiga allt sitt undir
að sá búnaður sem er viður-
kenndur sem björgunarbúnað-
ur komi til bjargar þegar á þarf
að halda. Því biðlum við til
stjórnvalda að allt sé gert í ör-
yggismálum sem í þeirra valdi
stendur til að tryggja að sjófar-
endur upplifi sig ekki í fölsku
öryggi,“ sagði Halldór.
Segir Hafró hafa verðfellt ýsuna
Mælingar Hafrannsóknarstofn-
unar og ráðgjöf um heildarafla
fengu lága einkunn í ræðu Hall-
dórs formanns en þessi atriði
sagði hann veigamestu áhrifa-
valda á stöðu smábátasjó-
manna.
„Við höfum verið gagnrýndir
fyrir að vera ósanngjarnir í mál-
flutningi hvað varðar heildar-
afla hvers árs í þeim tegundum
sem við nýtum. Ég ætla ekki að
þreyta ykkur á upptalningu
hverrar tegundar fyrir sig en
með ýsuna verð ég að segja að
þar er Hafró með allt niður um
sig. Á fiskveiðiárinu 2014/2015
var ýsuafli skertur um 20% úr
36 þús. tonnum í 30 þús. tonn
og þá var okkur tilkynnt að við
mættum þakka fyrir að fara ekki
niður í 20-25 þúsund tonn á
næstu árum miðað við mæling-
ar og nýliðun. Þetta gagnrýnd-
um við og töldum að mælingar
sem stuðst er við sýni ekki rétta
mynd af því magni sem er á
grunnslóðinni. Núna á fiskveiði-
árinu 2015/2016 er aukið aftur
um 20% og útgefið heildarafla-
mark í ýsu 36 þúsund tonn og
ekkert sem kemur fram um að
draga þurfi verulega úr veiðum.
Það er okkar álit að Hafrann-
sóknastofnun hafi verðfellt ýs-
una frá Íslandi með þeim yfirlýs-
ingum að á næstu árum yrði
ekki veitt nema 20 til 25 þús-
und tonn. Það er eðlilegt að
kaupendur leiti fyrir sér að nýj-
um mörkuðum þegar útlit er
fyrir talsverðan samdrátt í veið-
um. Ýsuverð á fiskmörkuðum er
rúmum 20% lægra það sem af
er þessu fiskveiðiári,“ sagði Hall-
dór.
Kvótasetning makríls er
Halldór Ármannsson, formaður LS.
S
m
á
b
á
ta
r